Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Side 22

Fréttir - Eyjafréttir - 08.06.2000, Side 22
22 Fréttir Landa- KIRKJA - lifandi samfélag! Fimmtudagur 8. júní: Kl. 14:00. Útfararguðsþjónusta Lovísu Guðrúnar Guðmundsdóttur. Kl. 16:00-18:00. Æfing hjá Litlurn lærisveinum í Safnaðarheimilinu. Föstudagur 9.júní: Kl. 14:00. Utfararguðsþjónusta Sigurbjargar Magnúsdóttur. Kl. 16:00. Æfing hjá Litlum læri- sveinum á prestsetrinu að Hóla- götu 42. Hvítasunnudagur 11. júm': Kl. 11:00. Guðsþjónusta og molasopi á eftir. Haldið verður upp á stofndag kristinnar kirkju. Gestaorganisti er Smári Ólason. Fermingarböm fyrri hvítasunnu- tíðar sérstaklega velkomin. Sóknarprestur. Miðvikudagur 14. júní: Kl. 11:00. Helgistund í Hraun- búðum. Allir hjartanlega velkomnir. Kl. 20:00. Opið hús unglinga í KFUM&K húsinu við Vest- mannabraut. Nánari upplýsingar um æskulýðsgönguna á kristnihátíð á Þingvöllum 30. júní. Fimmtudagur 15. júní: Kl. 14:30. Helgistund á Heil- brigðisstofnun Vestmannaeyja, í dagstofu á 3. hæð. Heimsóknar- gestir hjartanlega velkomnir. Hvíta- SUNNU- KIRKJAN Fimmtudagur Kl. 20:30 Biblíulestur Föstudagur Kl. 20.30 Unglingasamkoma. Laugardagur Kl. 20:30 Brotning brauðsins Sunnudagur Samkoma Allir velkomnir í Hvítasunnukirkjuna. Aðvent- KIRKJAN Laugardagur lO.júní Kl. 10.00 Biblíurannsókn. Allir hjartanlega velkomnir. Biblían talar simi 481-1585 Fimmtudagur 8. júní 2000 Knattspyrna, Landssímadeild karla: IA 0 - IBV 0 Vantar stóðusleika í fimmtu umferð Landsíma- deildarinnar mættu Eyjamenn liði IA uppi á Akranesi. Leikurinn átti að fara fram á mánudeginum, en vegna veðurs var honum frestað um einn dag. Leikmenn og forráðamenn IBV voru allt annað en ánægðir með vinnu- brögð KSÍ, enda var vitað um há- degisbil að ekki væri hægt að leika knattspymu uppi á Skaga. En leikurinn fór hins vegar fram á þriðju- dagskvöldið og endaði með marka- lausu jafntefli. ÍBV hefur sjaldan sótt gull í greipar Skagamanna uppi á Skaga og ekki varð breyting þar á. Fyrri hálfleikur var illa leikinn af báðum liðum og ótrúlegt að sjá hversu mikill munur var á leik IBV frá því í síðasta leik gegn Keflavík. Liðin skiptust á að sækja, en heldur voru Skagamenn beittari framan af. Á 13. mínútu dæmdi slakur dómari leiksins vítaspymu á lið IBV og var erfitt að sjá af hverju, en Birkir Kristinsson varði vítaspymuna glæsi- lega og réttlætinu þar með fullnægt. Momir Mileta átti hinsvegar hættulegt skot að marki úr aukaspymu rétt fyrir leikhlé en boltinn strauk slána. ÍBV byrjaði með látum í seinni hálfleik og fóm fjölmargir áhorfendur á bandi IBV að sjá fyrir sér fyrsta mark ÍBV í leiknum. Þrátt fýrir mikla yfirburði tókst ÍBV ekki að skapa sér almennileg færi, ekki fyrr en þremur mínútum fyrir leikslok að Jóhann Möller, sem var nýkominn inn á sem varamaður fékk boltann á vítateig og var allt í einu einn á móti markmanni. En hann var of lengi að átta sig á tækifærinu og markvörður Skaga- ÍA 0- ÍBV 0 ÍBV Birkir Kristinsson, Hjalti Jóhannesson, Hlynur Stefánsson, Kjartan Antonsson, Baldur Bragason, Momir Mileta, Hjalti Jónsson, Goran Aleksic, Ingi Sigurðsson, Steingrímur Jóhannesson og Allan Mörköre. Varamenn sem komu inná: Páll Guðmundsson fyrir Goran, Bjami Geir Viðarsson