Fréttir - Eyjafréttir - 09.08.2001, Side 12
Fréttir
12
Fimmtudagur 19. apn'l 2001
, Beggi í Sóldögg:
I einu orði sagt,
frábært
-Mesti munurinn var róin og spektin sem ríkti í Dalnum, mun meiri læti í Eldborg og
óspektir og töluvert yngri krakkar," sagði hann en hljómsveitin lék á báðum stöðum
TROÐNINGUR var mikill á stóra pallinum þegar Sóldögg þanndi sig.
Bergsveinn Arilíusson eða Beggi
söngvarinn í Sóldögg er alveg
hiniinlifandi yfir viötökunum á
Þjóðhátíð.
„Eg man svona í lljótu bragði
ekki eftir neinu sem hetur hefði
mátt fara, þetta var einu orði sagt
frábært". Sóldöggvará
Eldborgarhátíðinni á föstudags-
kviildinu og spiluðu svo í
Herjólfsdal laugardags og
sunnudagskvöld og segir hann
töluverðan mun á þessum
hátíðum.
„Mesti munurinn var róin og
spektin sem ríkti í Dalnurn, mun
meiri læti í Eldborg og óspektir og
tiiluvert yngri krakkar," sagði
Beggi.
Hann var á sinni fjórðu þjóðhátíð
og man ekki eftir öðru eins, veðrið
liafi verið stórkostlegt allan tímann
og undirtektirnar með
hljómsveitunum magnaðar. „Eg
kíkti upp í brekku í pásunum og
fygldist með og það var áberandi
hversu glaðlynt fólkið var og við
erum þakklátir fyrir að fá að vera
á svæðinu þegar svona vel
gengur."
Veðrið spilar að sjálfsögðu stóran
þátt í hversu hljómsveitum gengur
vel að ná upp stemmningu og
Beggi er á því að veðrið hafi verið
eins og annað á hátíðinni, frábært.
„Svona veður er örugglega ekki
nema á tíu ára fresti á Þjóðhátíð."
Beggi segir að laugardagskvöldiö
fiafi verið frá hans bæjardyrum
skemmtilegra kvöldið, þá hafi
stemmningin við sviðið verið
einstök, fólk hafi hagaö sér vel og
greinilegt að þarna var
samankomiö l’ólk til að skenunta
sér. „Og eins mun ég seint gleyma
undirtcktunum sem við fengum
þegar við sungum Þjóðhátíðarlagið
eftir brekkusönginn hjá Árna,
menn höfðu misjafnar skoðanir á
laginu fyrir Þjóðhátíð en ég held að
fólk hafi verið sátt við lagið þegar
upp er staðið."
BEGGI fór mikinn á þjóðhátíðinni.
ÞÆR Kristjana og Þuríður Kristín voru sigurvegarar í
söngvakeppni barna á þjóðhátíðinni.
Þátttakendur
voru fimmtíu
í söngvakeppni barna sem er orðinn
einn af föstu liðunum á Þjóðhátíð
Söngvakeppni barna er orðinn einn
af föstu liðunum á Þjóðhátíð og í ár
voru 50 keppendur í tveimur
flokkum.
Það eru meðlimir hljómsveitarinnar
Dans á rósum sem hafa undir-
búninginn á sínum snærum og sam-
kvæmt Viktori Ragnarssyni bassa-
leikara tókst keppnin mjög vel að
þessu sinni.
„Það má líka alveg koma fram að
þetta er ekki bara að krakkamir hringi
inn og skrái sig og mæti svo í
keppnina. Við erum að vinna með
krökkunum vikuna fyrir Þjóðhátið við
æfingar."
Viktor segir að þeir félagar séu
mjög sáttir með hvernig til tókst, og
greinilegt að þessi liður er kominn til
að vera. „Fólk er farið að gera sér
sérstaka ferð í dalinn til að fylgjast
með og mér sýnist hreinlega stefna í
að á næsta ári verði að tvískipta
keppninni, svo margir eru kepp-
endurnir."
I llokki átta ára og yngri voru
keppendurnir 23 og sigurvegar varð
Kristjana Sigurðardóttir sem söng
lagið Eg veit þú kemur. I eldri
flokknum voru keppendur 27 og það
var Þuríður Kristín Sigurðardóttir sem
sigraði en hún söng titillag úr söng-
leiknum Flashdance sem Verslunar-
skóli Islands setti upp. Að vanda voru
verðlaunin vegleg og má þar nefna að
Landssíminn og Víftlfell leystu alla
krakkana út með gjöfum, en sigur-
vegararnir fengu m.a. átta þúsund
króna inneign hjá Sparisjóðnum,
ferðageislaspilara frá BT tölvum og
upptökutíma í hljóðverinu Studio
Tveir eins, og geta því fengið lagið sitt
STRÁKARNIR í Dansi á rósum voru viðloðandi barnadagskránna
og gerðu það vel.