Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 10. febrúar 2000
Drakk í mig fróðleikinn
Ég ætla ekki aða þakka Jóa listó
fyrrverandi vini mínum fyrir að skora
á mig sem lestrarhest. Þetta verður
gleypt en ekki gleymt. Ég skildi
ekkert í því á fimmtudagsmorguninn
þegar Ester kom stormandi inn í
svefnherbergi kl 07.30 um morgun-
inn, þreif Rapport og Höstler af
náttborðinu og fleygði þeim í ruslið.
En ég áttaði mig á því þegar ég fór að
lesa Fréttir, að undan þessum annars
ágætu blöðum komu þær bækur sem
ég hafði verið að lesa um og eftir
jólin.
Fyrst má nefna bókina Með bros í
bland eftir Magnús Óskarsson fyrr-
verandi borgardómslögmann, fulla af
kímni og skemmtilegum uppákomum
frá hans yngri árum þegar hann var
stúdent og sögur er hann var á síld á
sumrin til að vinna sér inn fyrir skóla-
gjöldum.
Þá er nýfarin í lán hjá mér bók sem
ég var að lesa og heitir hún Spell-
virkjamir eftir Egil Egilsson, mjög
skemmtileg bók. Nú einnig var ég að
klára bókina Vetrarferðin, eftir Olaf
Gunnarsson, og ijallar um ástandið og
mannlífið á stríðsámnum í Vestur-
bænum í Reykjavík, akkúrat á þeim
tíma þegar ég var að alast upp á
Brekkustígnum. Síðan var ég að lesa
bók eftir Hákon Aðalsteinsson, sem
mig minnir að heiti Glott í golu-
kaldann. Einnig fletti ég upp Al-
íslenskri fyndni og bestu bröndumm
Svavars Gests og innan seilingar er
bókin, Nokkur orð um kossa, afbrýði
og ást. Síðan ætlaði ég að fara að lesa
bókina, 19 holan, bók um golf sem
Reynir bróðir gaf mér í afmælisgjöf,
en þegar ég opnaði hana var grópaður
viskípeli inn í hana, svo ég drakk
hann. Þar með má segja að ég hafi
drukkið síðustu bókina sem ég ætlaði
að lesa og leika trúlega fáir það eftir
mér. En þetta heitir að drekka í sig
fróðleik í orðsins fyllstu merkingu.
Ég hef verið að velta því fyrir mér,
hvem eða hverja ég ætti að tilnefna
sem næsta bókaorm. Menn hafa
verið að hringja í mig og viljað hafa
áhrif á það. Ég er að hugsa um að
ríða út fyrir hrossahópinn og tilnefna
Hartmann Ásgeirsson sem næsta
bókaorm. Hann var að gera við tönn
í mér um daginn og þegar ég opnaði
munninn sagði hann: „Þetta er
stærsta hola sem ég hef séð,“ og
endurtók þetta þrisvar sinnum. Þá
sagði ég við hann: „Það er nú óþarfi
að vera endurtaka þetta í sífellu." ,,Ég
er saklaus af því,“ svaraði hann.
„Þetta er bergmálið í holunni."
Eyðilagði sængina
Fyrir skömmu voru vígðar nýjar
kirkjuhurðir sem Kvenfélag Landakirkju
hefur gefið kirkjunni. Hurðirnar prýða
fagurlega útskornar myndir, gerðar af
Sigurði Sigurðarsyni frá Vatnsdal en þær
eru gerðar til minningar um afa og ömmu
Sigurðar, séra Oddgeir og Önnu
Guðmundsen á Ofanleiti. Sigurður er
Eyjamaður vikunnar.
Fulltnafn? Sigurður Sigurðarson.
Fæðingardagur og ár? 22. júií 1928.
Fæðingarstaður? Á þriðju hæðinni í
Vatnsdal. Nú liggur 60 m hraun þar yfir.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Jóhönnu
Friðriksdóttur. Við eigum fjögur börn og
barnabörnin eru átta.
Menntun og starf? Lærður húsamiður
og skipasmiður. í dag er ég ellilífeyris-
þegi og skurðarmaður.
Laun? Lítil.
Bifreið? Peugot 1994. Sparneytinn og
góðurbíll.
Helsti galli? Fljótfær
Helsti kostur? Flólegheit. Reyndar verð ég
snargeggjaður einu sinni á ári.
Uppáhaldsmatur? Égermikill
matmaður og þykir margt gott.
En fátt jafnast á við gott
hangikjöt.
Versti matur? Ég held að það
sé fýll. Mér fannst lyktin af
honum alveg hroðaleg.
