Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Qupperneq 19

Fréttir - Eyjafréttir - 23.11.2000, Qupperneq 19
Fimmtudagur 23. nóvember 2000 Fréttir 19 Nissandeildin: Afturelding 35 - IBV 33 Stórskotahríð í Mosó ÍBV mætti Aftureldingu á föstu- dagskvöldið á heimavelli þeirra síðarnefndu og er óhætt að segja að áhorfendur hafi fengið mikið fyrir peninginn. Hvorki fleiri né færri en 68 mörk voru skoruð í leiknum sem skiptist jafnt á milli hálfleikja. Staðan í hálfleik var jöfn 17-17 en heimamenn voru sterkari í þeim síðari og sigruðu með tveimur mörkum, 35-33. IBV var þó mun sterkara í fyrri hálfleik og leiddi mestan hluta hans. Heimamenn byrjuðu leikinn þó betur og voru yfir fyrstu fimm mínútur leiksins en sáu svo ekki til sólar fyrr en á síðustu mínútu hálfleiksins þegar þeirjöfnuðu, fyrst 16-16 og svo 17-17. Seinni hálfleikur var ekki nógu vel leikinn af hálíú ÍB V, vömin sem var götótt í fyrri hálfleik var þá eitt stórt gat þar sem nánast allt fór í gegn. IBV átti þó undir högg að sækja úr tveimur áttum, bæði frá heima- mönnum og svo dómaraparinu sem virtist missa tökin á leiknum þegar á leið. Leikmenn IBV voru einum færri í átta mínútur samfleytt og á þeim leikkafla náðu heimamenn sex marka forystu, 25-19. En strákamir bitu í skjaldarrendur og náðu að minnka muninn niður í eitt mark, 34-33. En síðasta mark leiksins var heimamanna og þar með tryggðu þeir sér dýrmætan sigur. Guðfinnur Kristmannsson sagði í samtali við Fréttir að varnarleikurinn hefði ekki verið upp á marga fiska og orðið liðinu að falli í leiknum. Mörk ÍBV: Mindaugas Andriuska 10, Eymar Krúger 8/4, Svavar Vignisson 7, Daði Pálsson 3, Jón Andri Finnsson 2, Guðfinnur Kristmannsson 2, Erlingur Richardsson 1. Varin skot: Gísli Guðmundsson 14/1. Sund: Krónumótið Tvö Vestmannaeyjamet féllu Á föstudaginn síðasta, 17. nóvem- ber, héldum við í Sundfélaginu okkar árlega Krónumót sem er liður í fjáröflun félagsins. Þ.e. að hver sundmaður í eldri hópum félagsins safnar áheitum frá ein- staklingum eða fyrirtækjum og er borguð 1 kr. fyrir hvern metra sem sundfólkið syndir á 10 mínútum. Á undan sprettinum er alvöru inn- anfélagsmót þar sem allir fá að spreyta sig, og þar fá yngstu sundmennimir að taka þátt í sínu fyrsta móti. Til samanburðar höfðum við í fyrra bara einn D-hóp, sem eru yngstu sund- mennimir, en núna em tveir hópar og 21 sundmaður úr D-hóp syntiáföstu- daginn.Mótið gekk með miklum ágætum, þar féllu Vestmannaeyjamet. Tinna Rún Kristófersdóttir synti 200m baksund á tímanum 3:49.36 og Berglind Brynjarsdóttir synti 400m skriðsund á tímanum 6: 57.16, þær em báðar 10 ára gamlar. Sumir þátttakendur náðu lágmörkum inn á AMI 2001 og persónuleg met féllu í hrönnum. Á laugardeginum var svo verðlauna afhending, pizzupartý og farið í leiki með bömum og foreldrum. Og þar viljum við þakka Eðalsport kærlega fyrir aðstoðina og sitt framlag. Um næstu helgi em svo 13 sundmenn frá okkur að fara á BIKAR 2000 sem haldið er í Reykjavík að þessu sinni. Annað sem er framundan hjá okkur er jólasundmót sem haldið verður 15. desember og þar munu allir okkar sundmenn keppa. Og að sjálfsögðu verður eitthvað skemmtilegt gert í ffamhaldi af því. Stjórn Sundfélags ÍBV. VERÐ- LAUNAHAFAR á Krónumótinu ásamt þjálfara Sundfélagsins. Tippurum fatast flugið í hópaleiknum Loksins kom að því að mönnum fataðist flugið í hópakeppninni, enda mikið um óvænt úrslit. Til marks um það hversu óvænt úrslitin voru, má geta þess að rúmar 5 milljónir voru í verðlaun fyrir 13 rétta, en engin röð á Islandi fannst með svo marga rétta. Það er kannski til marks um hversu óvænt úrslitin voru, að þeir Reyni- staðarfeðgar Huginn og Helgi, sem vanari eru að fá skammarverðlaunin, en að fá flesta rétta náðu besta skorinu, 8 réttum og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn. Það má því kannski segja að þetta hafi verið dagur litlu liðanna jafnt sem litlu mannanna. Reyndar virðist vera að þeir hafi lagt rrúkla vinnu í seðilinn, því að þeir hringdu seðilinn inn aðeins örfáum mínútum áður en leikimir byrjuðu. Spumingin er hvort þeir hafi fengið upplýsingar á síðustu stundu, sem aðrir fengu ekki og verður það mál kannað nánar. Flestír aðrir hópar vom með