Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Page 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 27. júlí 2000 * 30. tölublað * Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 * Fax: 481 1293
Lilja Björg er Sumarstúlka Vestmannaeyja
Lilja Björg Arngrímsdóttir var valin Sumarstúlka Vestmannaeyja 2000 á
Höfðanum á laugardagskvöldið. Þórey Jóhannsdóttir var kjörin
Ijósmyndafyrirsætan 2000 og íris Dögg Konráðsdóttir var valin vinsælasta stúlkan
af stúlkunum í keppninni. Alls tóku sjö stúlkur þátt í keppninni og stóðu þær sig
allar með prýði.
Nánar er sagt frá keppninni á blaðsíðum 20, 21, og 15.
Stafkirkjan
afhent og vígð
Eyjamenn hvattir til að fjölmenna
Stafkirkjan í Vestmannaeyjum
verður afhent og vígð sunnudaginn
30. júií, en kirkjan er þjóðargjöf
Norðmanna til Islendinga í tilefni
þúsund ára kristnitökuafmælis á
Islandi. Athöfnin fer fram á vegum
forsætisráðuneytis en Davíð Odds-
son, forsætisráðherra, tekur við
þjóðargjöfinni.
Kirkjan stendur við Hringskersgarð á
Skanssvæðinu, sem lagfært hefur
verið fyrir vígsluna og tekið til
gagngerðrar endurbyggingar. Bisk-
upinn yfir íslandi, herra Karl Sigur-
bjömsson, vígir stafkirkjuna, m.a.
með aðstoð Eyjapresta og fleiii presta.
Dagskráin hefst kl.13:20 með hljóð-
færaleik Lúðrasveitar Vestmannaeyja
og skrúðgöngu frá Skansvirkinu til
kirkju. Þar verður kirkjan afhent við
hátíðlega athöfn utan dyra og vígslan
hefst í framhaldi af því. Þar sem
kirkjan rúmar aðeins um 50 gesti
verður hátalarakerfi á svæðinu til að
allir geti fylgst með vígslunni.
Meðal hátíðargesta em Haraldur
Noregskonungur og Sonja drottning,
forseti íslands, norskir ráðherrar og
íslenskir og fjöldi annarra gesta. Að
lokinni vígslu kirkjunnar heldur
hátíðardagskráin áfram utan dyra.
Bæjarstjórn mót-
mælir útboði Herjólfs
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur
mótmælt fyrirhuguðu útboði
Vegagerðarinnar á rekstri Herjólfs.
Þetta var tekið fyrir á síðasta fundi
bæjarstjómar og em forsendur mót-
mælanna taldar í eftirfarandi liðum:
Ekki sé um rekstrarlega hagkvæmni
að ræða á þann hátt að spamaður náist
án þess að þjónustan skerðist.
Ekki sé nauðsynlegt að fram fari
útboð vegna fjölþjóðlegra samninga.
Siglingaleiðin sé það sértæk og hafi
mikla búsetulega þýðingu fyrir búsetu
í Eyjum.
Ekki liggi ljóst fyrir hvort stjóm
Herjólfs hf. muni ganga til samninga
um leigu á landgöngumannvirkjum
sem em þinglesin eign félagsins.. Af
hálfu eigenda gætu komið til
þvingandi aðgerðir til að ná fram
leigusamningi um mannvirkin.
Ekki sé ágreiningslaust að Heijólfur
hf. geti tekið þátt í útboðinu og annast
rekstur skipsins vegna eignaraðildar
ríkis og bæjar sem eiga um 97% af
hlutafé félagsins.
Þá segir í ályktun bæjarstjómar að
aflað hafi verið lögfræðiálita vegna
framangreindra atriða að einhverju
leyti. Þrátt fyrir það ríki enn vafi um
framkvæmdaþætti málsins. Því
leggur bæjarstjóm áherslu á að
útboðið fari ekki fram á þessum tíma.
Ennfremur segir að íbúaþróun hafi
ekki verið jákvæð í Vestmannaeyjum
á liðnum missemm og íbúum farið
fækkandi. Það sé vemlegt atriði að
forsvarsmenn rekstraraðila skipsins
búi í bænum meðal þeirra farþega sem
mest noti skipið.
Þá segir að lokum í ályktun
bæjarstjómar að Hetjólfur sé eina
feijan hérlendis sem 'haldi uppi
samgöngum við byggða eyju þar sem
áherslan liggi í flutningi á farþegum
og fólksbílum. Aðrar feijur, sem
styrktar séu af almannafé, Ieggi meiri
áherslu á vöruflutninga.
Undir þessi mótmæli skrifa allir
bæjarfulltrúar Vestmannaeyjabæjar.
- á ðttum sviðum!
TM-ÖRYGGI FYRIR Bílaverkstædid Bragginn s.f. ——. Réttingar og sprautun -
FJÖLSKYLDUNA Flötum 20 - Sími 481 1535
Sameina' öll trygg'ngairiálin Viðgerðir og smurstoð
r,:. áeinfaldanog ll, Flötum 20 - Sími 4813235
hagkvæman bátt
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferðir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
Herjólfur Sími 481 2800 - Fax 481 2991