Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Side 15
Fimmtudagur 23. nóvember 2000
Fréttir
15
Bæklingurinn um Skanssvæðið:
Hönnunin kostaði
290 þúsund krónur
-og prentun 85 þúsund sem er sú upphæð sem
prentsmiðjur í Eyjum hefðu tekið fyrir allt verkið
Kynningarbæklingur um sögu-
minjasvæðið á Skansinum hefur
nokkuð komið við sögu að undan-
förnu. Sá bæklingur liggur
frammi, nokkuð víða, og eru ekki
allir á einu máli um útlit hans og
ágæti. Einn þeirra er Jóhann
Jónsson (listó) sem m.a. rekur
fyrirtækið Grafísk hönnun og
sérhæfir sig í auglýsingum,
bæklingum, dreifibréfum og öðru
kynningarefni. Fyrr í haust sendi
hann menningarmálanefnd
Vestmannaeyjabæjar svohljóðandi
bréf:
Menningannálanefnd
Vestmannaeyjabœjar
Ráðhúsinu
Fyrir skömmu barst mér í hendur
kynningarbældingur með yfirskriftinni
SKANSINN SÖGUMINJASVÆÐI,
hannaður á auglýsingastofunni Gott
fólk-McCann-Erickson í Reykjavík
og prentaður í Svansprent sem er
prentsmiðja í Kópavogi. Ýmsar
spumingar vakna við nánari rýni í
þennan prentgrip. Ekki kemur skýrt
fram hver gefur út, og eða hver ber
ábyrgð á bæklingi þessum en
samkvæmt því sem ég kemst næst
mun það vera menningarmálanefnd
Vestmannaeyjabæjar. Vinsamlegast
gerið svo vel að senda mér svör við
eftirtöldum spumingum.
-Síðan leggur Jóhann fram spum-
ingar um hvort leitað hafi verið tilboða
í hönnun og prentun á bæklingnum og
hvort slíkra tilboða hafi verið leitað í
Eyjum. Ennfremur hver kostnaður
hafi verið við hönnun og prentun og
hver eða hveijir séu höfundar
ljósmynda í bæklingnum.
Þann 7. nóvember sl. barst Jóhanni
eftirfarandi bréf:
Grafísk hönnun
Bt. Jóhann Jónsson
Svör við spumingum samkvæmt bréfi
dags. 9. október 2000, þar sem óskað
er eftir upplýsingum varðandi hönnun
og prentun á bæklingi um Skansinn -
söguminjasvæði.
Var leitað tilboða í hönnun og
prentun bœklingsins?
Svar: Nei. Samkvæmt upplýsingum
frá bæjarritara hefur ekki verið leitað
tilboða í bæklinga áa vegum stofnana
bæjarins. Það er ekki útboðsskylda í
verkefni sem ekki er stærra í sniðum.
Auk þess að ekki er starfandi hönn-
unarfyrirtæki í'. Vestmannaeyjum,
samkvæmt upplýsingum frá opin-
bemm aðilum. Leitað var á vor-
mánuðum til fyrirtækisins Gott fólk -
McCann-Erickson þar sem bækling-
urinn átti að vera tilbúinn um mitt
sumar en stór hluti í gerð bæklings
sem þessa er markaðssetning, hvar
skal nýta og hvemig.
Fyrirtækið Gott fólk hefur í gegnum
tíðina verið Byggðasafni Vestmanna-
eyja mikill stuðningsaðili. Þar á
meðal hönnuðu þeir og gáfu safninu
logo þess árið 1998, tilbúið til
notkunar á öllu er Byggðasafninu
viðkemur.
Hvað kostaði hönnunin á umrœddum
bœklingi?
Svar: 290.000 kr.
Hvað kostaði prentunin?
Svar: 85.000 kr.
Hver eða hverjir eru höfundar
Ijósmynda íbœklingnum?
Svar: Sigurgeir Jónasson, ljós-
myndari Morgunblaðsins í Vest- Nanna Þóra Áskelsdóttir, forstöðu-
mannaeyjum, til heimilis að Smára- maður Safnahúss.
götu 11,900 Vestm.
Undir þetta svarbréf skrifar síðan
ÞAÐ hljóp á snærið hjá Alexander Jarli Þorsteinssyni á dögunum.
