Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 10. febrúar2000
Fréttir
19
Nissandeildin: ÍBV 25 - FH 23 - Víkingur 21 - ÍBV 19
Góður sigur og magalcnding
Strákarnir byrjuðu vel eftir nærri
tveggja mánaða hlé á handbolta-
vertíðinni, sigur gegn FH í annars
ágætis handboltaleik, 25-23 og ÍBV
komið í sæti í úrslitakeppninni.
Ekki gekk eins vel í næsta leik,
þegar liðið mætti Víkingum á
útivelli, endaði leikurinn með 21 -
19 sigri Víkinga.
Leikurinn gegn FH fór dálítið ein-
kennilega af stað, mikið um klaufaleg
mistök og misheppnaðar sóknarað-
gerðir. En það var lán í óláni að
gestimir áttu líka í vandræðum í sínum
sóknarleik og byggðu sóknina til að
byrja með aðeins á einum manni. Því
virtust leikmenn IBV ekki átta sig á og
FH seig framúr á lokakafla fyrri
hálfleiks og staðan þegar hálfleiknum
lauk 12-13 gestunum í vil.
Seinni hálfleikur var hins vegar á
öðmm nótum. FH-ingar skoruðu að
vísu fyrsta markið, en góður leikkafli
ÍBV undir stjóm Aurimas færði liðinu
undirtökin í leiknum. ÍBV jók mun-
inn hægt og sígandi og þegar um 5
mínútur vom til leiksloka var staðan
23-19 og sigurinn innan seilingar. En
eins og svo oft áður þá hentar ÍBV
ekki að vera með þægilegt forskot þvf
gestimir skomðu fjögur mörk gegn
aðeins einu marki IBV og leikurinn
var galopinn. Þegar mínúta var eftir
gat IBV nánast tryggt sér sigurinn, en
í staðinn misstu þeir boltann og á-
hyggjustunur liðu um loftið í fþrótta-
miðstöðinni. En Erlingur fyrirliði
vann boltann aftur og skoraði sigur-
markið rétt áður en leiknum lauk,
25 - 23.
Það settí svo ljótan blett á leikinn að
einn besti maður leiksins Miro Barisic
sá ástæðu til þess að kanna styrk
rifbeina eins gestanna úr Hafnarfirði
og var fyrir vikið útilokaður frá leikn-
um þegar ein sekúnda var eftir.
Mörk ÍBV: Miro 9/3, Erlingur 6,
Aurimas 5, Svavar 3, Guffí 1, Emil I.
Varin skot: Gísli Guðmundsson 18.
Slakt í Víkinni
Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrverandi
þjálfari ÍBV og núverandi þjálfari
Víkinga, virðist hafa gott tak á
fyrrverandi lærisveinum sínum sem
sést best af því að árangur Vfldnga er
ágætur gegn ÍBV í vetur, jafntefli í
Eyjum í fyrri umferð og sigur á
heimavelli um helgina. Hafa Víkingar
náð þriðjungi stiga sinna í vetur gegn
ÍBV.
Reyndar þurftu Víkingar ekki að
sýna mikil tilþrif til að sigra í leiknum
á laugardaginn, leikur ÍBV var
hreinlega ávísun upp á tap. Er ljóst að
leikmenn þurfa svo sannarlega að fara
finna taktinn ef ekki á illa að fara en
úrslit leiksins urðu 21-19 fyrirgest-
gjafana.
Erlingur Richardsson, fyrirliði,
sagði að liðið hefði spilað ágætan
vamarleik, en sóknarleikur liðsins
hefði ekki verið burðugur. „Við
komumst aftur inn í leikinn undir
lokin, en þá var ég rekinn út af fyrir
kjaft, og Guffi svo rekinn út af þegar
ég kom inn á. Þannig að við vorum
einum færri á lokakaflanum.
Víkingarnir náðu þá tveggja marka
forystu sem við náðum ekki að vinna
upp aftur," sagði Erlingur.
Mörk ÍBV: Guffi 7/3, Erlingur 5,
Aurimas 4, Svavar 2, Siggi Braga 1.
Handbolti kvenna: IBV 19 - Víkingur 15 - Afturelding 16 - IBV 30
Góð vika hjá stclpunum
Kvennalið ÍBV í handbolta hefur
gefið öllum spámönnum langt nef
þetta árið. Fyrir tímabilið var
stelpunum spáð slöku gengi en þær
hafa sýnt og sannað að þær eru til
alls líklegar og komnar í topp-
baráttuna.
í síðustu viku gerðu stelpumar sér
lítið fyrir og unnu Vfldngsstúlkur í
Víkinni. Vikingar höfðu aðeins tapað
einum leik fyrir leikinn gegn ÍBV,
voru efstar í deildinni og taplausar á
heimavelli í þokkabót.
