Fréttir - Eyjafréttir - 27.04.2000, Síða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 27. apnl 2000
Milljarðasamningur um sölu á skóm til Bandaríkjanna:
Vestmannaeyingar við
stjórnvölinn hjá X-18
ÞEIR, halda um stjórnartaumana, f.v. Adolf, Óskar Axel, Pétur, Magnús og Örn D. Jónsson sem sæti á
í stjórn félagsins.
frettir
Fimm
skemmdarverk
Það virðist loða við dymbilviku og
páskahelgi að skemmdarverkum
Ijölgar í Vestmannaeyjum, hver svo
sem skýringin er á því. Alls voru
fimm eignaspjöll eða skemmdar-
verk kærö til lögreglu á þessum
dögum. Á miðvikudag í síðustu
viku var tilkynnt um skemmdir á
langferðabifreið sem stóð við
Bessastíg. Á laugardag var brotin
rúða í langferðabi freið við Tanga-
götu. Sama dag var tilkynnt um
rúðubrot í Hamarsskóla og er vitað
hver þar var að verki. Á annan dag
páska var tilkynnt að tíu rúður
hefðu verið brotnar í Bamaskól-
anum og á þriðjudag að listaverk,
sem stendur við Ráðhúströð, hefði
verið skemmt. Þeir sem geta gefið
einhverjar upplýsingar um hverjir
stóðu að þessum skemmdarverkum
era beðnir að hafa samband við
lögreglu.
Eríll hjá lögreglu
umbænadaga
Páskahelgin fór að mestu leyti vel
fram í Vestmannaeyjum að sögn
lögreglu. Síðasta vika kom út með
167 færslur í dagbók sem er minna
en í vikunni á undæi. Aftur á móti
var talsverður erill hjá lögreglu
fyrstu þrjá bænadagana, frá
fimmtudegi fram til laugardags, og
nokkuð um afskipti lögreglu vegna
gleðskapar í heimahúsum sem
sums staðar l'ór úr böndum. Frá
miðvikudagskvöldi fram á mánu-
dagsmorgun voru færslur 114 að
tölu í dagbókinni en á sama tíma í
fyrra voru þær 88 talsins.
Kaldur og fótfúinn
ÞiófurP
Á þriðjudag var lögreglu tilkynnt
að svefnpoka hefði verið stolið af
snúru við Foldahraun 42. Ekki er
vitað hver þar var að verki en líkast
til hefur honum vrið kalt. Sama
dag var tilkynnt að bifreið hefði
verið stolið frá sama stað og ekki
talið ólíklegt að hér hafi sami aðili
og tók svefnpokann verið að verki.
Hvort hann hefur ætlað að leggjast
til svefns í bílnum er ekki vitað.
Reikningarnireina
máliðádagskrá
Bæjairáð fundaði á þriðjudag.
Aðeins eitt mál var á dagskrá,
lagðir voru fram reikningar ársins
1999 fyrir bæjarsjóð og stofnanir
hans. Áuk fulltrúa £ bæjarráði sátu
þeir Hafsteinn Gunnarsson endur-
skoðandi og Magnús Þorsteinsson
aðalbókari þennan l'und. Bæjarráð
þakkaði þeim sem unnu að gerð
ársreikninganna fyrir góð störf og
vísaði reikningunum síðan til fyrri
umræðu í bæjarstjóm.
Rýmri útivistartfmí
hjáungafólkinu
Frá og með I. maí breytist úti-
vistartími barna og unglinga. Frá
þeim tíma mega börn 12 ára og
yngri vera úti til kl. 22.00 og 13 til
16 ára mega vera úti til kl. 24.00.
Islenska skófyrirtækið X18, The
Fashion Group, hefur gert sölu-
samning að upphæð 100 milljónir
bandaríkjadala, eða 7,3 milljarða
íslenskra króna, við bandaríska
dreifingarfyrirtækið New York
Transit. Samningurinn gildir til tíu
ára, er stighækkandi og verður
formlega staðfestur að viðstöddum
forseta fslands, Olafi Ragnari
Grímssyni, í opinberri heimsókn
hans til Los Angeles þann 5. maí nk.
XI8, The Fashion Group, var stofnað
af skófyrirtækinu Sportvörum og
Útgerðarfélaginu Sögu ehf. í febrúar
1998. Aðstandendur þess eru, auk
Nýsköpunarsjóðs, Pétur Bjömsson,
Magnús Guðmundsson og bræðumir
Adolf og Óskar Axel Óskarssynir en
þessir fjórir aðilar tengjast allir Vest-
mannaeyjum meira og minna. Þeir
bræður eru bomir og barnfæddir
Eyjamenn, Pétur er ættaður héðan, af
Oddstaðaætt og Magnús lauk prófi frá
Stýrimannaskólanum í Eyjum og er
kvæntur Vestmannaeyingnum Sig-
rúnu Ágústsdóttur. Þeir Pétur og
Magnús eru einkum þekktir fyrir
umfangsmikinn rekstur í Hull við
fiskinnflutning. Óskar Axel er fram-
kvæmdastjóri X18 og Pétur stjómar-
formaður.
Þeir bræður eiga 35% hlut í X-18,
Magnús og Pétur eiga jafnstóran hlut
en afganginn, 30% hlut, á Nýsköp-
unarsjóður atvinnulífsins og þar eru
Eyjamenn við stjómvölinn. Úlfar
Steindórsson er framkvæmdastjóri
sjóðsins og Arnar Sigurmundsson
stjómarformaður.