Hann keypti Batmanskó í Axel O og nafn hans fór um leið í pott sem
dregið er úr í morgunsjónvarpi á Skjá 1. Hann fékk einn vinninginn
sem er þessi forláta Batmanbfll. Nokkrir aðrir vinningar hafa komið
til Eyja að sögn Magnúsar Steindórssonar hjá Axel O.
eyjafrettir.is
til að fylgjast með
HELGA Dís og Steinunn vilja sjá ný andlit í bænum og þær
eru tilbúnar til að leggja sitt af mörkum til að svo verði.
Bjóða upp
ó verslunar-
ferðir til Eyja
Undanfarin ár hefur nokkuð
verið um að fólk í Eyjum hefur
farið sérstakar verslunarferðir
fyrir jól, bæði til útlanda og svo á
höfuðborgarsvæðið. Reyndar
hefur verulega dregið úr slíkum
ferðum og verslunarferðir til
útlanda hcyra nánast sögunni til
enda ekki lengur sá munur á
verðlagi á Islandi og ytra að
slíkar ferðir borgi sig.
Hið sama er raunar uppi á
teningnum í verslun innanlands,
þar er nánast enginn munur
orðinn á verðlagi milli landshluta
og þess raunar mörg dæmi að
hagstæðara sé að versla úti á
landi.
Nú hafa nokkrir áhugasamir
einstaklingar í Vestmannaeyjum
ákveðið að snúa dæminu við og
bjóða þeim sem búa á fasta-
landinu að bregða sér í
verslunarferð til Vestmannaeyja
á aðventunni og gera sér glaðan
dag í leiðinni og það á kosta-
kjörum. Það eru þau Helga Dís
Gísladóttir, kaupkona í Róma,
Steinunn Guðmundsdóttir,
veitingakona á Lundanum,
Jóhann Heiðmundsson
hótelstjóri á Þórshamri og Páll
Pálsson hjá PH-ferðum sem
standa fyrir þessu. Þær Helga
Dís og Steinunn segja að
hugmyndin hafi kviknað í haust
þegar þær uppgötvuðu að í
Vestmannaeyjum er að finna alls
40 sérverslanir og eru þá
matvöruverslanir, sjoppur og
hárgreiðslustofur ekki meðtaldar.
„Okkur finnst upplagt að kynna
þetta úrval verslana fyrir öðrum
Islendingum, fyrir nú utan allt
annað sem hægt er að gera í
leiðinni," segja þær.
Hópurinn hyggst einkum höfða
til íbúa á Suðurlandi og munu
Auróra Friðriksdóttir,
ferðamálafulltrúi, og Þorsteinn
Sverrisson, hjá Þróunarfélaginu,
aðstoða þau í þessari nýstárlegu
markaðsöfiun. „Við ætlum með
þeirra aðstoð að kynna þessa
starfsemi, bæði á Netinu og svo
með faxpósti, til þess að halda
kostnaði við kynninguna í
lágmarki,“ segja þær Helga Dís
og Steinunn.
Boðið verður upp á pakkaferð
til Eyja, frá föstudegi til sunnu-
dags. í pakkanum er innifalið far
með Herjólfi fram og til baka eða
flug frá Bakka, báðar leiðir,
akstur við komu til Eyja að Hótel
Þórshamri, gisting í tvær nætur
með morgunverði á Þórshamri,
glæsilegt jólahlaðborð og
danslcikur á Lundanum eða
Prófastinum og svo óvissuferð
með rútu. Verðið fyrir öll þessi
herlegheit er 11.500 kr. og er
tæplega hægt að segja að það sé
mikið, miðað við allt það sem
innifalið er. Raunar er verðið
miðað við að ferðast sé með
Herjólfi og kann að hækka ef
flogið er frá Bakka.
Þær Helga Dís og Steinunn segja
að þetta sé hugsað sem kynning á
því sem Vestmannaeyjar hafa
upp á að bjóða í skammdcginu og
ekki síst þeim möguleikum sem
40 sérverslanir í Eyjum bjóða
upp á. „En þá reynir Iíka á að
kaupmenn í Eyjum verði með
opið eftir hádegi á laugardögum.
Við reiknum með að þeir sem
koma til Eyja vilji nota þann tíma
til að Iíta í verslanir. Ef sæmilega
tekst til hjá okkur í þessu þá
teljum við það án vafa geta orðið
góða lyftistöng fyrir byggðarlagið
og þar með er tilganginum náð,“
sögðu þær Helga Dís og Steinunn
að lokum.
Upplýsingar vegna þcssara
ferða er hægt að fá í síma 892
7652 (Palli) eða 898 6448
(Steinunn).