Óhætt er að segja að ÍBV hafi
komið Vfldngum mjög á óvart í
leiknum. Stelpumar vom ávallt skrefi
á undan efsta liði deildarinnar og
gengu til búningsherbergja í leikhléi
með tveggja marka forskot 8-10. í
seinni hálfleik héldu leikmenn IBV
áfram að þjarma að heimastúlkum og
leiddu leikinn með 3-4 mörkum.
Stelpumar héldu svo haus út leikinn
og lönduðu líklega sínum besta sigri
til þessa 15-19.
Sigbjöm Óskarsson, þjálfari stelpn-
anna, var að sjálfsögðu ánægður með
sigurinn, en sagði að hann hefði í
sjálfu sér ekki komið honum á óvart.
,jig tel okkur vera með miklu betra lið
en t.d. Víkingur og við emm á réttri
leið eins og er. Við vomm yfir allan
tímann og hefðum jafnvel getað unnið
stærri sigur," sagði Sigbjöm og vildi
hann benda á að nú væri liðið í 5. sæti,
en með sigri gegn IR hér í Eyjum á
laugardaginn gæti liðið farið upp í 4.
sæti ogjsar með í toppbaráttuna.
Mörk IBV: Amela 8, Anita 5, Mette
2, Guðbjörg 2, Andrea 2.
Vinnusisur gesn Aftureldinsu
Liðið mætti svo botnliði Aftureldingar
í leik kattarins að músinni í Mos-
fellsbæ. ÍBV hafði mikla yfirburði í
leiknum og leiddi í hálfleik.
Stelpumar héldu svo dampi út leikinn
og fjórtán marka sigur í höfn, 16-30.
ÍBV er því í fimmta sæti með 21
stíg, en á inni leik á Stjörnuna sem er í
Ijórða sæti með 22 stig.
Mörk ÍBV: Guðbjörg Guðmanns-
dóttir 8, Amela Hegic 7, lngibjörg
Jónsdóttir 6, Anita Andreasen 4,
Andrea Atladóttir 3, Vigdís Sig-
urðardóttir 1.
Ljóst hvaða hópar
fara í úrslitakeppnina
Síðasta umferð í hópaleik ÍBV og
Frétta var um síðustu helgi og má
segja að spennan hafi verið í
hámarki og mjög óljóst hvaða hópar
kæmust í úrslitakeppnina.
Þó má segja að nokkrir hópar hafi
verið ömggir um að komast áfram.
Hópurinn JóJó náði 10 réttum og
fékk um leið 15.000 króna peninga-
pottinn, en sá pottur var fyrir þá hópa
sem tippuðu fyrir 1000 krónur eða
meira allar 10 vikumar. Með þessum
árangri náði JóJó einnig öðm sæti í
sínum riðli. Bláa-Ladan náði 8
réttum og rétt náði inn í úrslita-
keppnina annan hópaleikinn í röð.
En lokastaðan var þessi:
A-riðill: H.H. 71, Dumb and
Dumber 69, Fema United 68,
Austurbæjargengið og Klaki 67,
Bonnie and Clyde 58
B-riðill: Húskross 68, JóJó 67, Allra
bestu vinir Ottós 66, Joe on the Hill
64, Vinstri bræðingur 61, Munda 52
C-riðill: FF 73, Pömpiltar 71, Flug-
Eldur 71, Mambó 66, E.H. 54
D-riðiIl: Bæjarins bestu 69, Man.
City 65, Bláa-Ladan 64, Tippa-
lingumar 64, Tveir á Toppnum 63
Urslitakeppnin hefst svo um næstu
helgi og verður henni skipt í tvo
riðla. Þar verða spilaðar íjórar vikur
og efstu hóparnir í hvorum riðli
keppa síðan til úrslita. í úrslita-
keppnina taka hópamir með sér stig,
hópamir í efstu sætunum taka með
sér 4 stig, hópamir í öðm sæti 2 stig
og hópamir í þriðja sæti taka engin
stig með sér.
Ætlunin er að hafa allavega einn
hópaleik í viðbót og munum við í
getraunanefnd auglýsa hann nánar
síðar.
GETRAUNANEFND ÍBV
VARNARVEGGUR ÍBV-stelpnanna hefur reynst traustur í vetur
og er ein ástæðan fyrir því að nú eru stelpurnar komnar í topp-
baráttuna. Mynd: Páll Maiyin.
Karfan: Valur 103 - IV 70
Hörmulegur seinni hálf-
leikur gerði útslagið
ÍV keppti gegn Valsmönnum á
sunnudagskvöldið og með sigri
hefðu Eyjapeyjar geta komið sér vel
fyrir í þriðja sæti deildarinnar og
ekki þurft að treysta á önnur lið til
að komast í úrslitakeppnina.
