Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Side 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 8.júní 2000 • 23. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293
MIKIL fimleikasýning var á vegum Fimleikafélagsins Ránar og voru þessar „kisur“ meðal sýnenda.
Hvert er vísindastarf Hafró?
Tillögur fiskifræðinga um afla næsta árs mikið áfall
Hyllir
undir
nýjan
íþróttasal
Bæjarráð samþykkti í gær að
byggja tvöfaldan íþróttasal við
Iþróttamiðstöðina. Akveðið er að
bærinn tjármagni bygginguna og
verður samið við verktaka-
fyrirtækið Steina og Olla ehf.
Aætlaður heildarkostnaður er
310 milljónir króna.
Bæjarstjóra var falið að ganga til
samninga við Steina og Olla og á
verksamningur að liggja fyrir innan
tveggja vikna. Um leið fellur úr
gildi samningur við fyrirtækið um
viðgerð á gamla salnum.
í samtali við Fréttir sagði Guðjón
Hjörleifsson bæjarstjóri að tveir
kostir hefðu verið í stöðunni, annars
vegar að einkaaðili yrði fenginn til
að byggja salinn og leigja bænum
eða að bærinn byggði salinn sjálfur.
Akveðið var að taka seinni kostinn
því hann kemur betur út peninga-
lega.
Salurinn verður með tvo löglega
keppnisvelli sem hægt er að skilja
að og gert ráð fyrir áhorfenda-
bekkjum fyrir 800 til 1000 manns.
„Eg er mjög ánægður með að
menn skuli hafa náð þessari
lendingu, bæði bæjarfulltrúar og
aðilar innan íþróttahreyfingarinnar,“
sagði Guðjón.
Miðað við fyrri áætlanir verður
salurinn tilbúinn einhvem tímann á
næsta ári.
Fimm ungmenni
í stóru fíkni-
efnamáli
Aðfaranótt laugardags handtók
lögreglan fimm ungmenni, fjóra
karlmenn og eina konu, vegna
gruns um fikniefnamisferli.
Við leit í bíl sem þau voru í fundust
12 E-töflur, við leit á einum hinna
handteknu fundust 2 E-töflur og við
húsleit hjá einum fimm-
menninganna fundust 47 E-töflur og
um 2 gr. af hassi. Þá fundust áhöld
til neyslu fíkniefna. Ungmennin
vom í haldi lögreglu fram á
laugardagskvöld og viðurkenndu
þau fyrir dómi, að hafa neytt E-
taflna. Tveir þeirra viðurkenndu að
hafa átt efnin og ætlað að selja þau.
Málið telst upplýst.
I vikunni birti Hafrannsókna-
stofnun niðurstöður af rannsókn-
um sínum á tiskistofnum við Island
en fram til þessa hafa niðurstöður
rannsókna stofnunarinnar verið
leiðbeinandi fyrir ráðherra við
úthlutun afiaheimilda. Það hefur
oft verið talað um svartar skýrslur
frá Hafró, en þessi skýrsla er að
margra mati með þeim svartari
sem nokkru sinni hafa komið frá
stofnuninni og spyrja menn sig nú
hver um annan þveran hvert hafi
verið vísindastarf Hafró frá því hún
fór að velta fyrir sér ástandi og
stærð fiskistofna við landið. En
tillögur Hafró boða allt að 20%
niðurskurð í þorskaflaheimildum,
auk þess sem einhver skerðing
kemur á allar tegundir utan sfldar,
loðnu og grálúðu.
Kjaftshögg á sjávarbyggðir
Elías Bjömsson formaður Sjómanna-
félagsins Jötuns segir Hafró draga upp
svarta mynd af ástandinu. „Ef farið
verður eftir hugmyndum stofti-
unarinnar þá em þær kjaftshögg á
sjávarbyggðir í landinu. En það er
hins vegar ekki sjálfgefið að ráðherra
fýlgi þessum tillögum að öllu leyti, en
jafnvel þó að ekki komi til nema 10
prósenta skerðing er það engu að síður
áfall. Það hefur verið farið meira og
minna eftir tillögum Hafró síðan 1983
og mér sýnist að menn ættu að lesa
bækur sínar betur.“
Aætlanir miðuðu við aukningu
aflaheimilda
Binni í Vinnslustöðinni sagði tíðindin
úr herbúðum Hafró skelfilegar.
„Þegar við vomm að gera okkar
áætlanir fyrir tveimur til þremur
mánuðum vonuðumst við eftir 5 til 10
prósenta aukningu í þorski fyrir næsta
fiskveiðiár, en ef ráðherra fer eftir
þessum tillögum nú má búast við 10
til 20 prósenta lækkun. Það sjá það
allir að þetta lítur ekki vel út og ljóst
að við verðum að endurskoða allar
okkar áætlanir. Miðað við 20
prósenta skerðingu gera það tæplOOO
tonnum minni afla á þorski."
Binni sagði að vonast hefði verið til
þess að með sameiningunni við Gandí
að heildarþorskafli yrði tæp 5000
tonn. „Þetta hefur áhrif á allan rekst-
urinn. Við urðum að draga saman
seglin á sínum tíma en áætlanir okkar
nú miðuðu við aukningu aflaheimilda.
Það má segja að þeirri uppbyggingu
sem við náðum með sameiningunni
við Gandí hafi verið kippt undan
okkur, en engu að síður hefðum við
staðið ver án sameiningarinnar í ljósi
þessara tíðinda. Við erum með fleiri
skip en jafn mikinn þorsk til þess að
veiða," sagði Binni
Mótsagnir í útreikningum
Magnús Kristinsson framkvæmda-
stjóri Bergs-Hugins segir skýrslu
Hafró kolsvarta og að hún slái
útgerðarmenn út af laginu. „Þráttfyrir
varúðarsjónarmið í skýrslunni eru
mótsagnir í útreikningunum, miðað
við að farið verði í fulla skerðingu
niður í 203 þúsund tonn sem boðuð
er. Þó leyft yrði að veiða sama magn
og á síðasta árið eða 250 þúsund tonn
yrði áframhaldandi uppbygging í
þorskstofninum, þar sem hrygningar-
stofninn skerðist ekki það mikið.
Varðandi ufsa- og ýsustofninn er
ekkert tilefni til skerðingar. Ufsi er
flökkustofn og mjög erfitt að mæla
hann af þeim sökum. Ysugengd hefur
aldrei verið meiri og menn verið að
veiða meira en úthlutað hefúr verið,
þannig að mér er þetta óskiljanlegt.“
A næsm vikum mun verða áfram-
haldandi viðræður um þessa skýrslu
og að öllum líkindum mun koma
fiskifræðingur frá Haffó og ræða efni
skýrslunnar við útvegsbændur.
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferöir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
4$>}Herjólfur
Sími 481 2800 - Fax 481 2991