Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Síða 2
2 Fréttir Fimmtudagur 27. júlí 2000 Níu mánaða uppgjör Vinnslustöðvarinnar Afkoman batnaði um hálfan milljarð milli ára Tekjur hafa dregist saman en rekstrargjöld lækkað stórlega - Framlegð jókst úr 6% í 21,7% mál 149 færslur voru í dagbók lögreglu í síðustu viku sem er ívið meira en í vikunni þar á undan. Lögreglu- menn segja að rólegt sé yfir bæjarlífmu og lítið urn alvarleg mál. Þjóðhátíð sé að nálgast og hugurinn líklega bundinn við undirbúning hennar. Datt af lyftara Eitt vinnuslys var tilkynnt lögreglu í vikunni. Gerðist það þannig að manni var lyft upp á lyftara og stóð hann á bretti sem sett hafði verið á gafflana. Féll hann af brettinu til jarðar með þeim afieiðingum að hann missti meðvitund. Að sögn lögreglu hel'ur nokkuð borið á því gegnum tíðina að menn nenni ekki að hafa fyrir því að nota tilskilinn öryggisbúnað við vinnu sína. Oft sleppa menn með skrekk- inn og slys hljótast ekki af. En ef eitthvað gerist þá þarf ofl lítið til svo að alvaran biilist og varanlegur skaði hljóúst af, jafnvel dauði. Lögreglumenn segjast oft hafa séð í sínu starfi, þar sem komið hefur verið að alvarlegu slysi, að grátlega lítið hefði þurft til að draga úr alvarlegum afleiðingum þess, jafn- vel koma alveg í veg fyrir það. Rúðubrot við gæsluvöll I vikunni var tilkynnt um rúðubrot á gæsluvellinum við Miðstræli. Ekki er vitað hver þar var að verki og biður lögregla þá að hafa samband sem veitt gætu einhverjar upp- lýsingar. Skemmdarverk á girðingum Tvívegis var í vikunni tilkynnt um skemmdir á girðingum suður á eyju. Vom girðingarnar klipptar sundur svo að búfé átti greiða leið út úr þeim. Ekki er vitað hverjir þarna voru að verki né hverjar livatir þar liggja að baki. Eini úlgangurinn með þessu virðist vera sá að sverta enn meira ímynd þeirra tómstundabænda sem yrkja eyjuna. Lögregla biður þá að hafa samband sem veitt geta upplýsingar um jretta mál auk þess sem þeim tilmælum er beint til þeirra, sem þarna vom að verki, að láta af þessari iðju sinni. Hjálmlaus á reiðhjólum Aðeins voru sex bókanir í dagbók lögreglu vegna umferðar og þar af tveir ökumenn sem kærðir vom l'yrir að fara ekki að lögum og reglum. Er þetta óvenju lítið og kann lögregla því hið besta. Aftur á móti hafði lögregla í nokkrum tilvikum afskipú af bömum á reiðhjólum án þess að vera með hjálm. Vill lögregla ítreka fyrir foreldrum nauðsyn þess að bömin noti hjálma, ekki aðeins vegna þess að það er skylda, heldur sjálfra þeirra vegna. Það er með reiðhjólaslysin eins og önnur slys, þau verða ekki aftur tekin. Afkoma Vinnslustöðvarinnar hf. fyrstu níu mánuði yfirstandandi rekstrarárs var betri en gert var ráð fyrir í endurskoðuðum áætl- unum frá því í mars sl. Þegar á heildina er litið var tæplega 53 milljóna kr. hagnaður á rekstrinum en á sama tímabili í fyrra var 583 milljóna króna tap. Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrstu níu mánuði rekstrarársins var um 53 milljónir kr. samanborið við 445 milljón kr. tap á sama tímabili í fyrra. Afkoma fyrirtækisins er því 499 miljónum króna betri nú en á sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur félagsins eru á þessu tímabili 1.870 millj. kr. en voru á sama tíma í fyrra 1.977 millj. kr. Sviptur Á fundi bæjarstjórnar, sl. fimmtu- dag, var samþykkt samhljóða að svipta veitingahúsið Lundann rekstrarleyfi í einn dag, þ.e. föstudaginn 11. ágúst og aðfaranótt laugardags. Á sarna fundi var tekin fyrir umsókn Jóns Inga Guð- jónssonar, veitingamanns á Lund- anuni um lengingu á afgreiðslutíma áfengis en því erindi synjað. Jón Ingi segir að þessi svipúng á rekstrarleyfi í einn dag, föstudaginn Tekjurnar hafa því dregist saman um rúmlega lOOmilljónirkr. Afturámóti dragast rekstrargjöld vemlega saman, em nú 1.464 millj. kr. en voru í fyrra 1.859 millj. kr. og hafa dregist saman um tæplega 400 milljónir kr. Framlegð rekstrar félagsins jókst um 288 milljónir kr., fór úr 6% í fyrra í 21,7% nú, þrátt fyrir að hátt gengi íslenskrar krónu og lágt gengi evm hefði haft neikvæð áhrif á vetrarvertíð þegar framleiðsla og sala er í hámarki. Framlegð uppsjávarveiða og vinnslu var lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir en framlegð bolfiskvinnslu og veiða hins vegar betri en gert var ráð fýrir. Ástæðan fyrir birtingu þessa níu mánaða uppgjörs