Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Blaðsíða 6
6 Fréttir Fimmtudagur 23. nóvember 2000 Slyrktartónleikar Lúðrasveitarinnar á laugardag: Tónlist Queen á efniskránni Lúðrasveit Vestmannaeyja verður með sína árlegu Styrktar- félagatónleika á laugardag. Tónleikarnir verða haldnir í Vélasal Listaskólans við Vesturveg og hefjast kl. 16. Stefán Sigurjónsson hefur verið stjórnandi Lúðrasveitarinnar síðan 1988, var raunar stjórnandi hennar á starfsárinu 1976 til 1977, á unglingsárunum, eins og hann orðar það. Stefán segir að 15 til 16 hljóðfæraleikarar séu í sveitinni að staðaldri, fastur kjarni hennar, en svo bætast fleiri við fyrir tónleika og á þessum tónleikum telur sveitin 26, auk stjórnanda. Stefán segir að starfið hafi gengið mjög vel í vetur og gott samræmi sé milli hljóðfæra í sveitinni. „Við höfum t.d. verið að fá húsmæðurnar aftur til okkar, þær eru að koma „út úr eldhússkápunum“ á ný eftir barncignir og það er mjög ánægjulegt,“ segir Stefán. Styrktarfélagakerfið var tekið upp árið 1954 og síðan hafa slíkir tónleikar verið nær óslitið á dagskrá sveitarinnar og í raun hápunktur hvers starfsárs, nokkurs konar árshátíð sveitarinnar. Þeir sem eru styrktarfélagar fá tvo aðgöngumiða og greiða fyrir þá 1500 krónur en annars kostar aðgöngumiði 1000 kr. Lítið mái er að gerast styrktarlélagar, þeir sem hafa hug á því geta haft samband við Stefán eða hvern sem er í Lúðrasveitinni. Efnisskrá þcssara tónleika er nokkuð hefðbundin frá ári til árs, án þess þó að hún sé einlit eða stöðnuð. Til að mynda eru ævinlcga a.m.k. tveir marsar á efnisskránni (enda marsar einkennistónlist allra lúðrasvcita), íslensk tónlist, tónlist eftir Oddgeir Kristjánsson og tónlist sem tengist þjóðhátíðinni. Að þessu sinni eru 15 verk á efnisskránni, þ.á.m. tvö norsk verk enda hefur tengingin við Noreg verið mikil á þessu kristnitökuári, eins og Stefán segir. Þá eru fjórar nokkuð langar lagasyrpur, þ.á.m. Dixie-syrpa og svo önnur einkar forvitnileg er tengist þeirri þckktu hljómsveit Queen. Þetta er í fyrsta sinn sem VESt** LÚÐRASVEIT Vestmannaeyja ásamt stjórnandanum, Stefáni Sigurjónssyni. Þriggja daga skemmtidagskrá Styrktarfélagatónleikar eru haldnir í Vélasal Listaskólans, þeir hafa undanfarin ár verið í Félagsheimilinu, Safnaðarheimilinu og í fyrra voru þeir haldnir í Kiwanishúsinu. Stefán segir að ágætur hljómur sé í Vélasalnum og hægt yrði að gera hann að mjög góðum tónieikasal án mikils tilkostnaðar. Þá vildi Stefán koma á framfæri þökkum Lúðrasveitarinnar til styrktarfélaga fyrir dyggan stuðning gegnum árin. Þá er komið að því að við látum til okkar taka eftir allt of langa pásu og verður það gert með þriggja daga trukki, jibbý! Videokvöld, sundveisla og fyndnasti maður Islands, allt í einum pakka. Svona er dagskráin: I dag, fimmtudaginn 23. nóvember verður vídeókvöldverðurinn okkar margfrægi og verður þá sýnd mynd sem nánar verður auglýst á vefsíðu NFFIV, school.hkarl.com. Myndin verður sýnd í sal skólans klukkan 21.00. Okeypis er á skemmtunina. Á morgun, föstudaginn 24. nóv- ember, koma allir upp í sundlaug Vestmannaeyja klukkan 21.00 því fyrirhugað að halda ærlegt sund- djamm. Farið verður í alls kyns leiki og lofum við hörkuíjöri. Hápunkt- urinn verður blautbolskeppni. Verð á skemmtunina er kr. 200. Og síðast en ekki síst, þá verður fyndnasti maður íslands, Lalli hættulegi, staddur uppi í sal skólans á laugardaginn. Mun hann verða með prógrammið sem tryggði honum þennan eftirsótta titil og hvetjum við alla sem vettlingi geta valdið að mæta og hlýða á Lalla hættulega. Þama er á ferðinni hörku stand-up pakki sem öllum bæjarbúum er boðið á. Við bjóðum og þið borgið, kostar aðeins 500 krónur og lofuin við hláturkrampa af bestu gerð. Stand up- ið byrjar klukkan 18.00 og vonum við að þetta verði ekki að einu allsherjar strand up-i! Það er því um að gera fyrir ykkur NFFIV meðlimi og aðra bæjarbúa að mæta á herlegheitin. Allar skemmtanimar em að sjálf- sögðu vímuefnalausar og það ætti því ekki að vera því til fyrirstöðu fyrir neinn að mæta. Það er núna eða aldrei -skemmtun af besta tagi. Stjóm NFFÍV atkvæðum Þegar þetta er skrifað er ekki enn komið á hreint hver verður næsti forseti Bandaríkjanna. í hálfan mánuð hafa Bandaríkjamenn beðið spenntir eftir úrslitum kosninganna sem ekki virðast eiga að verða útkljáð eftir vægi atkvæða heldur eftir því hvaða dómstóll hefur lokaorðið. Á meðan hefur heimsbyggðin skemmt sér yfir öllum vandræðaganginum. Nú er skrifara nokkuð sama hvort næsti forseti Bandaríkanna heitir Bush eða Gore, raunar er honum nokkum veginn sama hvað forseti Bandaríkjanna heitir. En skrifari er búinn að hafa lúmskt gaman af þessari uppákomu sem á engan sinn líka, a.m.k. ekki á Vesturlöndum. Eitt það skemmtilegasta við þetta er að Banda- ríkjamenn hafa litið á sig sem nokkuð sjálf- skipaða varðmenn í kosningum um víða veröld ef talin hefur verið hætta á að einhvers staðar kynnu menn að vilja hafa rangt við og reyna að hagræða úrslitum sér í hag. Þetta hefur þótt sjálfsagt í fyrmm lýðveldum Júgóslavíu svo og í Afríku, gott ef þeir vom ekki með puttana í kosningum í Rússlandi fyrir ekki löngu. Og þá þarf þetta endilega að koma upp heima hjá þeim, þar sem allt á að vera svo pottþétt. Raunar er ekki ýjað að kosningasvindli í bandarísku forsetakosningunum en spumingin hvort betur eigi að treysta vélum eða fólki til að telja atkvæði, hefur vafist fyrir þeim þar vestra. Mörgum finnst líka undarlegt það fyrirkomulag sem Bandaríkjamenn hafa til að velja sér forseta þar sem samanlagður fjöldi atkvæða gildir ekki, heldur meirihluti úr hverju fylki, svonefnt kjörmannafyrirkomulag. Þetta kerfi er æva- gamalt og hefur verið notað allt frá því að fyrsti forsetinn var valinn. Þá var raunar ekki um kosningar að ræða, þær komu ekki til sögunnar fyrr en löngu síðar, heldur vom það útvaldir og valinkunnir fulltrúar hvers fylkis, sem kölluðust kjörmenn, og völdu forseta. Þessu kerfi var haldið áfram eftir að almenningi var gefinn kostur á að kjósa og hefur þótt gefast ágætlega. Þar til núna. Bent hefur verið á að Gore hefur mun fleiri atkvæði á bak við sig, sé miðað við heildaratkvæðafjölda (og reiknað með að rétt hafi verið talið) en þrátt íyrir það er staða Bush sterkari, miðað við kjörmannakerfið. Aftur á móti ættu Islendingar sem minnst að fetta fingur út í kosningakerfi annarra þjóða. í alþingiskosningum á Islandi er ekki ósvipað kjörmannakerfi við lýði, jafnvel hálfu furðulegra en í Bandaríkjunum. Þar er vægi atkvæða langt í frá hið sama og fer eftir búsetu þeirra sem kjósa. Þar em íbúar höfuðborgarinnar settir í annan eða þriðja fiokk en landsbyggðinni hampað, sérstaklega Vestfirðingum sem hafa, ef skrifari man rétt, nálægt sjöfaldan atkvæðisrétt á borð við Reykvíkinga. Um þetta náðist á sínú'm tíma pólitísk samstaða á alþingi þó svo að mörgum þyki þetta langt í frá réttlátt kerfi. I síðustu kosningum gerðist það til að mynda að atkvæðafjöldi, sem varla hefði mælst í Reykjavík, skilaði Vestfirðingi inn á þing og það sem meira var, hann dró í leiðinni með sér flokksbróður sinn í Reykjavík sem raunar var með margfalt fleiri atkvæði á bak við sig en Vestfirðingurinn. Eflaust þætti þetta kjörmanna- kerfi furðulegt meðal annarra þjóða, meira að segja í Bandaríkjunum, en hér hefur það þótt hið ágætasta mál, aðallega til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Nú er skrifari landsbyggðarmaður og vill auðvitað landsbyggðinni (og sér í lagi sínu byggðarlagi) allt hið besta. En honum hefur ævinlega þótt þetta ranglátt kerfi og ólýð- ræðislegt og að honum hefur stundum læðst sá grunur að kerfið sé meira hagsmunamál ákveð- inna pólitískra potara en nokkru sinni lands- byggðarinnar. Þetta kerfi skilar okkur raunar fleiri hausum inn á þing og í huga skrifara er það spuming hvort það er til hins betra eða ekki. Skrifari hefur þá skoðun að unnt sé að bæta hag landsbyggðarinnar á annan og betri hátt en með sjöföldum atkvæðisrétti. Ef vægi lands- byggðarinnar yrði sjöfaldað á einhveijum öðmm sviðum þá myndi kannski draga úr segulmagni höfuðborgarsvæðisins. Sigurg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.