Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 02.08.2000, Síða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 02.08.2000, Síða 4
4 Fréttir Miðvikudagur 2. ágúst 2000 Bókvitið 'askana Frumlegt útlit og safaríkt innihald Eins og venjulega þegar þjóðhátíð nálgast umtumast bæjarbúar og við tekur hinn stórmerkilegi þjóðhátíðar- fiðringur. Bókaunnendaþátturinn gerir það að sjálfsögðu líka og er Sig- urður Georgsson beðinn velvirðingar, þar sem hann átti að verða bóka- unnandi vikunnar. Gefst honum því drjúgur tími til að undirbúa ritgerð sína fyrir næsta blað. Bókaþátturinn er því helgaður Þjóðhátíðarblaði Vestmannaeyja að þessu sinni en það mun trúlega hafa komið fyrir augu lesenda sinna þegar þetta er skrifað. Það verður ekki af því skafið að efni Þjóðhátíðarblaðsins í ár er fjöl- breytt, eins og reyndar hefur verið aðal blaðsins undanfarin ár. Tekinn er púlsinn á undirbúningi þjóðhátíðar frá ýmsum hliðum og skemmtilegum sjónarhornum í máli og myndum. Fastir póstar eru í blaðinu, eins og ritstjómarpistill Skapta Arnar Ólafs- sonar, ávarps formanns IBV, Þórs Vilhjálmssonar, texti þjóðhátíðar- lagsins í ár, dagskrá hátíðarinnar og hátíðarræða Guðmundar Þ. B. Ólafssonar 1999. Þess utan er viðtal við húsmóður úr Dalnum, Guðrúnu Jóhannsdóttur, grein sem heitír Hvað væri þjóðhátíð án kvenna, eftir Ómar Garðarsson, frásögn af árlegri víð- frægri kjötsúpuveislu Hólmfríðar Ólafsdóttur og grein sem heitir Hvað leynist í koffortinu, þar sem forvitnast er um þann kost sem Eyjamenn taka með sér í tjöldin í Dalnum og svo mætti lengi telja. Allt áhugavert efni sem ætti að hugnast lesendum blaðsins vel. Mikil útlitsbreyting hefur orðið á blaðinu þegar það er borið saman við eldri þjóðhátíðarblöð og ber þess greinilega vitni að ungir og blóðríkir menn hafa staðið að vinnsiu þess. Er sú breyting öll hin athyglisverðasta og ljóst að frumleiki og hugdýpt hönnuða ríður ekki við einteyming. Ber þar hæst blaðsíðutalið, en sam- kvæmt því er blaðið 2092 blaðsíður, sem er líkiega þykkasta þjóð- hátíðarblað sem gefið hefur verið út fyrr og hugsanlega síðar. Að sögn hugmyndasmiða slá þeir saman hinu merka ártali 2000 við blaðsíðutalið. Forsíðan er smekkleg og fagmann- lega unnin, spilar þar saman hlýr einfaldleiki í mynd og lit. Hins vegar er blaðið nokkuð teygt, ef svo mætti segja. Helgast það aðallega af stærð leturs í meginmáli, sem vekur þá tilfinningu að blaðið sé kannsi einum 2020 síðum of langt, bæta ljósmyndir að vísu upp stuttan texta. Engar meinlegar villur eru í blaðinu, né uppsetningabömmerar, sem eru til stórvandræða, þó hefur slæðst eitt og annað inn af slíku tagi sem vissulega hefði mátt missa sín, en verður ekki agnúast út í það hér. Undirritaður óskar aðstandendum útgáfunnar til hamingju með blaðið og lesendum góðrar skemmtunar. Blaðið fer í dreifmgu á fimmtudaginn og geta söluböm blaðsins náð í þau á ritstjóm Frétta klukkan 13.00. Benedikt Gestsson. Jón Helgi er stundum erfiður Þjóðhátíðarblað Vestmarmaeyja kemur út á morgun, fimmtudag. Að venju er í blaðinu margan fróðleik að finna um þjóðhátíðarhald fyrr og nú. Ritstjóri Þjóðhátíðarblaðsins er Eyjamaður viku- nnar. Fullt nafn? Skapti Örn Ólafsson. Fæðingardagur og ár? 8. desember 1980. Fæðingarstaður? Reykjavík. Telmig samt Vestmannaeying þar sem ég flutti hingað mánaðargamall. Fjölskylduhagir? Bý í foreldrahúsum