Fréttir - Eyjafréttir - 09.08.2001, Page 16
Enn
hársnyrtistofa
SÍMI 481 3666
Rútuferðir - Bus TOURS
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
0)481 1909/896 6810 • Fax 481 1927
Vilhjálmur Bergsteinsson
* 481-2943
» 897-1178
SEMaÍPEIIMBÍLl.
Læknar og gæslumenn ánægðir með helgina:
Létt yfir gestum
á þióðhátíð
Læknar og gæslufólk sem var að
störfum um þjóðhátíðina er
nokkuð ánægt með gang mála og
segja að ekkert alvarlegt hafi
komið upp á. Gestir hafi verið til
mikillar fyrirmyndar og létt hafi
verið yfir þeim.
Sigríður Asa Maack var ein
þriggja lækna, allt konur, sem
skiptu með sér vöktum á þjóð-
hátíðinni. Hún segir að þetta hafi
gengið mjög vel. Fólk haft verið
mjög prútt og yfirhöfuð góðir
krakkar sem leituðu til þeirra.
„Ég var á vakt aðfaranótt mánu-
dags, þá voru flestar komur í
sjúkraskýlið en það voru allt minni
háttar pústrar." Sigríður segir að
það hafi komið sér á óvart hversu
vel þetta fór fram og hún væri alveg
tilbúin að koma aftur til að vinna á
þjóðhátíð.
„Það eina sem skyggir á hátíðina
en' nauðgunin sem var tilkynnt á
föstudagskvöldið. Að öðru leyti fór
þetta vel fram og athyglisvert hvað
létt var yfir þjóðhátfðargestum.
Armann Höskuldsson var ábyrgur
fyrir gæslumálum í dalnum, hann
segir þetta vera allra rólegustu
þjóðhátíð sem menn haft kynnst og
það haft í raun ekkert verið að gera
fyrir þá 140 gæslumenn sem voru
til staðar.
„Sem dæmi kom aðeins ein færsla
í dagbók okkar yfir daginn alla
dagana." :
Armann segir að mesti erillinn hafi
verið aðfaranótt mánudagsins en
það hafi ekki verið meira en gerist á
venjulegu föstudagskvöldi í bæn-
um.
„Það er greinilegt að við fengum
mjög gott fólk til Eyja og eins held
ég að samvinna lögreglu, þjóð-
hátíðarnefndar og okkar sé að skila
sér í bættri gæslu, menn eru alltaf
að gera þetta betur og betur.“
Lögreglan:
Mest tekið af
E-töflum
Alls komu 13 fíkniefnamál upp í Amfetamín 10,1 gr
kringum þjóðhátíð. Þau efni, Hass 4,4 gr
sem hald var lagt á af lögreglu, E-töflur 45 stk.
skiptast þannig eftir tegundum Marijuana 4,8 gr
og magni: Tóbaksbl. hass 0,5 gr
Kannabisfræ 9 stk.
Vinnslustöðin
opin, ísfélagið
lokað
Sá háttur hefur verið á undan-
farin ár að Vinnslustöðin og
Isfélagið loki frystihúsum sínuni
yfir ágústmánuð.
Sú verður raunin hjá Isfélaginu
einnig í ár og er stefnt að því að
byrja aftur vinnslu þar mánudaginn
3. september. Vinnslustöðin aftur á
móti hóf vinnslu á ný í gær og eru
bátarnir nú famir að streyma á sjó
eftir stopp vegna þjóðhátíðar.
VILLIKETTIRNIR komu sáu og sigruðu
Sjaldan eða aldrei hafa jafn margir hópar mætt í
búningum á þjóðhátíð og nú. Þessi háttur unga fólksins
setur skemmtilegan svip á hátíðina og er mikill metnaður
milli þeirra. Þessar ungu stúlkur, sem mættu í gervi
villikatta, unnu búningakeppnina að þessu sinni.
Smurostar, WOgr.
179kr.-áður208■
Princekex, 2pk. saman
179 kr.-áður215-
Trópiflaska, 330 ml.
75 kr.- áður 89-
Topis örbylgjuréttir, 4 tegundir, 375 gr.
349 kr.- áður39B-
Orville örbylgjupopp,
fjölskyldupakki
319 kr.-áður 388