Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 23. nóvember 2000 Fréttir 11 nan í seiði Grænlands eftír Reyni Traustason: i u og eftirlitsrugl BÓKARHÖFUNDUR ásamt Sigga Pé, ísmanninum ógurlega, í eldhúsinu í Höll ísmannsins. LEGEÐ við ísbrúnina skammt frá Kulusuk. Tveimur mánuðum áður var Siggi P. í lífsháska á bátnum, fastur innan um hatís. FRÁ Kuummiit. Lengst til hægri er hús Sigurðar Péturssonar, „Höll ísmannsins“ Og veistu hve mikið er af þorski í þeim afla?“ Ég sagðist andskotann ekkert vita um það enda sæti ég ekki við að reikna út skiptingu aflans og legði meira upp úr því að stunda sjóinn. „Af öllum þessum afla eru aðeins 20 tonn af þorski,“ sagði hann þá hálfu alvarlegri. „Hvað með það?“ spurði ég. „Þú hlýtur að hafa haft einhverstaðar rangt við Siggi minn,“ svaraði hann. „Þú heldur það,“ sagði ég og glotti til hans. „Keyrðu mig niður á bryggju. Ég er að fara á sjóinn,“ bætti ég við. Við þögðum báðir þar sem hann ók niður á höfn og ég vippaði mér um borð án þess að kveðja. Því er ekki að neita að allflestir í Ólafsvík vom í því að hagræða aflatölum og landa framhjá. Samstaða var meðal allra um að halda veiðieftirlitsmönnum frá þessari hagræðingu. Því flóknara sem eftirlitið er því meira brjóta menn af sér og allt í kringum Island er verið að svindla á kerfínu. Ég heyrði ekki meira af þessum útreikningum veiði- eftiriitsins og hélt mínu striki. Ég hef aldrei séð eftir neinu sem ég hef gert gegn kvótakerfinu. Hitt er svo annað mál að maður var að sparka hundr- uðum tonna í hafið á togurunum en síðan ætlaði allt vitlaust að verða ef einhver trilla landaði nokkmm tonnum af snurvoðarbát. Eitt sinn fengum við á Arinbimi 100 tonn af þorski á einum sólarhring. Við gátum fryst 20 tonn af þessu en öllu hinu var kastað í hafið haftur. Þetta var svona víða á togurunum. Einu sinni sagði ég frá þessu og þá sagði Guðjón Ebbi Sigtiyggsson, skipstjóri á frystitogaranum Örvari frá Skagaströnd, að þetta ætti við um mig einan. Aðrir fleygðu ekki fiski í sjóinn. Auðvitað var þetta tóm lygi og það vom allir í því að kasta fiski fyrir borð í einhverjum mæli. Allir vissu af því en sumir reyndu samt að fegra sinn hiut.“ Við Grænland „Undir það síðasta í Ólafsvík átti ég tvo smábáta, Viktoríu og Kötlu. Það fiskaðist ágætlega en ég var orðinn hundleiður á öllu eftirlitsmglinu. Sumarið 1997 hafði vinur minn, Páll Egilsson vélstjóri, samband við mig og spurði hvort ég vildi ekki koma með sér í 10 daga skemmtiferð til Grænlands á slóðir Stefáns Magn- ússonar hreindýrabónda. Páll hafði verið í Kringlunni og pantað þar ferðina. Ég taldi það fráleitt og sagðist ekki sjá hvaða erindi ég ætti til Grænlands. Þórunn, kona mín, lagði aftur á móti að mér að fara og taldi að ég hefði gott af því að skreppa. Líklega hefði hún betur sleppt því að leggjast á sveif með Páli því ég lét undan og teningunum var kastað. Við flugum til Narsarsuaq og þaðan var haldið til Qaqortoq eða Julianeháb. Við Páll vomm þama í hópi 15 Islendinga og allt var þetta bráð- skemmtilegt fólk. Ég hef alltaf verið slarkari og gleðimaður og skömmu eftir að við komum til Qaqortoq fór ég í bæinn og hitti þar Grænlendinga. Þeir tóku mér eins og ég hefði verið þama alla tíð. Það fór vel á með okkur og mér leið eins og ég væri einn víkinganna sem bjuggu þama fyrr á öldum. Það kann þó að vera að væntumþykja þeirra innfæddu hafi stafað af því að ég átti nóg af koníaki. Þar kom að ég hitti Stefán Hrafn Magnússon sem sagði mér að þama væm allir firðir fullir af fiski og aðeins þyrfti að ná í hann. Hann sagðist vera með bát sem hentað gæti til veiðanna. Það fór svo að eftir fimm daga á Grænlandi taldi ég víst að ég væri kominn í mitt rétta umhverfi. Eg fann það á mér þegar við sigldum frá Narsaq og upp í Breiðafjörð að hér ætti ég oft eftir að sigla. Ég sagði því í hópinn að hér ætlaði ég að eiga heima fyrir lífstíð. Næsta skref væri að skreppa heim til Islands og ganga frá málum en síðan kæmi ég aftur og þá til að vera. Ferðafélagamir tóku þessu sem hverju öðra rugli og hlógu að yfirlýsingum mínum. Ég fór heim með hópnum en hálfum mánuði síðar var ég kominn aftur og nú til framtíðarbúsetu. Skömmu síðar flutti ég lögheimili mitt til Grænlands og í framhaldinu seldi ég báða bátana heima. Fyrir Viktoríu með kvóta fékk ég 20 milljónir króna en hefði líklega fengið 100 milljónir ári seinna. Ég nenni þó ekkert að spá í slíkt og veit það eitt að menn sem auðgast em flestum mönnum leiðinlegri. Þeir verða gjama blóðnískir og festa ást á hverri krónu. Ég tek frelsið fram yfir auðinn og vil ekki verða ríkur...