Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Síða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Síða 16
16 Fréttir Miðvikudagur 31. maí 2000 Guðrún Erlingsdóttir skrifar Abyrg sam- staða í Dalnum -hátíð í fjallasalnum Nú er rúm vika þar til þjóðhátíð Vestmannaeyja verður sett. Hátíð fjölskyldunnar, hátíð unga fólksins, hátíð þar sem kynslóðabilið er brúað, þar sem öll fjölskyldan frá unga- bömum til ömmu og afa sameinast í þrjá daga í Herjólfsdal, og einnig dagana fyrir þar sem unnið er að undirbúningi þjóðhátíðarinnar svo allt megi nú líta sem best út í tjaldinu og vel sé hægt að taka á móti gestum og gangandi. En þjóðhátíðinni fylgir einnig böl sem mest bitnar á hinum ungu einstaklingum. Þegar neysla áfengis eða vímuefna fer úr hófi þá leysast úr læðingi ýmsar miður góðar hvatir, það gerist einnig hjá allsgáðu fólki, en vínið sem og önnur fíkniefni losa um hömlur og neyslu þeirra fylgir kæruleysi, sem bitnar illa á þeim sem drekka og dópa frá sér ráð og rænu. Líkamsmeiðingar, kynferðisleg áreitni og nauðganir, heimilisófriður og andlegt olbeldi, víst er þetta til staðar allt árið, en hættan er meiri þegar margir safnast saman og áfengi og fíkniefni eru notuð ótæpilega í nokkra sólarhringa. Hvað er til ráða? Áfengis og fíkniefnalaus þjóðhátíð er eitthvað sem ekki verður á næstunni a.m.k. Foreldar gegna lykilhlutverki í lífi barna sinna og ungmenna, úti- vistartímar gilda á þjóðhátið sem og aðra daga. Þeir sem eru yngri en 16 ára mega ekki vera úti eftir miðnætti, en það eru engin tímatakmörk fyrir því hvað unglingar og böm mega vera lengi úti í fylgd forráðamanna. Ung- menni yngri en 18 ára em ekki sjálfráða og því á ábyrgð foreldra sinna, það em foreldramir sem ákveða útivistartímann, það er þeirra skylda og ábyrgð. Við emm heppin hér í Éyjum að hafa útihátíð heima hjá okkur og getum því fylgst með ungmennunum okkar og gripið inn í ef þau em að stefna sér í voða, alla vega reynt að minnsta kosti. Fullorðnir einstaklingar verða að bindast höndum saman um að kaupa ekki vín fyrir ungmenni, bæði vegna þess að það er ólöglegt og svo er einn bjór jafnvel fyrsta skrefið í áralangri baráttu óharðnaðra unglinga í fíkniefnahelvítinu sem sumir komast aldrei útúr og aðrir stórskemmdir, Það em margir foreldrar, ömmur og afar sem hafa þá reglu að neyta ekki áfengis fyrr en eftir miðnætti þegar böm og ungmenni undir 16 ára em farin heim. Þetta er góður siður og ætti að vera sjálfsagður. Eftir miðnætti ætti fullorðið fólk með ráði og rænu að fylgjast svolítið með náunganum, sérstaklega ungu fólki sem hefur ekki tök á að vemda sig sjálft gagnvart þeim hættum sem áður hafa verið nefndar. Unga fólkið er líka vel til þess fallið að vemda hvert annað, t.d. með því að halda hópinn, skilja ekki vini sem dáið hafa áfengisdauða, eftir eftirlitslausa, reyna eftir fremsta megni að standa saman í því að þiggja ekki vímuefni hvaða nafni sem þau kunna að nefnast. Unglingar og fullorðið fólk á að láta vita ef það verður vart við dreifingu og sölu á fíkniefnum í dalnum, eða í bæn- um. Áfengi þ.m.t. bjór em lögleg fíkniefni en hættuleg engu að síður. E- pillur, hass, amfetamín, sýra, kókaín, o.fl. allt em þetta ólögleg fíkniefni og stórhættuleg. Fullorðnir einstaklingar verða að bindast höndum saman um að kaupa ekki vín fyrir ungmenni, bæði vegna þess að það er ólöglegt og svo er einn bjór jafnvel fyrsta skrefið í áralangri baráttu óharðnaðra unglinga í fíkni- efnahelvítinu sem sumir komast aldrei út úr og aðrir stórskemmdir, það er nefnilega þannig að fæstir byrja strax í frkniefnum, heldur í áfengi fyrst og svo þróast þetta út í annað og meira. Þjóðhátíð er hluti af okkar menningararfi, það er okkar allra sem sækjum dalinn heim að sjá til þess að þessi hátíð fari fram í gleði og náungakærleika. Tókum höndum saman og leggjum okkar af mörkum til þess að sem allra flestir komi heilir og sáttir frá hátíðinni í Herjólfsdal. Guðrún Erlingsdóttir Höfundur er foreldri og varaformaðurfélagsmálaráðs Vestmannaeyjabœjar Lúðrasveit Vestmannaeyja: Að gefnu tilefni Happ- drætti 4. flokks ÍBV Dregið var í happdrætti 4. flokks ÍBV hjá sýslumanninum í Vestmannaeyjum þann 25. júlí. Allur ágóði af happ- drættinu rennurtil keppnisferðar 4. flokks í knattspyrnu til Stoke á Englandi. 