Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Síða 17

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Síða 17
Fimmtudagur 27. júlí 2000 Fréttir 17 Vígsla stafkirkjunnar á sunnudaginn: Norsku konungshjónin, for- seti Islands, forætisráðherra og biskup verða meðal gesta Kirkjan verður prýdd listmunum, bæði fornum og nýjum Mikið verður um að vera í tengslum við vígslu stafkirkjunnar á sunnu- daginn. Margt fyrirmenna, bæði íslenskra og norskra, verður við- statt vígsluna og má þar nefna norsku konungshjónin, forseta Islands, biskupinn yfir Islandi, ráð- herra frá Noregi og íslandi, þingmenn Suðurlands og bæjar- stjórn Vestmannaeyja. Undirbún- ingur er á lokastigi og er svæðið í kringum Skansinn og hafnargarð- inn, þar sem kirkjan er, að verða hið glæsilegasta. Þarna er Landlyst risin, hlaðnir hafa verið grjótgarðar sem ásamt stígum og hleðslum gera svæðið að skemmtilegt heild. í heild er svæðið einstakt í skjóli Nýja- hraunsins í austri og Heimakletts í norðri. Ami Johnsen alþingismaður, Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri og séra Kristján Bjömsson sóknarprestur hafa borið hitann og þungann af undirbúningi vígslunnar. Sjálfur á Ami hugmyndina að stafldrkjunni sem hann kom á framfæri við Norð- menn sem gripu hana á lofti, fannst kjörið að gefa hana Islendingum í tilefni 1000 ára kristnitökuafmælis. Hefur Ami verið formaður byggingar- nefndar stafkirkjunnar frá upphafi. Þessi þjóðargjöf er ekki síst til minningar um þá Hjalta Skeggjason og Gizur hvíta sem reistu hér fyrstu kirkju á íslandi árið 1000. Héðan héldu þeir á Þingvöll til að boða mönnum trúna á Hvíta-Krist. Meðal gesta sem hingað koma á sunnudaginn em Haraldur Noregs- konungur og Sonja drottning hans, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Islands og Dorrit Moussaieff unnusta hans, Davíð Oddsson forsætisráðherra og kona hans Astríður Thorarensen, Karl Sigurbjömsson biskup fslands og eiginkona, Trond Giski kirkjumála- ráðherra Noregs, Sólveig Pétursdóttir kirkjumálaráðherra og Kristinn Bjömsson eiginmaður hennar, Geir Haarde fjármálráðherra og Inga Jóna Þórðardóttur eiginkona hans, norski sendiherrann, Halldór Blöndal forseti Alþingis, þingmenn Suðurlands og bæjarstjóm. „Þetta fólk verður meðal þeirra sem verða við vígslu kirkjunnar að því er kemur fram hjá forsætisráðuneytinu. En því miður verður að takmarka aðsókn því það em ekki nema milli 40 og 50 sæti í stafkirkjunni. Hún er þjóðargjöf Norðmanna og því verður að fylgja ákveðnum reglum þegar ákveðið er hveijir eiga að vera viðstaddir og það er eitthvað sem við ráðum ekki við,“ sagði Guðjón. Ami sagði að öflugu hátalarakerfí yrði komið upp þannig að fólk á að geta fylgst með því sem er að gerast inni í kirkjunni en athöfnin fer líka ffam utandyra. Flestir gestimir koma á sunnudaginn en þeir slaga hátt í eitt hundrað. Gert er ráð fyrir að athöfnin byrji klukkan 13.20 en sjálf vígslan verður svo milli klukkan 14.00 og 15.00. Bæjarstjóm býðurhinum tignu gestum í mat á Þórshamri og er ekki hægt að fá upp matseðilinn en hann er sagður mjög gimilegur. Þá verður boðið í siglingu í kringum Heimaey með PH-Viking. Dagskráin er mjög fjölbreytt og koma bæði norskir og íslenskir Iista- menn við sögu. Má þar nefna GUÐJÓN og Árni framan við stafkirkjunna en framkvæmdum við hana er að Ijúka. Þá er verið að leggja lokahönd á frágang á svæðinu þarna í kring sem verður hið glæsilegasta. NÁÐHÚSIN fá m.a.s. sinn sess á svæðinu. Lúðrasveit Vestmannaeyja, Védísi Guðmundsdóttur flautuleikara, Há- tíðarkór Vestmannaeyja sem saman- stendur af fólki úr Samkórnum og Kirkukómum, norskur leikflokkur frá frá eynni Monstur sýnir leikritið Sverðið og krossinn, leiknir verða þjóðsöngvar þjóðanna og sennilega lýkur athöfninni með bjargsigi úr Dönskutó í Heimakletti. „Norski