“ I Kuummiit „1 Kuummiit er gott að búa þrátt fyrir að lífið sé ólíkt fmmstæðara en á Islandi. I sveitarfélaginu Ammassalik er Tasiilaq höfuðstaðurinn en þar búa 1800 manns, Kuummiit er með 400 íbúa, Kulusuk með svipaðan fjölda og í Sermiligaaq búa um 300 íbúar. Þessar byggðir em tengdar með þyrluflugi. Til Kuummiit er flogið þrisvar í viku en oft er ófært dögum saman og þá er einangmnin algjör. Að sumrinu ferðast fólk mikið á milli staða á jullum sínum. Engir bílar em nema í Tasiilaq þar sem um 20 bílar em á götum sem telja örfá kílómetra. Tveir jeppar em í Kulusuk en enginn bíil á hinum stöðunum enda aðeins götutroðningar. Eina vélknúna farartækið í Kuummiit, utan nokkurra snjósleða og traktorsgröfu, er fjórhjól sem reyndar er bannað á Grænlandi. Frystihússtjórinn er lamaður neðan mittis og fékk af þeirri ástæðu undan- þágu til að nota fjórhjól. Aðalgatan í Kuummiit er mjög frábmgðin Lauga- veginum í Reykjavík. Hér em ekki bfiamir; ekki eilífur ys og þys og hér er fólk ekki sífellt með farsíma á hausnum. Rólegheitin em allsráðandi og ég kann vel við það. Þvert á það sem gerist á Islandi veit fólk hér alltaf hvort það er að koma eða fara. Það getur verið gaman að staldra við á kaupfé- lagströppunum á fallegum sumardegi þegar fólk safnast saman og drekkur bjór. Þá er stemmning við brettið þar sem veiðimennimir standa daglangt og selja feng sinn. Fólkið er afskap- lega glaðlynt og ekki skemmir fyrir að konumar em gullfallegar. Lífið hér er svipað og gerðist í smáþorpum á Islandi íyrr á öldinni. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort ég hafi ekki fæðst hálfíi öld of seint. Hefði ég verið uppi um árið 1900 er líklegt að ég hefði unað mér ágætlega á fslandi. Alltaf er verið að tala um vestræna menningu sem einhveija nauðsyn. í mínum huga er það kjaftæði og miklu nær að halda í menninguna hér þar sem menn fá sér öl af og til og hugsa um fátt annað en sel. Þess ber þó að geta að styrkir frá Danmörku spila stóra rullu í lífi fólks. Þrátt fyrir að veiðar hér séu sáralitlar og ömgglega ekki til þess fallnar að standa undir allsnægtasam- félagi þá er hvergi skort að sjá hjá fólki. Allir em vel klæddir og fólk hefur nóg að bíta og brenna. Ætli heildarfjöldi starfa hér sé ekki innan við 30 sem þætti einhverstaðar lítið í 400 manna þorpi. f KNI eða kaupfélaginu, sem er bæði verslun og banki, vinna fimm til sex manns. Hjá sveitarfélaginu vinna örfáir. Þrír menn starfa við að losa msl og tæma kamra. Þá starfa um 20 manns þegar mest er við frystihús Nuka. í fæstum húsum er rennandi vam og fólkið þarf að bera vatnið heim í brúsum. Þá er víðast olíukynt þannig að eins þarf að gera með olíuna. Fólk sækir hana í brúsa í KNI. Þó er bót í máli að hér er þjónustuhús á vegum sveitarfélagsins þar sem fólk getur þvegið þvott í fullkomnum þvotta- vélum og farið f bað. Helsta upplyftingin hér er fólgin í dansleikjum sem haldnir era reglu- lega. Þeir fara Ifam í litlu, ókyntu húsi þar sem stólum er raðað hringinn. Þar sitja karlar öðmm megin en konur hinum megin. Tónlistin er leikin af grammófóni og öllum er frjáls aðgangur. Þama er kannski áttræð kona að dansa öðmm megin við mann en 10 ára krakki hinum megin. Á þessum böllum er ólýsanleg stemmn- ing. Um áramót byrjar dansleikur klukkan 10 að kveldi gamlársdags og honum lýkur ekki fyrr en að morgni nýársdags. Hægt er að kaupa framlengingu á dansleiknum. Ef einhver er ekki búinn að fá nóg þegar ballið er búið getur hann reitt af hendi tvö þúsund krónur íslenskar og þá heldur ballið áfram í klukkutíma í viðbót. Vilji fólk enn framlengja dansleikinn kostar klukku- tíminn eftir það þúsundkall og þannig er hægt að halda ballinu áfram þar til nýr dagur rennur. Þetta er ívið fmmstæðara líf en ég man effir sem krakki vestur á ljörðum. Vömúrval hér er fábrotið þegar líður á vetur. Venjulega er þó ekki beinn skortur á öðm en fersku grænmeti og ávöxtum. Átta mánuðir líða frá því haustskipið kemur með vömr og þar til vorskipið kemur í maí eða júní. I apríl 1998 varð mikil reiði í garð KNI. Ástæðan var sú að bjórinn seldist upp og það gátu íbúamir ekki þolað. Ekki bætti úr skák að gosið seldist líka upp. Þessi uppákoma varð til þess að óhemjumagn af bjór var pantað með síðasta skipi haustið á eftir og þann vetur varð ekki bjórlaust. Ég held að fólk hefði umborið allan annan skort en þennan..."

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.