Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Blaðsíða 2
2
Frcttir
Fimmtudagur 8. júní 2000
frettir
Líkamsárásírog
innbrot
Tvær kærur vegna líkamsárásar
lágu eftir Sjómannadagshelgina og
áttu þær báðar sér stað aðfaranótt sl.
sunnudags.
Önnur árásin átti sér stað við
Brekkugötu þar sem ráðist var á
mann og honum veittir töluverðir
áverkar.
Hin árásin átli sér stað í Týs-
heimilinu og var kona sem var að
skemmta sér þar slegin þannig að
hún féll í gólfið. Mun hún hafa
hlotið nokkra áverka í andliti. Ekki
er Ijóst hver árásarmaðurinn er og
er árásarmaðurinn hvattur til að
gefa sig fram við lögreglu. Þá eru
vitni að árásinni hvött til að setja sig
í samband við lögreglu.
Eitt innbrol var tilkynnt eftir
helgina en brotist hafði verið inn í
Gullbcrg VE og þaðan stolið tölvu-
leikjum og ýmsu öðru lauslegu.
Ekki er vitað hver þama var að
verki og óskar lögreglan eftir upp-
lýsingum varðandi grunsamlegar
mannaferðir á hafnarsvæðinu um
helgina.
Bruggverksmiðju
lokað
Alls voru 192 færslur í dagbók
lögreglu í sl. viku sem em fleiri en í
sl. viku. Töluverður erill var hjá
lögreglu í sl. viku. Á miðviku-
daginn í sl. viku lagði lögreglan
hald á gambra og bmggverksmiðju
í húsi hér í bæ. Var þama um að
ræða um 50-70 lítra af gambra.
Girðingarniðurrifí
rannsóknhjá
lögreglu
Sl. föstudag var lögð fram kæra
vegna niðunifs á girðingu í
Hetjólfsdal og töldu eigendur girð-
ingarinnar að starfsmenn Vest-
mannaeyjabæjar væm að fremja
ólöglegt athæfi með því að taka
niður girðinguna. Starfsmenn
bæjarins töldu sig hins vegar vera í
rétti. Málið er írannsókn.
Árekstur í höfnínní
Sl. föstudag var tilkynnt um að
árekstur hafi orðið með Hafemi VE
og Brynjólfi Ár í Friðarhöfn. Þama
hafði Brynjólfi ÁR verið bakkað á
Hal'örn VE og urðu töluverðar
skemmdir á Haferni VE. Ekki er
ljóst hver orsök árekstursins er.
Eldur í fískikörum
Sama dag var tilkynnt um eld í
fiskikömm og timbri við Strandveg
43. Slökkviliðið var kallað á vett-
vang og gekk greiðlega að slökkva
eldinn. Ekki varð tjón á bygg-
ingum en grindverk og annað
lauslegt var fyrir tjóni.
Innbrotí
íbróttamiðstöðina
Aðfaranótt miðvikudags var til-
kynnt um innbrot í íþrótta-
miðstöðina. Farið var inn um
glugga og síðan inn í afgreiðslu þar
sem skiptimynt að upphæð kr.
10.000 var stolið. Ekíd er vitað
hver var þarna að verki og óskar
lögreglan eftir upplýsingum um
gmnsamlegar mannaferðir við
húsið þessa nótt.
Greinargerð bæjarstjóra til
eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga:
Fegrar myndina
-segja fulltrúar minnihlutans
Greinargerð bæjarstjóra til eftir-
litsnefndar með fjármálum
sveitarfélaga var til afgreiðslu í
bæjarstjórn í síðustu viku.
Minnihlutinn fullyrti að bæjarstjóri
hefði dregið upp óraunhæfa mynd
af stöðu bæjarins en meirihlutinn
svaraði með því að segja að
greinargerðin væri unnin upp úr
reikningum bæjarins.
„Greinargerðin ber þess merki að
bæjarstjórinn reynir að fegra íjárhags-
stöðu bæjarfélagsins og villa um fyrir
nefndinni um hina raunverulegu
ijárhagsstöðu. Þá er farið mjög al-
mennum orðum um að ástandið sé
nokkuð gott, þjónustustigið hátt og þar
fram eftir götum án þess að það sé
skýrt nánar. Slíkar yfirlýsingar em
engin nýjung og koma ekki á óvart.“
sagði í bókun minnihlutans.
„Það sem alvarlegast er í greinar-
gerð bæjarstjóra er hins vegar það að
ekki er til framtíðar gert ráð fyrir
breytingum sem gætu leitt til betri
hags fyrir bæjarfélagið. Þannig er
ekki vikið að grundvallarforsendum
þess að hér verði vöm snúið í sókn,
nefnilega nýjum vinnubrögðum og
hugsanagangi og stórfelldri uppbygg-
ingu í atvinnumálum. Meðan bæjar-
stjóri og meirihluti bæjarstjómar gerir
sér ekki grein fyrir þessum stað-
reyndum er því miður ekki mikils að
vænta,“ sagði minnihlutinn einnig í
bókun sinni og áskildi hann sér allan
rétt til að fjalla nánar um skýrslu
bæjarstjóra ef þeim þykir ástæða til.
Meirihlutinn bað um fundarhlé og
að því loknu lagði hann fram
eftirfarandi bókun. „Við viljum árétta
að svar bæjarstjóra til eftirlitsnefndar
er unnið upp úr reikningum bæjarins
og öðmm opinberum gögnum. Jafn-
framt viljum við harma málflutning og
bókun fulltrúa V-listans um að hér sé
verið að fegra eða blekkja eftirlits-
nefndina."
