Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Qupperneq 4

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Qupperneq 4
4 Fréttir Fimmtudagur 27. júlí 2000 Bókvitið 'askana Blindir og bóklausir vita-menn Það er ekki oft sem maður fyllist samúð með þeim sem standa að Vitasmíðinni á Þjóðhátíð. Yfirleitt er maður eins og aðrir þjóðhátíðargestir fullur réttlátrar reiði yfir þeim ósköpum sem „Vitinn" er og sem þar skellur á gestum sem hafa komið í Dalinn til þess eins að skemmta sér. En ég er fullur samúðar með þeim Vitamönnum, Ævari og Geira Múr eða Geiri.is eins og hann kýs að kalla sig þessa dagana. Mér varð skyndi- lega Ijóst hvað það er sem hrellir þá Vitamenn og hefði reyndar átt að gera mér grein fyrir því miklu fyrr. Skýringin er í reynd einföld og liggur í augum uppi. Enginn maður með fulla sjón smíðar óskapnað þann sem Vitinn er. Og þá skilur maður betur máltækið „blindur er bóklaus maður“ því eins og fram kom í bóka- unnendagrein þeirra Ævars og Geira.is þá hafa þeir ekki litið í bók frá því vitasmíðin hófst. Eftir slíka uppgötvun ákvað ég að fyllast samúð í garð þeirra blindu vitagerðarmanna um leið og ekki er annað hægt en að dást að af þeirri skemmtilegu stað- reynd að blindir skuli hafa valist til vitagerðarinnar. Það skýrir líka mjög margt. En sjálfur les ég auðvitað mikið því lestur gerir mann víðsýnan og vitran. Eg hef töluvert dálæti á Stephan King og er nú að lesa bókina Örvæntingu sem er nýjasta bókin og auðvitað fékk ég hugmyndina að því að lesa þá bók þegar mér varð fyrir nokkmm dögum hugsað úl Vitans. Síðan er ég líka að lesa Ævintýrafjallið fyrir son minn Braga og alltaf verður maður jafnsvangur þegar lesnar eru lýsing- amar um allt nestið sem borðað er í sögunni. Ég les helst allar Stephen King bækumar og síðan hef ég einnig gaman að því að lesa um ýmiss konar fróðleik s.s. alda- og árbækumar. Næsta skrefíð er án efa að ráðast í lestur íslenskra skáldverka efúr höfuðskáldin okkar og því langar mig til að skora næst á tengdapabba, Sigurð Georgsson, en ég veit til þess að hann er mikill Laxness unnandi. Að lokum skora ég á alla að mæta í Dalinn og hjálpa til við undirbúning Þjóðhátíðar. Orðspor_______________________ -Engilbert Þorvaldsson (Engli) er með hressari mönnum þó svo að hann sé á 94. aldursári. Á dögunum var hann að ræða við kunningja sína sem oftar og bárust þá árgangamót í tal. Engli upplýsti þá að hann væri að hugsa um að boða til árgangsmóts í sínum árgangi nú á þjóðhátíðinni. Eitthvað þótti viðræðendunum það kyndugt og spurðu Engla hvort tíminn væri ekki allt of knappur til að boða fólk til slíks móts. „Nei, nei,“ sagði Engli og hló við. „Þetta verður fámennt og gott mót, ég er nefnilega einn eftir." - Ásmundur Friðriksson, formaður ÍBV, átti á dögunum samtal við Þórarin V. Þórarinsson, Landssímastjóra, vegna hinnar nýju tækni í beinum útsendingum með Ijósleiðara sem gerir kleift að sýna beint með minni tilfæringum en áður var. Þórarinn sagðist ætla að hafa samband við Asmund síðar og bað hann að gefa sér upp símanúmer sem hann gæti hringt í. „Ég læt þig hafa farsímanúmerið mitt,“ sagði Asmundur. „Það er 695, fyrirgefðu Þórarinn, 1077.“ Héldum allar ró okkar Sumarstúlkukeppnin fór fram á laugardag. Sjálfri keppninni eru gerð skil annars staðar í blaðinu en Eyjamaður vikunnar er sú sem sjálfar stúlkurnar völdu þá vinsælustu I hópnum og vel við hæfi þar sem Eyjamaður vikunnar er vinsæll þáttur i Fréttum. Fullt nafn? íris Dögg Konráðsdóttir. Fæðingardagur og ár? 6. júli 1981. Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Bý með minni yndislegu fjölskyldu á Vesturveginum. Menntun og starf? Búin með grunnskóla og húsmæðraskóla. VinníKÁ. Laun? Gætu verið betri. Bifreið? Bara skórnir mínir. Helsti galli? Get ekki valið úr þeim. Helsti kostur? Ekki heldur. Uppáhaldsmatur? Djúpsteiktur skötuselur. Versti matur? Grænmetissull. Uppáhaldsdrykkur? Appelsin. Uppáhaldstónlist? Úr öllum áttum, ég eralæta á tónlist. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að láta mér líða vel. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að vera ósátt við fólk sem mér þykir vænt um. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Ferðast (og endurnýja göngu- skóna). Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn. Hugsa lítið um stjórnmál. Uppáhaldsíþróttamaður? Hörkukvendið Lára systir. Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Nefndinni. Það erum við félagarnir. Uppáhaldssjónvarpsefni? Friends. Uppáhaldsbók? Dýragarðsbörnin. Svo er ég að lesa Biblíuna núna. Hvað metur þú mest í fari annarra? Að fólk sé hreinskilið og hresst. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Lygi og fýla. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Ásbyrgi er fallegur staður og Kópasker í heild sinni. Var gaman að taka þátt í þessu? Eitthvað það skemmti- legasta sem ég hef gert. Ótrúlega frábært fólk sem kom að þessu. Voru taugarnar alveg í lagi á laugardagskvöldið? Já, þetta var svo góður hópur að við héldum allar ró okkar. Breytir þessi keppni einhverju íþínu lífi? Nei, þetta var bara svo gaman að ég vildi óska að ég gæti tekið þátt í keppninni aftur. Hvað er eftirminnilegast úr keppninni? Kjaftaklúbburinn á æfingum. Ætlarðu á þjóðhátíð? Já, tvímælalaust. Eitthvað að lokum? Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir mig og allar hinar stelpurnar öllum þeim sem komu nálægt þessari keppni og gerðu hana jafn skemmtilega og hún var. Nýfæddir______ ?cr Vestmannaeyingar Þann 16. maí eignuðust Helga Björk Ólafsdóttir og Sigursteinn Leifsson dóttur. Hún vó 18 merkur og var 54 cm að lengd. Hún hefur verið skírð Inga Bima og er hér hægra megin á myndinni í fangi bróður síns Bjöms. Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir. Þann 11. maí eignuðust Bjamey Bjömsdóttir og Þorkell Máni Pétursson son. Hann vó 16 Vi mörk og var 54 cm að lengd. Hann hefur verið skírður Pétur Máni og er hér vinstra megin á myndinni í fangi Asbjöms frænda síns. Ljósmóðir var Margrét Guðmundsdóttir. Fjölskyldan býr í Hafnarfirði. Á döfmrrí 4* 08. -30. júlí Myndlisfarsýning lærðra, leikra og látinna listamanna á vegum Sparisjóðs Vestmanna eyja og Vestmannaeyjabæjar í gamla vélasalnum á homi Græðisbrautar og Vesturvegar 26.-29. júlí Norðulandameistaramótið í golfi haldið í Vesfmannaeyjum. Stór- viðburður. 28.-29. júlí Vestmanneyjameistaramót í frjálsum 30. júlí Vígsla stafkirkjunnar á Skansinum. Fjölbreytt dagskrá. Konungur Noregs afhendir Davíð Oddssyni forsætisráðherra Stafkirkjuna, sem afhendir hana biskupi Islands, Karli Sigurbjömssyni til vígslu, sem afhendir hana nefndinni. Mikið fjör á Skansinum, enda lúðrasveitin inni hjá guði. Allir dagar ársins Fjör í Apótekinu 4. 5. og 6. ágúst Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Ekki gleyma því, Jbó að lúðrasveitin sé úti í kuldanum. 12. ágúst Kókakólamótið í Golfi 12.-13. ágúst Bikarkeppni FRI.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.