Fréttir - Eyjafréttir - 27.04.2000, Síða 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 27. april 2000 • 17. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax: 481 1293
Á þriðjudeginum fyrir páska
héldu börnin á leikskólanum
Rauðagerði upp í íþrótta-
miðstöð. Þar gátu þau brugðið
á leik í hinum ýmsu tækjum og
tólum, en undanfarin þrjú ár
hefur verið farið tvisvar á ári í
slíka ferð, fyrir jólafrí og
páskafrí. Markmiðið er að
brjóta aðeins upp hefðbundinn
leikskóladag og opna nýjar
víddir í líkama og sál. Börnin á
Rauðagerði eru frá eins árs til
sex ára og auðvitað fengu allir
aldurshópar að taka þátt í
leikjunum. Allir skemmtu sér
konunglega og ekki síður
leikskólakennararnir, sem
fengu sína útrás líka. En þó að
orkan sé mikil hjá börnunum,
þá þarf nú líka að hvíla sig og
safna kröftum til frekari átaka í
lífinu.
Reynsla í fimm ættliði
íslenska skófyrirtækið X18, The
Fashion Group, hefur gert sölu-
samning að upphæð 7,3 milljarða
íslenskra króna, við bandaríska
dreifingarfvrirtækið New York
Transit.
Aðstandendur þess eru, auk Ný-
sköpunarsjóðs, Pétur Bjömsson,
Magnús Gpðmundsson og bræðumir
Adolf og Óskar Axel Óskarssynir en
þessir fjórir aðilar tengjast allir Vest-
mannaeyjum meira og minna leyti.
Adolf sagði í samtali við Fréttir að
fyrirtækið væri aðeins tveggja ára
gamalt en það væri þó ekki eins og
þessi árangur hefði náðst á aðeins
þessum tveimur ámm. Em það orð að
sönnu því fjölskylda þeirra bræðra
hefur starfað við skósölu frá árinu
1877 og em þeir fimmti ættliðurinn í
greininni. Sjálfir hafa þeir starfað allan
sinn starfsaldur við sölu og fram-
leiðslu á skóm þannig að reynslan er
fyrir hendi.
KRISTJÁN Egilsson, forstöðumaður Náttúrugripasafnsins, tók
þessa mynd af helsingja sem undanfarna daga hefur haldið sig í
Herjólfsdal. Helsingi er algengur á Grænlandi og kemur hér við á
leiðinni þangað en aðeins er vitað um átta pör sem verpa hér á
landi.
„Það sem gerist núna er að saman
em komnir í eitt félag tveir hug-
sjónamenn og traustir fjárfestar,"
sagði Adolf. „Við fengum Nýsköp-
unarsjóð til liðs við félagið og saman
held ég að okkur ætti að takast það
sem við bræðumir höfum alltaf ætlað
okkur,“ bætti Adolf við.
Þeir bræður eiga 35% hlut í X-18,
Magnús og Pétur eiga jafn stóran hlut
en afganginn, 30% hlut á Ný-
sköpunarsjóður atvinnulífsins og þar
em Eyjamenn við stjómvölinn. Úlfar
Steindórsson er framkvæmdastjóri
sjóðsins og Amar Sigurmundsson
stjómarformaður. Á blaðamannafundi
á þriðjudaginn, þar sem samningurinn
við bandanska fyrirtækið var kynnmr
sagði Pétur að aðkoma Atvinnu-
þróunarsjóðs hefði skipt sköpum.
X-18 ætlar sér stærri hluti og stefnir
m.a. á framleiðslu og sölu á tísku-
fatnaði, ilmvötnum og fleiru.
Sjá bls. 2.
Nýtt skip til Isfélagsins:
Kemur í stað Gígju
sem verður lagt
Isfélag Vestmannaeyja hefur keypt
loðnuskipið Amþór EA, það skip hét
áður Höfrungur AK. Skipið var
smíðað í Noregi 1975, sams konar
skip og Gullberg og Huginn, sem
einnig komu hingað um svipað leytí.
Hörður Óskarsson, hjá Isfélaginu,
segir að með skipinu fylgi einn
sfldarkvóti og 0,5% loðnukvóti.
Burðargeta þess er um 900 tonn af
loðnu. Samfara þessum kaupum
verður Gígju VE lagt og hún sett á
sölulista. Nýja skipið kemur því í
raun í stað Gígju. Hörður segist telja
þetta góðan kost, miðað við þá
ijárbindingu sem að baki kaupunum
liggur. Skipið sé vissulega ekki nýtt
en í góðu standi, t.d. hafi verið skipt
um aðalvél 1988 og spilkerfm séu
tveggja ára gömul. Skipið verður
afhent í næstu viku. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvaða naíh það fær en
Hörður segir að það muni bera
gamla Sæfaxanúmerið, VE 25.
Forkaups-
réttar
neytt
fimm
sinnum
Fyrr í vetur lagði Svanfríður
Jónasdóttir, alþingismaður, fram
fyrirspum til sjávarútvegsráðherra
um hvaða sveitarfélög hefðu neytt
forkaupsréttar, samkvæmt Iögum
um stjórn fiskveiða frá 1990, og í
hvaða tilfellum það hefði verið gert.
Nú hefur ráðherra svarað þessari
íyrirspum, eftir að hafa sent bréf til 41
sveitarfélags en 35 sveitarfélög
svöruðu. Þar kemur í Ijós að einungis
sjö þeirra hafa nýtt sér forkaups-
réttarákvæðin. Fjarðabyggð, Grinda-
vík, Reykjanesbær, Snæfellsbær og
Homafjörður hafa hvert. um sig einu
sinni nýtt sér forkaupsréttinn á
þessum tíu ámm og Vesturbyggð
tvisvar. Aftur á móti sker Vest-
mannaeyjabær sig nokkuð úr með
fimm skipti sem skip vom keypt og
seld aftur innanbæjar. Þau skip em
Sigurvfk, Sjöstjaman, Sindri, Helga
Jóh og Suðurey.
Bílaverkstæðið Bragginn s.f.
__ Réttingar og sprautun
Flötum 20 - Sími 481 1535
Vetraráætlun
Alla daga n/sun.
Sunnudaga
Aukaferö föstud.
frá Eyjum
kl. 08.15
kl. 14.00
kl. 15.30
Frá Þorlákshöfn
kl. 12.00
kl. 18.00
kl. 19.00
HerjóKur
Tvær ferðir á föstudögum!
Sími 481 2800 - Fax 481 2991