fyrir Baldur og Jóhann Möller fyrir Allan. Mörk: Engin manna hirti boltann af tánum á honum. Leikurinn endaði því með 0-0 jafntefli sem verða líklega að teljast nokkuð sanngjöm úrslit. Ingi Sigurðsson sagði eftir leikinn að ÍBV þyrfti að einbeita sér að þvr' að leika vel tvo leiki í röð. „Þetta var lélegt hjá okkur, sérstaklega r fyrri hálfleik en aðeins skárra í þeim seinni. Á laugardaginn fær ÍBV lið Leift- urs í heimsókn í Landssímadeild karla og hefst leikurinn 14.00. Knattspymudeild IB V ætlar að hafa FJÖLSKYLDUSTEMMNINGU : kringum leikinn og verður með sérstakt miðatilboð í gangi fyrir fjölskyldufólk. Ef mamman eða pabbinn kaupir miða á leikinn fá makinn og bömin frítt inn. Leiktæki verða við Týsheimilið meðan á leiknum stendur þar sem krakkamir geta leikið sér á meðan foreldramir Mér fannst liðið bara ekki berjast nógu mikið og hálfgert andleysi í þessu en við verðum hinsvegar að læra það að spila vel tvo leiki í röð. En ég er mjög ósáttur við að fara héðan ofan af Skaganum með aðeins eitt stig, mér fannst við eiga að fara með þau öll." horfa á leikinn. Athygli er vakin á því að hér er aðeins um tilboð að ræða á þennan eina leik í sumar. Að leik loknum verður boðið upp á grillaðar pylsur og drykki við Týs- heimilið þar sem stuðningsmenn ÍBV og bæjarbúar geta m.a. heilsað upp á leikmenn ÍBV og rætt við þá í návígi. Vestmannaeyingar em hvattir til þess að fjölmenna á leikinn á laugardaginn og taka þátt í fjölskyldustemmn- ingunni. Knattspyrna: Leikurinn á laugardaginn Fjölskyldutilboð ÍBV Fimleikar: Vestmannaeyjameistaramótið Unst afreksfólk sem á framtíðina ffyrir sér Vestmannaeyjameistaramótið í fimleikum var haldið þann 27. maí síðastliðinn. Mótinu var skipt í tvo hluta. í fyrri hlutanum var keppt í 1. og 2. þrepi eldri og og yngri en í seinni hlutanum í 3. og 4. þrepi. Það er um mótið að segja að það bar vitni öflugu starfi Ránar og var gaman að sjá hvað félagið á orðið breiðan hóp af góðum og efnilegum fimleikamönnum. Hrönn Róbertsdóttir yfirþjálfari sagði að þessi krakkar ættu örugglega eftir að láta til sín taka í fimleikum í fram- tíðinni. Úrslit urðu þessi: l.þrepfædd 1991 til 1992 Vestmannaeyjameistari var Sigur- björg Jóna Vilhjálmsdóttir, 2. Birgitta Ósk Valdimarsdóttir og 3. Herdís Gunnarsdóttir. 1. þrepfœdd 1986 til 1990 Vestmannaeyjameistari Alexandra Sólbjartsdóttir, 2. Kristjana Sif Högnadóttir og Nína Björk örsladóttir og 3. Ema Georgsdótdr. 2. þrep fœdd 1990 til 1991 Vestmannaeyjameistari Kristrún Ósk Hlynsdóttir, 2. Kristín Rannveig Jóns dóttir og 3. Jakobrna Rós Björgólfs- dóttir. 2. þrepfœdd 1986 til 1989 Vestmannaeyjameistari Ema Sif Sveinsdóttir, 2. Margrét Rut Halldórs- dóttir og 3. Berglind Benediktsdóttir. 3. þrep Vestmannaeyjameistari Stefanra Þor- steinsdóttir, 2. Tanja Björg Sigur- jónsdóttir og 3. Alma Guðnadóttir. 4. þrep Vestmannaeyjameistari Þórsteina Sigurbjömsdóttir, 2. Ama Björg Sigurbjömsdóttir og 3. Anna Kristín Magnúsdóttir. KRISTÍN Rannveig Jónsdóttir fékk Ránarstyttuna fyrir besta árangur á árinu. Kristrún Ósk Hlynsdóttir fékk Kristbjarg- arbikarinn en hann er veittur efnilegasta einstaklingnum. ÞÓRSTEINA, Stefanía, Erna Sif og Kristrún Ósk.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.