Á blaðamannafundi á þriðjudaginn,
þar sem samningurinn við bandaríska
fyrirtækið var kynntur sagði Pétur að
aðkoma Atvinnuþróunarsjóðs hefði
skipt sköpum.
„Það em margir samverkandi þættir
sem hafa gert þetta mögulegt. I fyrsta
lagi vil ég nefna að seint á síðasta ári
tók stjórn Nýsköpunarsjóðs Atvinnu-
lífsins ákvörðun um að kaupa 30%
hlut í X-18 að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum svo sem áreiðanleika-
könnun og auknu hlutafé frá frum-
herjunum. Þetta kom til á þeim tíma
sem erfiðleikamir vom sem mestir og
gerði okkur kleift að vaxa og dafna
jafn hratt og raun ber vitni. Fyrir það
vil ég þakka sérstaklega og finnst mér
sjóðurinn bera nafn með rentu eftir
þetta auk þess sem ég vona að þeir
renti aurana sína í lciðinni." sagði
Pétur.
I öðru lagi nefndi hann að X-18
hefði á að skipa mjög fæm starfsfólki
sem hefur lagt hart að sér ekki síst
þegar útlitið var ekki eins bjart og það
er nú. „Hér hefur til dæmis verið
unnið alla páskadagana og það em
ekki margir dagar sem þetta hús hefur
verið mannlaust. Fyrir þann dugnað
emm við þakklát og fyrir það munum
við launa.“
Fimmti ættliðurinn í
skóviðskiptum
I þriðja og síðasta lagi nefndi Pétur
þátt þeirra bræðra Óskars Axels og
Adolfs. „Þó að fyrirtækið sé einungis
tveggja ára gamalt, þá á sú þekking og
fæmi, sem gert hefur þetta mögulegt,
sér miklu lengri sögu. Þeir bræður em
5. ættliður sem sýslar í skóviðskiptum
og þau hafa þeir stundað frá ung-
lingsámm. Hver man til dæmis ekki
eftir Puffins skónum sem vom þekktir
hér á landi fyrir ca 10 ámm? Þá skó
hannaði Óskar Axel og markaðssetti.
Eg held að ekki sé á neinn hallað þó
að ég segi að þeir eigi af þessu mestan
heiður, hafa lagt allt sitt undir og
rúmlega það á stundum og unnið af
ótrúlegri elju og bjartsýni," sagði Pétur
í ræðu sinni.
Þetta er langstærsti samningur sem
X18 hefur gert og tryggir fyrirtækinu
miklar og stöðugar tekjur áratug fram
í tímann, bestu viðskiptakjör og
viðamikla markaðssetningu í Banda-
ríkjunum og Kanada. New York
Transit er rótgróið fýrirtæki sem mun
sjá um dreifingu í fjölda skó- og
tískuverslana, auk helstu verslana-
keðja í Bandaríkjunum, á borð við
Macy’s, Bloomingdales og Nord-
strom. Þessi samningur þýðir að seld
verða á Bandarfkjamarkaði á aðra
milljón skópara, merkt XI8 Reykja-
vík.
XI8 skór em nú seldir í 34 löndum í
fimm heimsálfum. Sala fyrirtækisins
nam í fyrra hátt á annaðhundrað
milljónum og áætluð sala á þessu ári
er 430 milljónir. XI8 hannar yfir
fjömtíu gerðir af skóm, sem fram-
leiddir em í Kína, dreift um allan heim
og er fyrirtækið þegar orðið leiðandi í
skótískunni. Hjá X18 í Reykjavík
starfa 14 manns við hönnun, markaðs-
setningu og skipulag dreifmgar, ungt
fólk með frískar hugmyndir og hefur
lagt hart að sér til að ná þeim
markmiðum sem fyrirtækið hefur sett
sér. Tugir umboðsmanna starfa um
allan heim. Á næstu þremur ámm er
gert ráð fyrir að stöðugildum XI8 í
Reykjavík muni fjölga um 40.
Óskar Axel segir að með innkomu
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins hafi
verið mögulegt að komast eins langt
og raun ber vitni en sjóðurinn keypti
nýverið hlutafé fyrir 75 milljónir
króna. Á fyrstu þremur mánuðum
þessa árs hefur fyrirtækið náð
söluaukningu upp á 416% sem er
ótrúleg tala og ekki gert ráð fyrir að
sama aukning haldist út árið. Óskar
Axel segir að hjá XI8 hafi sannast
áþreifanlega að það sé mannauðurinn
sem mestu máli skiptir og þama sé
verið að gera þekkingu og dugnað að
verðmætum.
SKÓFJÖLSKYLDA: Hjónin Sigríður Sigurðardóttir og Óskar, foreldrarnir Axel Ó. Lárusson og
Sigurbjörg Axelsdóttir sem reka hafa rekið Axel Ó í Vestmannaeyjum í rúm 40 ár og Adolf og Heiða
Ragnarsdóttir kona hans. Afskipti fjölskyldunnar af skóviðskiptum hófust árið 1877.
FRETTIR
Útgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent eht. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481 -3310. Myndriti: 481 -
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www. eyjar. is/~f retti r.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.