eins og stendur. Menntun og starf? Stefni á að klára stúdentinn um næstu jól. Hef að undanförnu starfað sem ritstjóri Þjóðhátíðarblaðsins og væri alveg til í að læra eitthvað í sambandi við fjöl- miðla. Laun? Aðallega í formi mikillar reynslu. Bifreið? Ek um á bifreið móður minnar sem er bleikur Polo. Helsti galli? Segi já við öllu. Helsti kostur? Segi já við öllu, það getur líka verið kostur. Uppáhaldsmatur? Grillmatur í sumarbústaðnum hjá mömmu. Versti matur? Súrmatur og skerpukjöt. Uppáhaldsdrykkur? íslenskt vatn. Uppáhaldstónlist? Flest allt. Hef t.d. mjög gaman af djassi. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Vera í góðum félagsskap. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Taka til í herberginu mínu og taka við fyrirskipunum frá Jóni Helga. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Fjárfesta í hlutabréfum. Uppáhaldsstjórnmálamaður? Helgi Bragason er traustur og ábyggilegur stjórnmálamaður. Uppáhaldsíþróttamaður? Tiger Woods erstórkost- legur. Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Lúðra- sveit Vestmannaeyja, Eyverjum og hinu og þessu. Uppáhaldssjónvarpsefni? íþróttir og fréttatengt efni. Uppáhaldsbók? Hef gaman af að glugga í fræðibækur ýmiss konar. Hvað meturþú mest í fari annarra? Gott viðmót og hressileika. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Þegar Jón Helgi er að reka á eftir öðrum. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Herjólfs- dalur á þjóðhátíð, eins er virkilega fallegt ÍFæreyjum. Hvernig gekk að safna efni í blaðið? Það gekk ágætlega og að lokum small þetta saman. Hvað er áhugaverðast af efni þess? Mér fannst mjög skemmtilegt að fá að vita hvað leynist í koffortum fólks. Það má segja að blaðið í ár sé mjög konuvænt þar sem þær fá að njóta sín í máli og myndum. Ertu ánægður með útkom- una? Ég er bara þokkalega sáttur við útkomuna og þá reynslu sem maður fær af því að ritstýra svona blaði. Ætlar þú að vera á þjóðhátíð? Þó að maður sé kominn með þjóðhátíðarstemmningu upp í kok af vinnslu þessa blaðs, þá reikna ég nú með því. Svo er víst búið að ákveða að Lúðrasveitin spili svo maður lætursig ekki vanta. Eitthvað að lokum? Óska öllum Eyjamönnum og öðrum mönnum gleðilegrar þjóðhátíðar og vonandi að efni blaðsins falli fólki í geð. Þann 17. maf eignuðust Ester Sigursteinsdóttir og Páll Hallgrímsson dóttur. Hún vó 16 merkur og var 54 cm að lengd. Hún hefur fengið nafnið Thelma Hrönn og er hér á mynd með bræðrum sínum Einari Sævari og Birki Þór. Fjölskyldan býr í Halmstad í Svíþjóð. Þann 16. maí eignuðust Auður Ásgeirsdóttir og Gunnar Ingólfur Gíslason dóttur. Hún vó 17 merkur og var 56 cm að lengd. Húnhefur verið skírð Sólveig Lind og er hér í fangi stóru frænku Lindu Kristínar. Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir. Á döfinni t 3. ágúst Þjóðhátíðarblaðið kemur út. Söluböm mæti á Fréttir kl 13.00 Alla helgina Fjör í Apótekinu 3. ágúst Húkkaraballið \4. 5. og 6. ágúst Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Ekki gleyma því, jbó að lúðrasveitin sé ekki lengur útí í kuldanum og bjargsigið sé líka inni. 10. ágúst Evrópuleikurinn!!!!! IBV gegn skoska liðinu Hearts á Laugardals vellinum í Reykjavík. Skoristnú enginn undan að mæta á völlinn 12. ágúst Kókakólamótið í Golfi 1 12.-13. ágúst Bikarkeppni FRI.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.