kirkjumálaráðherrann mun svo af- henda Davíð Oddssyni forsætisráð- herra kirkjuna fyrir hönd Norðmanna. Davíð mun síöan afhenda biskupi Islands lyklana að kirkjunni sem síðan mun heyra undir nefnd sem heyrir undir þjóðkirkjuna, Þjóðminjasafnið og Vestmannaeyjabæ með þeirri verkaskiptingu að stjómunin verður hjá kirkjunni, Þjóðminjasafnið mun sjá um viðhald og Vestmannaeyjabær mun sjá um ferðamannaþáttinn." sagði Ámi. Hvað með fjárhagshliðina? „Þessi nefnd mun sjá um daglegan rekstur,“ svaraði Ámi. Einum til tveimur dögum fyrir vígsluna er víkingaskipið Hvítserkur væntanlegt frá Noregi en það kemur með altari í kirkjuna og steinhellu sem gegnir hlutverki tröppu inn í kirkjuna. „Hellan kemur frá Holtásen þangað sem fyrirmyndin er sótt að kirkjunni," sagði Ámi. Margt fallegra muna verður í kirkjunni og má þar nefna kross og líkneski eftir Svein Ólafsson, hand- smíðaða kertastjaka úr kopar eftir Björgvin Svavarsson, gerðaeftir 1000 ára gömlu mynstri sem varðveitt er á Þjóðminjasafninu. Annar stjaki er gerður eftir stjaka Umeskirkju í Noregi og er hann í líki vikingaskips. Kaleikurinn er gerður af ívari Bjöms- syni leturgrafara og silfursmið og er hann gerður eftir kaleik frá Gmnd í Eyjafirði sem er frá miðöldum. Hann gerir líka patínu til minningar um forfeður sína sem fórust við Eyjar snemma á 20. öldinni. Altaristaflan er eftirgerð elstu altaristöflu sem finnst í Noregi. Er hún gjöf norsku kirkjunnar og kostar 3 til 4 milljónir en það eru íbúar í Lom, þar sem kirkjan er smíðuð, sem gefa hana. Stefán Lúðvíksson í Eyjablikki smíðar ljósakrónu í kór og er hún fyrir sex kerti. Er það eigin útfærsla Stefáns á norskri fyrirmynd og Alexander Einbjömsson smíðar 14 ljósa krónu í sjálft kirkjuskipið. Norska listakona Marit Benthe Norheim er að gera skímarfontinn úr steini úr Nýja- hrauninu en það var Kristinn Pálsson sem valdi steininn. Þá em tíu listmálarar, sex Eyjamenn og tjórir fastlendingar, að mála jafnmargar myndir úr ævi Krists. Þeir eru Bjami Ólafur Magnússon, Sigmund Jó- hannsson, Sigurfinnur Sigurfinnsson, Sigurdís Arnarsdóttir, Guðjón Ólafs- son og Steinunn Einarsdóttir, öll frá Vestmannaeyjum og fastlendingamir Benedikt Gunnarsson, Karólína Lámsdóttir, Sigrún Eldjám og Kristín Gunnlaugsdóttir. Spurt er.......... Æílar þú að vera við vígslu stafkirkj- unnar? Veistu hveit tilefnið er? Bryndís Gísladóttir, vinnur á Klétti: „Nei. ég er að fara upp á land á ættar- mót. Eg veit ekkert um tilefnið." Árni Hilmarsson, lundaveiði- maður: „Já, ég reikna með að verða þar með tjölskyldunni. Fyrsta kirkja í kristni var reist á Hörgaeyri árið 1000 og verið er að fagna 1000 ára al'mæli kristni á Islandi." Kristný Tryggvadóttir, vinnur hjá Lögmiinnum: „Nei, ég verð að halda upp á fertugs- afmæli eigin- mannsins og hugsa að það verði miklu meira fjör þar. Einhvern tíma vissi ég nú um tilefnið en er búin að gleyrna helstu punkt- unum í því." Einar Sigurfinnsson, dósent: „Það er aldrei að vita. Það er alltaf gaman að sjá kónga, biskupa og forseta. Þeir Gizur og Hjalti voru sendir hingað af Noregskonungi árið 1000 með timbur í kirkju og átti að reisa liana þar sem þeirtækju fyrst land." Ágúst Ingvarsson á Herjólfi: „Eg býst við því. Þettaertil minningar um kirkjuna sem reist var hér um árið." Dagbjört Stefánsdóttir, póstur: „Eg er ekki búin að ákveða það. Þetta er í tilefni kristnihá- tíðar." Bjarki og Katrín: „Nei, við verðum að vinna, við að þjóna Noregskon- ungi og fieira góðu fólki. Þetta er í minningu 1000 ára kristni á íslandi." Stafkirkjcw er þjóíiargjöf Norð- mcinna til Islenditif’a í tilefni of 1000 círci afmceli kristnitökn og þess ctð 1000 cír eru liflin síðcm þeir Gizur hvíti og Hjalti Skeggjcison tóku lcmcl í Eyjum og létu reisci kirkju cí Hörgcieyri.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.