4. flokkur þakkar stuðninginn en vinningar verða afhentir í Eyjabúð. Vinningsnúmer eru þessi: 1. Vikuferð fyrir tvo til Portúgals 889 2. Innborgun á sólarlandaferð 746 3. Lundaháfur úr Eyjabúð 331 4. Útigrill frá Ellingsen 953 5. GSM farsími Nokia 803 6. Gisting í Hótel Keflavík f. tvo 360 7. Kaffivéi frá Ormsson 981 8. Miðar fyrir tvo á þjóðhátíð 822 9. Myndavél frá Foto 463 10. Skoðunarf. f. tvo til Jóa á Hól 207 (Birt án ábyrgðar) Vegna viðtals í síðustu Fréttum við Ólaf Tý, framkvæmdastjóra þjóð- hátíðamefndar, hafa margir aðilar sett sig í samband við okkur og óskað skýringa. Vill Lúðrasveit Vestmanna- eyja því koma eftirfarandi á framfæri. Fyrir mörgum árum var gert sam- komuleg við þjóðhátíðamefndir Týs og Þórs um þóknun vegna spila- mennsku Lúðrasveitar Vestmanna- eyja á þjóðhátíð. Hefur þóknunin tekið mið af verði aðgöngumiða. Þetta samkomulag hefur haldið og losað báða aðila við samningaþras rétt fyrir þjóðhátíð, en slíkt átti sér oft stað áður fyrr. Ætlun Lúðrasveitar Vest- mannaeyja var að halda sig við þetta samkomulag en þjóðhátíðamefnd fannst samkomulagið ekki ásættanlegt og því náðust ekki samningar. Það getur verið að þjóðhátíðamefnd finnist þjónustan of dýr en Lúðrasveit Vestmannaeyja ákvað að ekki skyldi hvikað frá fyrra samkomulagi og því fór sem fór. Að þessi sinni munu því meðlimir Lúðrasveitar Vestmannaeyja mæta prúðbúnir ásamt fjölskyldum sínum á setningu þjóðhátíðar og njóta þess sem boðið verður upp á og verður það tilbreyting fyrir suma sem ekki hafa prófað það í mörg ár. Að endingu óskar Lúðrasveit Vestmannaeyja þjóðhátíðamefnd og öllum þjóðhátíðargestum gleðilegrar hátíðar og þökkum samvemna á liðnum ámm. Lúðrasveit Vestmannaeyja Lundauppskrifta keppni Frétta og Magga Braga Eins og leseundum er í fersku minni efndu Fréttir og Maggi Braga til lundauppskriftasamkeppni í fyrra sem þótti takast mjög vel. Fjöldi uppskrifta barst, enda ótrúlegir möguleikar sem felast í lundanum reyktum og óreyktum, þegar matreiða skal fuglinn. Markmiðið var að sjálfsögðu að fríska upp á hugmyndaflug þeirra mörgu áhugamatreiðslumanna sem byggja Eyjar. Nú hafa Fréttir tekið höndum saman við Magga Braga á ný og efna til annarrar uppskriftasamkeppni fyrir bragðlaukana að reyna sig við. f verðlaun verður matarkarfa full af ýmsu góðmeti. Uppskriftum skal skila á ritstjóm Frétta fyrir I4. ágúst, en úrslit verða kunngjörð í Fréttum 17. ágúst. Því er nú skorað á alla áhugasama lundasnæðara og aðra þá sem ánægju hafa af frumlegri eldamennsku að senda inn uppskriftir og auðga um leið sælkeraflómna í Eyjum. Hér á eftir fer vinningsuppskrift síðasta árs áhugasömum til glöggvunar. Það var Guðný Þorleifsdóttir sem vann keppnina í fyrra, en hún sendi inn uppskrift að lunda í gráðostasósu: Lundi í gráðostasósu 1 til 2 bréf beikon 15 til 20 nýjar lundabringur smjör (ekki smjörliki) salt svartur pipar I stór gráðostur, eða tveir litlir I peli rjómi 1 ds perur rifsberjshlaup Lundinn er snöggsteiktur í smjörinu. Kryddaður eftir steikingu með salti og pipar. Beikonið brúnað í sama smjöri og lundinn. Allt sett í pott með sjóðandi vatni og krafturinn af pönnunni með. Soðið í 45 mínútur til eina klst. Lundinn látinn kólna í soðinu. Soðið sigtað og fitufleytt. Gráðosturinn settur í og látinn bráðna við lágan hita. Rjóminn settur síðast í sósuna. Lundinn borðaður kaldur með sósu, hvítum kartöflum, pemm, rifsbeijahlaupi og hrásalati. Hrásalat: 1 lambhagasalat, rifið niður 6 til 8 tómatar, gróft brytjaðir Vi agúrka 1 rauðlaukur, smátt saxaður 1 kmkka fetaostur, nauðsynlegt að fetaostkmkkan sé með bláunt miða. Verði ykkur að góðu og gleðilega lundaþjóðhátíð. LUNDINN þykir hið mesta lostæti og ekki skemmir að það þykir karlmennskuíþrótt að fanga hann. eyjafrettir.is FLUGFELAG ISLANDS Sumaráætlun gildir til 1. október Fjórar ferðir á dag Bókanir og upplýsingar um flug í s. 481 3300 www.flugfelag.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.