Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Qupperneq 20
20 Fréttir Fimmtudagur 27. júlí 2000 Sumarstúlka Vestmannaeyja 2000 Stúlkurnar voru frábærar -Skemmtunin tókst í alla staði frábærlega GLÆSILEGAR stúlkur: Aðalbjörg Jóhanna, Þórey Jóhannsdóttir, Anita Ársælsdóttir, Agnes Ósk Þorsteinsdóttir, Liðja Björg Arngrímsdóttir, Iris Dögg Konráðsdóttir og Jóhanna Guðmundsdóttir. Eins og alltaf komu margir að Sumarstúlkukeppninni og kunna Fréttir jjeim öllum bestu þakkir fyrir. A það ekki síst við Valgerði og hennar fólk á Snyrtistofunni Anítuog Guðbjörgu Sveinbjörnsdóttur og hennar fólk á Hárgreiðslustofu Guðbjargar sem sáu um snyrtingu og hárgreiðslu stúlknanna sjö fyrir keppnina. Dagmar Skúladóttir sá um alla framkvæmd og Bjarni Ólafur Guðmundsson var kynnir. Skiluðu þau bæði frábæru verki. Helstu styrktaraðilar eru auk Frétta, Sparisjóðurinn sem er beinn styrktaraðili að keppninni, Hótel Þórshamar sem lánaði Höfðann undir keppnina, Urval-Útsýn sem gaf Sumarstúlkunni fjögurra daga ferð til Edinborgar, Flugfélag Islands sem gaf sumarstúlkunni tvo farmiða til Reykjavíkur og tveimur næstu einn farmiða til Reykjavíkur, Hárgreiðslustofa Guðbjargar sem greiddi stúlkunum og Snyrtistofan Aníta sem snyrti þær ásamt því að gefa þeim öllum snyrtivörur ásamt Pharmaco, Veisluþjónusta Gríms sem sá um mat og Kaffi Tímor sem sá um þjónustu. Aðrir styrktaraðilar eru Metromálning, Sprett úr spori, Eyjablóm, Hressó, Betri línur, Róma og Herjólfur. ÚRSLITIN tilkynnt. Svipbrigðin segja allt sem segja þarf. Erum allar sigurvegarar -sagði Sumarstúlkan þegar úrslitin lágu fyrir Lilja Björg Amgrímsdóttir stóð uppi sem Sumarstúlka Vestmannaeyja í keppni um titilinn sem fram fór á Höfðanum á laugardagskvöldið. Var hún valin úr hópi sjö stúlkna sem tóku þátt í keppninni að þessu sinni. Lilja Björg er 18 ára Eyjamær sem ekki hefur reynt fyrir sér á þessum vettvangi áður. „Mér fannst þetta frábærlega gaman og eftir opnunar- atriðið þar sem við stelpumar komum fram var allt stress búið,“ sagði Lilja Björg í samtali við Fréttir eftir keppnina. „Það var líka gaman fyrir okkur stelpumar hvað gestir vom margir og hvað mikið var klappað. Framkvæmd keppninnar gekk vel og vel staðið að henni og mér fannst sviðsmyndin alveg frábær,“ sagði hún ennfremur og á þama við málverk Nödu Borosak en það prýddi sviðið. Lilja Björg segir að stelpumar sjö hafi verið mjög ólíkar en það hafi ekki skemmt fyrir. „Þetta var mjög fjölbreyttur hópur og við komum úr öllum áttum. En við náðum vel saman og vomm orðnar mjög góðar vinkonur.“ Komu úrslitin þér á óvart? „Mér finnst við allar vera sigurvegarar og sumar okkar höfðu aldrei komið fram áður. Sjálf var ég búin að velja Sumarstúlkuna og því get ég alveg sagt að það kom mér á óvart að vera valinn.“ Hefur þú hugsað þér að reyna eitthvað frekar fyrir þér á þessari braut? „Næst er það bara skólinn og eins og staðan er í dag hef ég ekki hugleitt það en maður veit aldrei." Lilja Björg segir að nú sé að baki mikil töm og stífar æfingar. „Við emm búnar að æfa lengi og hefur Dagmar Skúladóttir stjómað okkur eins og herforingi. Vil ég þakka henni, stelpunum á Snyrtistofunni Anítu og Hárgreiðslustofu Guðbjargar fyrir hárgreiðslu og snyrtingu og svo Betri línum þar sem við vomm við æftngar. Ég tala fyrir munn allra stelpnanna þegar ég kem þökkum til þessara aðila á framfæri," sagði Lilja Björg Sumarstúlka Vestmannaeyja 2000 að lokum. Myndarlegir vinningar Stúlkurnar fengu fjölda vinninga og gjafir. Sumarstúlkan fékk Edinborgarferð frá Úrval-Útsýn, tvo flugmiða frá Flugfélagi íslands.og 10 þúsund kr. fataúttekt frá Heilversluninni Grekko og versluninni Natama við Laugaveg, sem eru í eigu Sirrýar Garðars frá Þorlaugargerði, myndavél frá Foto að verðmæti um 20 þúsund og gjafabréf frá Eðalsporti og Flamingo. Ljósmyndafyrirsætan fékk myndavél frá Bókabúðinni- Pennanum og flugmiða hjá Flugfélaginu og vinsælasta stúlkan fékk líka flugmiða. AJlar fengu stúlkurnar pakka frá Islensk-austurlenska, umboðsaðila Oroblu á íslandi, myndarlegan snyrtivörupakka frá Snyrtistofunni Anítu og Pharma- co og mánaðakort frá Hressó. LILJA Björg, Sumarstúlka Vestmannaeyja ásamt Valgerði Jónsdóttur á Snyrtistofunni Anítu sem sá um að snyrta stúlkurnar auk þess sem stofan gaf þeim öllum myndarlega gjöf ásamt Pharmaco. Það var svo Hárgreiðslustofa Guðbjargar sem greiddi stúlkunum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.