Sjómannadagsblaðið:
Að búa til sápu eftir þörfum
Út er komið Sjómannadagsblað
Vestmannaeyja, fjölbreytt að efni
að vanda. Þetta er fimmtugasti
árgangur blaðsins og ekki annað að
sjá en að blaðið eldist vel og sé í
góðum takti við tímann.
Sá góði klerkur séra Kristján
Bjömsson ritar eina ágæta hugvekju
sem hverjum manni er hollt að velta
fyrir sér þá haldið er á brott, hvort
heldur á sjó eða annarra erinda að
heiman. Og úr því að vígðir menn em
nefndir til sögunnar er rétt að geta
ágætrar greinar eftir séra Bám
Friðriksdóttur, hvar hún reifar störf
kvenna á útvegsbændaheimilum í
Vestmannaeyjum, vekur þar nokkra
eftirtekt að á sumum heimilum hafi
verið búnar til sápur eftir þörfum.
Gunnar Ármann Eyjólfsson,
skólameistari Stýrimannaskólans
skrifar ítarlega og skemmtilega grein
um Þjóðverja á íslandsmiðum og
rekur hann söguna allt frá því um
1500. Pálmi Magnússon skrifar grein
sem hann nefnir um borð í 20 þúsund
tonna verksmiðjuskipi og greinir vel
frá þeim miklu breytingum sem orðið
hafa á fiskveiðum og útgerð. Amþór
Helgason skrifar einnig grein um
útgerð Helga Benediktssonar og svo
mætti lengi telja fjölbreytt, fróðlegt og
skemmtilegt efni blaðsins. Að vanda
er svo látinna minnst í blaðinu. Fjöldi
ljósmynda er og í blaðinu ffá fyrri tíð
og allt til nútíma. Á kápu blaðsins er
skemmtileg vatnslitamynd sem sýnir
lítinn bát í greipum Ægis eftir Gunnar
Þór Friðriksson skipstjóra á Hafemi
VE, góð og lýsandi mynd sem hæfir
vel efni blaðsins. Ritsjóri
Sjómannablaðs Vestmannaeyja er
Ásmundur Friðriksson.
Sjómannadagsblaðið var brotið um
í Eyrúnu en prentað í Odda í
Reykjavík.
Bronkóar og grindjánar
Síðastliðinn föstudag hélt starfsfólk leikskólans Rauðagerðis dulitla upplyftingarhátíð og óvissuferð ásamt
mökum, vinum og velunnurum. Til þess að gera daginn sem eftirminnilegastan brugðu þau sér í gervi
índjána og kúreka, og hvað er þá betur við hæfi en að bregða sér á hrossabúgarð, þar sem þessi mynd er
tekin af starfsfólkinu á hrossaréttargirðingu í miklu stuði ásamt Magga Kristins hrossabónda með meiru.
fréttir
Skrifstofa iafnréttis-
málatilEyja?
Eftirfarandi tillaga barst frá Vest-
mannaeyjalistanum á síðasta
bæjarstjómarfundi:
„Bæjarstjóm Vestmannaeyja
samþykkir að óska eftir því við
félagsmálaráðherra, þar sem ákveð-
ið hefur verið að fiytja skrifstofu
jafnfréttismála út á land, að skrif-
stofan verði staðsett í Vest-
mannaeyjum."
Tillagan var samþykkt með sjö
samhljóða atkvæðum.
Antares gleymdist í
ölluatinu
Stjóm Sjómannadagsráðs vildi
koma á framfæri afsökunarbeiðni,
en í hita skipulagningar vegna
Sjómannadagsins gleymdist að geta
þess að áhöfn og útgerðaraðilar
Antares VE 18 fengu viður-
kenningu Siglingastofnunar fyrir
góða framkvæmd á öryggisreglum
og góða umhirðu skips. Sjó-
mannadagsráð biðst velvirðingar á
þessum leiðu mistökum, en
strákamir í áhöfninni munu fá smá
glaðning frá Sjómannadagsráði í
sárabætur.
Syn svnir í kuöld
Þeir sem misstu af herlegheitunum
á laugardaginn geta bætt sér það
upp í kvöld því eftir klukkan átta
er hálftíma þáttur um það sem
gerðist í Eyjum um helgina.
KFSdottiðútúr
bikarnum
KFS mætti á þriðjudagskvöldið
Fjölnismönnum í leik um hvort
liðið kæmist í 32ja liða úrslit
bikarkeppninnar og mætti
Datvíkingum þar, en þar leika
einmitt tveir Eyjapeyjar þeir Jón
Helgi Gíslason og Magnús
Elíasson. Þrátt fyrir töluverða
yfirburði í leiknum þá voru það
gestimir sem vom yfir í hálfleik 0-
1. Fjölnismenn bættu svo öðm
marki við rétt áður en Þorsleinn
Þorsteinsson varamaður náði að
minnka muninn fyrir KFS og þar
við sat, 1 -2 fyrir Fjölni.
Dregið í 32ja líða
úrslitunum
Á þriðjudaginn var dregið í 32ja
liða úrslitum bikarkeppni Coca
Cola og KSÍ. ÍBV þarf að ferðast
suður með sjó í Garðinn þar sem
þeir mæta Víðismönnum þann 14.
júní. Ungmennalið ÍBV mætir
hinsvegat' Frömurum hér í Eyjum
daginn eftir, þann 15. júní.
FRETTIR
Utgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Omar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Tuminum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.