er yfirlýsing stærstu hluthafa Vinnslustöðvar og Isfélags eftir þjóðháúð, sé til komin vegna þess að sér hafi ekki alltaf tekist að koma gestum Lundans út fyrir kl. 3.30. Þetta sé refsingin fyrir að fleygja ekki gestum á dyr fyrir þann tíma. „Annars staðar er leyft að hafa opið lengur, t.d. á Reykjavíkursvæðinu en hér verður að skella í lás á ákveðnum tíma. Mér finnst óréttlátt að mismuna fólki eftir búsetu á þennan hátt. Þetta er svipað og ef ég gerði út bát og væri fyrirskipað að vera kominn í land kl. um sameiningu fyrirtækjanna. Gert er ráð fyrir að framlegðarhluú'al! félagsins verði svipað til loka rekstrarárs, 31. ágúst. Gengislækkun íslensku krónunnar í júní og júlí hefur vemleg áhrif á afkomu félagsins þegar litið er til næstu mánaða og rekstrarársins í heild. Gengistap frá byrjun júní fram í miðjan júlí nemur tæplega 200 milljónum króna. Hins vegar aukast tekjur af afurðasölu við lækkun krónunnar sem dregur úr áhrifum aukins launakostnaðar í kjarasamningunum. Þegar til lengri tíma er litið getur gengisbreytingin styrkt afkomu félagsins á næstu misserum ef ekki fylgir hækkun kaupgjalds og verðlags. fimm á daginn meðan bátar ffá öðmm byggðarlögum mættu vera að til kl. átta á kvöldin. Það þætti ekki réttlátt og mér finnst þetta ekki réttlátt heldur. Eg er mjög sár yfir þessu. Kannski endar þetta með því að ég verð að halda á höfuðborgarsvæðið eins og allir hinir. Ef stefnan er sú að mismuna fólki atvinnulega séð eftir landshlutum þá verður það kannski ofan á,“ sagði Jón Ingi. ÍBV í Evrópukeppni Fimmtudaginn 10. ágúst tekur IBV þátt í UEFA Cup keppninni í knattspymu og mæúr liði Hearts frá Skotlandi á Laugardagsvelli kl. 19.00. Mikill áhugi er fyrir leiknuin og t.d. hafa Skotamir óskað eftir 500 miðum á leikinn til að selja í forsölu. Víst er að Skotamir munu setja mikinn svip bæði á leikinn svo og borgarlífið í Reykjavík dagana fyrir og eftir leik. Gaman væri að Vestmannaeyingar og aðrir stuðn- ingsmenn ÍBV liðsins tækju þátt í stemmingunni á leiknum og fjölmenntu. Forsala aðgöngumiða á leikinn fer fram í Skýlinu hjá Jóa og Svönu og hjá ESSO á Básaskersbryggju. Verð á miðum í forsölu verður 300 kr. fyrir böm og 1000 kr. íyrir fullorðna. Þá mun Herjólfur hf. bjóða upp á pakkaferðir á leikinn og verða þær seldar á afgreiðslu Heijólfs. Fréttatilkynning. Minni botnfiskafli Um síðustu áramót vom kontin 7.073 tonn af þorski á land í Vestmannaeyjum, sem er rúmlega 1000 tonnum minna en á sama tíma í týrra þegar þorskaflinn var 8.304 tonn. Samdráttur er í flestum öðnim botnfisktegundum að því er kernur fram í bráðabirgðatölum Fiskistofu. Lítilsháttar minni afli er í ýsu milli ára, sem fer úr 1538 tonnum í 1425 tonn. Ufsaaflinn er nánast sá sami. var 2554 tonn í ár en er 2581 tonn í fyrra en karfinn fer úr 2234 tonnum í 1892 tonn í ár. í öðmm fisktegundum fer afiinn úr 1751 tonni í 741 tonn og munar þar mestu um gulllax sem fer úr 1108 tonnum í 394 tonnum. Hvarf af vettvangi Ekið var utan í kyrrstæða bifreið sem stóð við sjúkrahúsið og hvaif sökudólgurinn af vettvangi án þess að láta vita af óhappinu. Þetta gerðist einhvern úma á tímabilinu frá kl. 20 á sunnudag fram úl kl. 18 á mánudag. Lögregla óskar eftir upplýsingum um málið. Vantar sjálfboðaliða á lokasprettinn Feikna mikil vinna hefur verið lögð í frágang svæðisins austur við Skans en stafkirkjunefnd óskar eftir sjálfboðaliðum til að leggja síðustu hönd á verkið við hreinsun og frágang milli kl. 10 og 13 á laugardagsmorgunn. Atvinnulausum fækkar Fyrir viku vom atvinnulausir í Vestmannaeyjum 18 talsins en í gær hafði fækkað um íjóra á þeirri skrá og 14 skráðir atvinnulausir. Þetta kernur fram í úlkynningu frá Atvinnumiðlun Vestmannaeyja. Framkvæmdir í Dalnum ganga vel Undirbúningur þjóðhátíðar gengur vel og þegar blaðamaður átti leið inn í Dal síðdegis í gær var nokkur fjöldi léttklæddra kvenna og barna að mála skreytingar á sölubúðirnar í blíðunni. Þema skreytinga í ár er helgað víkingum og landnámi, enda vel við hæfi þegar Leifs nokkurs heppna, víkings og landafundamanns er getið við hvert hátíðlegt tækifæri. FRETTIR I Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481- 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasöiu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. leyfi í einn dag

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.