Uppáhaldsdrykkur? Dags-
daglega appelsínusafi. Rauðvín
til hátíðabrigða.
Uppáhaldstónlist? Mið-
evrópsk klassík.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að ferðast og
skoða fallegar byggingar og
menningarstaði.
Hvað er það leiðinlegasta
sem þú gerir? Að gera skatt-
skýrsluna. En ég er svo hepp-
inn að ég kem því verki yfir á
konuna og geri ekkert annað nú
orðið en að skrifa undir.
Hvað myndirðu gera ef þú
ynnir milljón í happdrætti?
Skella mér í hnattreisu.
Uppáhaldsstjórnmálamaður?
Hann er núna sendiherra í Kanada og heitir Svavar
Gestsson.
Uppáhaldsíþróttamaður? Frændi minn, Guðni
Davíð Stefánsson, Ólympíugullhafi.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Ég var í
Alþýðubandalaginu hérá árum áður, meðan það var
og hét en er nú félagi í Rauða krossinum.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttirog fræðslumyndir.
Sérstaklega gamalt íslenskt efni.
Uppáhaldsbók? Sjálfstætt fólk stendur upp úr.
Hvað meturþú mest í fari annarra? Skemmtilega
framkomu og góðan húmor.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Belgingur og grobb.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Ég hef
komið víða en ekkert jafnast á við Vestmannaeyjar.
Hve lengi hefurþú fengist við útskurðarlist? Frá
þvíað ég var fjögurra eða fimm ára. Þetta kom fljótt í
Ijós. Guðmundur frá Miðdal gaf mér leir og ég
dundaði við hann uppi í rúmi og eyðilagði sængina.
En þá var ég líka búinn að móta Jesúbarnið og Maríu
ogýmislegt f fjárhúsinu í Betlehem.
Ertu eitthvað lærður í þessum fræðum? Ekki
beint. Enég hef kynnt mér bækur um útskurð og þær
aðferðirsem eru notaðar.
Eru fleiri verkefni þessu lík á
döfinni? Þessa stundina er ég
að bögglast við að gera styttu af
Agli Skallagrímssyni þar sem
hann erað reisa Noregskonungi
níðstöng. Ég er búinn með
hrosshausinn og er að byrja á
Agli.
Er kostnaðarsamt að koma
sér upp tækjum til útskurðar?
Nei, ætli góður búnaður kosti
ekki um 30 þúsund.
Getur hver sem er dundað sér
við útskurð? Já, en efárangur
á að nást þá verður teiknigeta
að vera fyrirhendi.
Eitthvað að lokum? Mér þykir
vænt um Landakirkju og söfnuð
hennar og þótti gaman að fá
þetta verkefni. Mér finnst
nokkuð skorta á í því að
íslenskar kirkjur geti státað af
sama glæsileika og margar
kirkjur, t.d. í Evrópu, og úr því
þarfaðbæta.
Nýfæddfc
estmannaeyingar
?cr
Þann 8. ágúst eignuðust Helena Rut Sigurðardóttir og Gestur
Magnússon son. Hann vó 15 merkur var 54 cm að lengd. Hann hefur
verið skírður Amsteinn Kári. Hann fæddist á fæðingardeild
Landsspítalans. Fjölskyldan býr í Reykjavík.
Þann
3.nóvember
eignuðust
Helga
Barðadóttir og
Gunnar Öm
Ingólfsson,
Þórarinssonar,
son. Hann vó
14 merkur og
var 53 cm að
lengd. Hann
hefur verið
skírður Hákon.
Hann fæddist á
fæðingardeild
Landsspítalans.
Ljósmóðir var
Helga
Harðardóttir.
Drengur
Drenqurj
Þann 30.
janúar
eignuðust
Marta
Sigurjónsdóttir
og Hermann
Sigurjónsson
son. Hann vó
17.5 merkur og
var 56 cm að
lengd. Með
honum á
myndinni er
frænka h ans
Ingibjörg
Sigurjónsdóttir
. Ljósmóðir
var Valgerður
Björg
Ólafsdóttir.
Á döfinni 4*
10. feb Aðalfundur Ránar
11. feb Partý á Fjörunni
11. feb Mfí. karla í handbolla IBV-
Aflurelding kl 20.00
12. feb Sóldögg á Fjörunni
12. feb Þorrablót Sjóve
12. feb Mfí kvennna í handbolta ÍBV-ÍR kl.
13.30
13. feb 2. fí. kvenna í handbolta ÍBV-ÍR kl.
14.00