frá 4 upp í 6 rétta, og er þetta slakasti árangur sem náðst hefur í haust. Keppnin er þó enn í jámum og Iangt því frá búin og því engin ástæða tila að skrópa í Týsheimilið næsta laugardag. A-riðilI Bahamas Boys 29, Dumb and Dumber 29, Doddamir 28, FF 26, Austurbæjargengið 25, B-riðiIl Reynistaður 30, HH 9 29, sson besti leikmaður ÍBV árið 2000 að stefna hétt í samtali við Fréttir sagðist Hlynur vera ánægður með þessar viðurkenningar en hann er ekki sáttur við gengi ÍBV síðasta sumar. „Eg er ósáttur við fjórða sætið í deildinni og tapið í bikarnum. Mér fannst búa meira í liðinu og við vera með nógu gott lið til að klára þetta en það vantaði meiri vilja og trú til þess að mínu mati. Þegar tvær umferðir voru eftir áttum við ágætis möguleika á Islands- og bikarmeistaratitlinum en báðir runnu okkur úr greipum En þetta sumar fer í reynslubankann og ég kvíði ekki framhaldinu. Mér líst vel á Njál Eiðsson þjálfara sem hefur mikla reynslu í þessari baráttu og svo eru að koma upp efnilegir strákar hjá okkur sem eiga vonandi eftir að láta til sín taka og ekki mikið seinna en í sumar. Hlynur hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Eiðs og sér hann um þjálfunina í Eyjum. Hlynur segir nauðsynlegt fyrir ÍBV að hafa metnaðinn í lagi og stefna hátt í fótboltanum og við eigum ekki að sætta okkur við neitt annað toppbaráttu. Bonnie & Clyde 28, Húskross 28 og Jó-Jó 26. C-riðill Pörupiltar 29, Landa- íjandar 29, Yngvi Rauðhaus 28, R.E. 27 og Vinir Ottós 27. D-riðill Bláa Ladan 32, Vinstri bræðingur 31, Klaki 30, Tveir á toppnum 28 og Óléttan 28. STEFÁN Erlendsson yfirtippari tekur við upplýsingum frá tippara úti í bæ. Engin úr meistara- liðinu í landsliðinu fslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik æfir nú af kappi fyrir leikina tvo gegn Slóvenum sem fram fara í byijun desember en það er liður í undankeppni Evrópu- mótsins í handbolta. Athygli vekur að Islandsmeistarar IBV, sem eru einnig meistarar meistaranna eiga engann fulltrúa í lansliðshópnum sem spilaði tvo æfingaleiki gegn Sviss ytra um helgina. Ástæður þess er líklega eintia helst að finna í hversu breytt lið ÍBV er, Ingibjörg Jónsdóttir og Andrea Atladóttir væru líklega með í för ef þær væru ekki hættar. Hins vegar vekur furðu að Vigdís Sigurðardóttir mark- vörður IB V er ekki í hópnum. Hlynur áfram Á lokahófi elstu fiokka knatt- spymumanna IBV sem fram fór á laugardaginn steig Hlynur Stefáns- son í pontu og tilkynnti að hann myndi spila með liðinu eitt tímabil enn. Ljóst er að IBV er mikill styrkur í Hlyn, enda virðist mað- urinn vera eins og gott vín sem fer bara batnandi með aldrinum. Hlynur hefur sem kunnugt er tekið það að sér að sjá um þjálfun leikmannahópsins sem staðsettur er í Eyjum, í það minnsta fram að áramótum. Hlé hjá stelpunum Nú hefur verið gert hlé á deildar- keppni kvenna í handknattleik vegna þáttöku landsliðsins í Evrópukeppni landsliða. Hléið varir í tvo mánuði hjá flestum liðum, ÍB V spilar reyndar tvo frest- aða útileiki í desember í deildinni og einn heimaleik gegn Fram í bikarkeppninni um miðjan des- embermánuð en svo spilar liðið ekki fyrr en 10. janúar gegn ÍR á útivelli. Svipað hlé er framundan hjá karlaliðinu, það er reyndar hálfum mánuði styttra og hefst um miðjan desember en IBV spilar svo gegn Val á heimavelli þann 4. febrúar. Það hefur einkennt lið IBV undan- farin ár að þau spili alltaf mun betur eftir áramót og með tilkomu þessara hléa má búast við að liðin verði jafnvel ósigrandi. Staðan orðin slæm hjáfV IV tók á móti Stúdentum á heima- velli sínum sunnudaginn síðast- liðinn. Eyjamenn, sem byrjuðu mótið með glæsibrag hafa að undanfömu ekki náð að sýna sitt rétta andlit, liðið er nú komið í neðri hluta fyrstu deildar og virðist fall- baráttan blasa við því. Leikurinn tapaðist með 19 stigum sem verður að teljast afar slakur árangur. Framundan Föstudagur 24. nóvember Kl. 20.00 ÍBV-Grótta/KR Nissan- deild karla Laugardagur 25. nóvember Kl. 18.00 IBV-Fylkir 1 Unglinga- flokkur Sunnudagur 26. nóvember Kl. 10.00 ÍBV-Fylkir 1 Unglinga- flokkur Kl. 13.30 ÍBV-FH 2.fl. karla Laugard.- sunnud. 4.fl. kvenna, fjölliðamót í Fram- húsinu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.