Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Blaðsíða 17

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 23. nóvember 2000 Fréttir 17 íslandsmót í almennum fimleikum: Ránarstúlkur krækfu í sjö verðlaun Frábær árangur náðist á íslands- móti í almennum iimleikum sem fór fram laugardaginn 11. nóv. á Sel- fossi. Fimleikafélagið Rán sendi 7 kepp- endur að þessu sinni en keppt var í 1. þrepi 9 ára og eldri. Alls kepptu 180 stelpur víðsvegar af landinu á aldr- inum 9 til 14 ára. Stelpumar úr Rán gerðu sér lítið fyrir og komu heim með 7 verðlaunapeninga. Árangur þeirra fer hér á eftir: 1. þrep 9 ára Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1. sæti dýna 8,50 1. sæti tramp 9,30 1. sæti samanlagt 26,00 Herdís Gunnarsdóttir 3. sæti gólf 8,35 Keppendur vom 27 í þessum aldurs- hóp sem sýnir hvað árangur þessara stúlkna er glæsilegur. 1. þrep 10 ára Jóhanna Björk Gylfadóttir 2. sæti tramp 8,80 2.sæti dýna 8,70 2.sæti samanlagt 25,25 Keppendur voru 44 í þessum aldurs- hópi, sannarlega glæsilegur árangur. Aðrir keppendur stóðu sig með miklum sóma, en það vom þær, Díana Ólafsdóttir, Elínborg Hilmarsdóttir, Ema Georgsdóttir og Louisa Kristín HÓPURINN við komuna til Eyja. Fremri röð f.v. Svanfríður Jóhannsdóttir þjálfari, Díana Ólafsdóttir, Jóhanna Björk Gylfadóttir o£ Herdís Gunnarsdóttir. Aftari röð f.d. Kristrún Ósk Hlynsdóttir, Elínborg Hilmarsdóttir, Erna Georgsdóttir, Louisa Martinsdóttir, Kristjana Ingólfsdóttir og Jenný Guðmundsdóttir. KRISTRÚN Ósk með verð- launapeningana sem hún hlaut á Islandsmótinu. Marteinsdóttir. Þær Kristrún Ósk og Jóhanna Björk hafa unnið sér rétt til þátttöku á Meistaramóti Islands sem fram fer í janúar 2001. Þar keppa tíu bestu í 1. þrepi, óháð aldri og_ geta þær unnið hinn eftirsótta titil íslandsmeistari í almennum fimleikum. Fimleikafélagið Rán. Handknattleikur: 6. flokkur karla Sami fjöldi iðkenda og í Reykjavík -segir Gísli R. Guðmundsson, þjálfari í byrjun nóvember fór fram fyrsta fjölliðamótið í 6. flokki karla í hand- knattleik og var leikið á Sel- tjarnarnesi. Strákamir frá Eyjum fóm með Herjólfi föstudaginn 3. nóvember og hófu leik á laugardagsmorgun. Bæði A og B lið vom send til keppni. B- liðið lék fjóra leiki í riðlakeppninni, vann einn leik, gerði tvö jafntefli og tapaði aðeins einum leik. Sá árangur tryggði þeim sæti í milliriðli en leikið var í þeim á sunnudeginum. Ekki gekk nógu vel í þeim leikjum sem báðir töpuðust. Það táknaði að strákamir léku um 7. - 8. sæti gegn Stjömunni og töpuðu jxim leik naum- lega með eins marks mun, 8-7. A-liðið byijaði vel en var óheppið að ná aðeins jafntefli gegn Val í fyrsta leik. Strákamir töpuðu svo tveimur næstu leikjum en gerðu jafntefli við Stjömuna 7 - 7 í síðasta leiknum. Þessi úrslit dugðu A-liðinu því miður ekki til að komast áfram í úrslit. Gísli Rúnar Guðmundsson, þjálfari 6. flokks, segir að 23 drengir hafi farið þessa ferð, auk fjögurra fararstjóra og þjálfara. Gísli segir að ferðin hafi í alla staði gengið vel. Strákamir hafi verið að leika vel, miðað við að þeir sitja ekki við sama borð og jafnaldrar þeirra á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar leikjafjölda. „Það sem mér þykir mest um vert og skiptir hvað mestu máli í þessum flokki, er hve margir drengir æfa handknattleik í 6. flokki í Vest- mannaeyjum. Þeir eru um 30 talsins en það er sami fjöldi og stærstu félögin í Reykjavík hafa yfir að ráða,“ sagði Gísli. ÍBV-íþróttafélag (mfl.karla í handbolta) og Bflheimar hafa gert samning um samstarf næstu 3 árin. Samstarfið felst í því að IBV auglýsir OPEL og ISUZU á keppnisbúningum og í Iþróttahúsinu. IBV lýsir yflr mikilli ánægju með þennan samningsem að er enn ein mikilvæga stoðin í því að það sé hægt að gera út handknattleikslið í Vestmannaeyjum. ÍBV hvetur fólk til að skoða möguleikana sem að Bflheimar hafa að bjóða, því að með sölu á bflum hér í Eyjum nýtur handknattleiksdeildin góðs af því. Umboðsmaður Bflheima í Vestmannaeyjum er Þorsteinn Viktorsson. Á myndinni eru Jóhann Pétursson, Eyþór Harðarson frá ÍBV og Þorsteinn með fulltrúum Bflheima. Tarotbókin komin út Út er komin Tarotbókin þín, eftir Vestmannaeyinginn Matthildi Sveinsdóttur. Bókin er 136 bls. og eru skýringar við öll 78 spilin. Einnig eru leiðbeiningar um hvernig má nota Tarot til sjálfsuppbyggingar og við hugleiðslu. Hver bók er handgerð og verður einungis seld hjá höfundi sem vinnur formála og kápu fyrir hvern og einn með úrlestri í samræmi við persónuspil þess er á að fá bókina. Verð bókarinnar er 4.500 kr. Einnig er hægt að panta úrlestur úr tölum og Tarot til gjafa fyrir einstaklinga sem unnið er af Hönnu Birnu Jóhannsdóttur, lesara hjá Örlagalínunni. Úrlestur kostar 2.300 kr. Hægt er að hringja inn pantanir í síma 481 2052,481 1957,698 1957 eða senda tölvupóst á mattasqsimnet.is. Pöntunum þarf að fylgja fullt nafn, fæðingardagur og ár. Þróunarfélagið sjói um merkingu listaverka Eins og getið var í Fréttum fyrir skömmu, hafa til vísanir gengið milli skipulagsnefndar og menningar- málanefndar vegna staðsetningar nokkurra listaverka sem unnin voru í fyrra í listaverkefninu Hraun og menn. Síðast velti skipulagsnefnd boltanum yfir til menningarmálanefndar vegna staðsetningar verkanna. Á síðasta fundi menningarmálanefndar var ekki tekin afstaða til staðsetningar en þriðji aðili kvaddur til liðsinnis í listrænum efnum. Nú hefur menningarmála- fulltrúa verið falið að ræða við Þróunarfélagið um merkingu á þeim listaverkum er tilheyra verkefninu Hraun og menn. eyjafrettir.is Þegar upplýsingar vantar

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.