En ekki verður á allt kosið,
leikmenn ÍV áttu sér yfirleitt ekki
viðreisnar von í leiknum og töpuðu
með rúmlega þrjátíu stiga mun,103 -
70. Eyjamenn hafa því tapað tveimur
leikjum í röð og sitja því sem stendur
í 5. til 6. sæti l. deildarinnar ásamt
Breiðabliki með 16 stig.
Amsteinn Ingi hafði þetta um
leikinn að segja: „Við byrjuðum mjög
illa og þeir náðu 12 stiga forystu strax
á fyrstu mínútunum. En við tókum
okkur taki, spiluðum ágæta vöm með
Valda í fararbroddi, og komumst yfir
18 - 20. Við leiddum svo leikinn í
dágóðan tíma, en svo datt allt niður á
sama plan og áður og Valsmenn
höfðu yfir 26 - 35 í hálfleik.
Seinni hálfleikur var svo algjör
hörmung, nema síðustu tvær mín-
útumar þegar menn fóm loksins að
spila sem lið, en það var að sjálfsögðu
allt of seint.“
Um framhaldið sagði Addi að ÍV
þyrfti helst að sigra í þeim íjómm
leikjum sem eftir era. „Við eigum
þrjá heimaleiki í röð gegn þremur
neðstu liðunum og ættum að geta híft
okkur aftur í 3. til 4. sæti, en síðasti
leikurinn er útileikur gegn næstefsta
liðinu og við þurfum helst að vera
búnir að tryggja okkur sæti í
úrslitakeppninni fyrir þann leik.“
Stig ÍV: Stebbi 26, David 20, aðrir
minna.
Tap sesn Keflavík
Meistaraflokkur ÍBV keppti sinn
annan æfingaleik í ár þegar liðið
mætti Kellavík í Reykjanesshöllinni
í Keflavík. Skemmst er frá því að
segja að ÍBV tapaði með tveimur
mörkum gegn engu, þrátt fyrir að
vera ráðandi aðili leiksins. Liðið
skapaði sér fjölmörg færi en menn
söknuðu greinilega Steingríms
markahróks til að klára færin.
Fjórir í landsliðshópa
Fyrir skömmu var valinn æfinga-
hópur drengjalandsliðs íslands
skipað leikmönnum 16 ára og
yngri. Einn leikmaður úr ÍBV er
þar á meðal, Ástvaldur Gylfason
heitir hann og spilar nteð þriðja
flokki í sumar.
Einnig var valinn 26 manna
æfingahópur skipaður leikmönnum
18 ára og yngri. Þar eru þrír leik-
menn 2. flokks ÍBV, þeir Alli
Jóhannsson, Gunnar Heiðar Þor-
valdsson og Olgeir Sigurgeirsson
Að öllu eðlilegu hefði Unnar
Hólm Olafsson, einn besti maður
flokksins síðasta ár. átt að vera
þarna á meðal, en ekki verður á allt
kosið.
Skuldlausirvið HSÍ
„Við skuldum HSÍ ekki neitt
sagði Jóhann Pétursson í stjóm
handknattleiksdeildar ÍBV-íþrótta
félags.
Komið hefur fram í l'réttum að
nokkur lið eigi yfir höfði sér
leikbann vegna skulda við sam-
bandið en ÍBV er ekki í þeim hópi.
„I síðasta yfirlitý áttum við smá
inneign hjá HSÍ. Við myndum
sjaldan skuld við þá vegna þess að
kostnaður við að fá dómara hingað
er mikill. Þann kostnað greiðum við
og sendum síðan HSÍ reikninginn,"
sagði Jóhann að lokum.
Framundan
Föstudagur 11. febrúar
Kl. 20.00 ÍBV-UMFA karlar, ath
frítt inn fyrir kaupendur happa-
drættismiða
Laugardagur 12. febrúar
Kl. 13.30 IBV-ÍRkonur
Kl. 15.30 ÍV-Hötturkarfan
Sunnudagur 13. febrúar
Kl. 14.00 IBV-ÍR 2. fl. kvenna
Mánudagur 14. febrúar
Kl. 19.15 ÍBV-ÍR 2fl. karla.
Miro fékk
bann
einn leik
Miro Barisic, leikmaður IBV, sem
vísað var af velli eftir gróft brot í
leiknum á móti FH verður ekki nteð
í leiknum á móti Aftureldingu
annað kvöld. Sá leikur mun fara
fram því Mosfellingar em eins ÍBV,
skuldlausir við HSl.
Málið var tekið fyrir af dómstól
HSÍá þriðjudaginn og var hann
dæmdur í bann í einn leik.
Mál Gunnars Bergs
tekið fyrir í byrjun mars
Mál Gunnars Bergs Runólfssonar,
markmanns 2. flokks ÍBV, sem
ákærður hefur verið fyrir alvarlega
líkamsárás verður tekið fyrir í
byrjun mars í héraðsdómi Reykja-
ness. Ákæran kom í kjölfar leiks
gegn HK í innanhússknattspyrnu
fyrirári.