Vesturland - 28.08.2014, Qupperneq 6
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata, HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7, AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
MIKIÐ ÚRVAL VARAHLUTA
Sími: 535 9000www.bilanaust.is
3 ÁRA
ÁBYRGÐ
6 28. ÁGÚST 2014
Stykkishólmsbær:
Herör skorin upp gegn
númerslúsum bifreiðum,
óskráðum byggingum,
gámum og fleiru
Bæjarstjórn Stykkishólms hefur óskað eftir afstöðu skipulags- og byggingarnefndar bæj-
arins vegna lausafjármuna, gáma,
númarlausa bíla og óskráðra
bygginga sem hafa verið kortlagðar
í Stykkishólmi. 36 gámar eru inn
á atvinnu- og iðnaðarlóðum en
aðeins er greitt af tveimur þeirra.
14 gámar eru utan lóðar og hefur
þeim fækkað verulega á síðustu
mánuðum. 6 byggingar eru óskráðar
inn í Stykkishólmsbæ en 9 hús eru
óskráð á Nýræktarsvæðinu. Núm-
eralausum bílum innan bæjarmarka
hefur fjölgað mjög, bæði á íbúðar-
húsalóðum og atvinnuhúsalóðum
og er enginn þeirra með stöðuleyfi.
Skipulags- og byggingarnefnd hefur
lagt til að áfram verði unnið að því að
koma þessum málum í rétt horf. Af-
greiðsla nefndarinnar var samþykkt.
L-listinn lét bóka að mikið hafi
áunnist í þessum málum á undan-
förnum árum og að hluta til kemur
fram í fundargerð Skipulags- og
bygginganefndar. Í þessu sambandi
beri að nefna gjörbreytta ásýnd á
Ögursvegi og Reitarvegi. Einnig megi
nefna nýtt gámasvæði við Snoppu,
sem búið er að ákveða að stækka.
Fulltrúar L-ista, þau Lárus Ástmar
Hannesson, Ragnar Már Ragnars-
son og Helga Guðmundsdóttir, leggja
áherslu á að áfram verði unnið af
einurð í þessum málaflokki.
Deiliskipulag
hafnarsvæðis
Samþykkt hefur í bæjarstjórn Stykk-
ishólms að hafin vrði vinna við gerð
deiliskipulags af hafnarsvæðinu.
Þess gerist þörf vegna fyrirhugaðra
breytinga á aðalskipulagi sem er
forsendan fyrir breytingum á notkun
hússins Austurgötu 7 sem unnið er
að á vegum Kaþólsku kirkjunnar á
Íslandi.
Samrekstur Grunnskóla
og Tónlistarskóla
Bæjarstjórn hefur samþykkt að
setja af stað vinnu við endurmat
þeirra tillagna sem liggja fyrir um
stækkun skólahússins, samrekstur
Grunnskóla og Tónlistarskóla og nýtt
hlutverk fyrir gamla skólahúsið sem
hefur hýst Tónlistarskólann undan-
farin ár. Jafnframt verði skoðað
hvort með einföldum aðgerðum og
breytingum mætti fjölga nýtanlegum
kennslustofum.
Héraðsskjalasafn Akraness:
Reglulegt sýningarhald í sal
Bókasafns Akraness og sýningar-
skápur í Bónus á Akranesi
Hlutverk Héraðsskjalasafns Akraness er söfnun, inn-heimta, skráning og varðveisla
skjala og annarra skráðra heimilda um
starfsemi og sögu Akraneskaupstaðar,
til notkunar fyrir yfirvöld, stofnanir og
einstaklinga, til þess að tryggja hags-
muni og réttindi þeirra og til notk-
unar við fræðilegar rannsóknir á sögu
sveitarfélagsins. Safnið hefur eftirlit
með skjalasöfnum afhendingarskyldra
aðila og lætur þeim í té leiðbeiningar
um skjalavörslu og ákveður um ónýt-
ingu skjala, sem ekki er talin ástæða til
að varðveita til frambúðar.
Hlutverk safnsins er í meginatriðum
tvíþætt:
a) Stjórnvaldshlutverk:
- Leiðbeina stofnunum sveitarfé-
lagsins um skjalastjórn
- Hafa eftirlit með skjalavörslu
stofnana sveitarfélagsins
- Varðveita eldri skjöl sveitarfélags-
ins á tryggan hátt
- Hafa skjölin skráð og aðgengileg
til notkunar
- Afgreiða fyrirspurnir úr skjölum
samkvæmt gildandi lögum
b) Menningarhlutverk:
- Safna og varðveita skjöl um sögu
Akraness og Akurnesinga
- Rannsaka og kynna sögu Akra-
ness t.d. með sýningum og út-
gáfum og þannig efla þekkingu
á sögu sveitarfélagsins.
- Stuðla að auknum rannsóknum
almennings og fræðimanna á sögu
Akraness.
Meginverkefni Héraðsskjalasafns
Akraness er móttaka eldri skjala frá
stofnunum og fyrirtækjum sveitarfé-
lagsins, eftirlit og leiðbeiningar um
skjalastjórn til stofnana og afgreiðsla
fyrirspurna. Enn fremur söfnun
einkaskjalasafna, sem eru skjöl frá
einstaklingum, félögum og fyrir-
tækjum á Akranesi.
Fólk til starfa
í átaksverkefni
Í tilefni af 50 ára afmæli Akraneskaup-
staðar árið 1992 var tekin sú ákvörðun
að stofna skyldi Héraðsskjalasafn Akra-
ness og var það stofnað formlega í apríl
árið eftir. Skjalasafnið hóf starfsemi
sína í Bókhlöðunni, Heiðarbraut 40 en
þar voru fyrir í húsinu skjalageymslur
kaupstaðarins í kjallaranum, bókasafn
á fyrstu hæð og skrifstofur á annarri
hæð. Árið 2009 flutti safnið að Dal-
braut 1 þar sem eldra húsnæðið þurfti
mikillar viðgerðar við. Safnið deilir
húsnæði með Bókasafni Akraness og
Ljósmyndasafni Akraness. Umdæmi
safnsins er Akraneskaupstaður og
héraðsskjalavörður er Gerður Jóhanna
Jóhannsdóttir.
Starf héraðsskjalavarðar Akraness
er að sinna hinum hefðbundnu ver-
kefnum sem til falla á skjalasafni.
Frá og með árinu 2007 var rekstur
Héraðsskjalasafns og Ljósmynda-
safns Akraness færður til Bókasafns
Akraness. Þetta var gert með sparnað
í huga, söfnin deildu með sér hús-
næði og ýmsum tækjabúnaði og því
þótti hagræði að sameina söfnin í
eina rekstrareiningu. Bróðurpartur
skjala héraðsskjalasafnsins kemur
frá Akraneskaupstað og stofnunum
hans. Einnig berst til safnsins tölu-
vert magn einkaskjala sem koma
frá einstaklingum, félagasamtökum,
fyrirtækjum og öðrum einkaaðilum.
Héraðsskjalasafn Akraness leitar ým-
iss leiða til að koma efni sínu til al-
mennings. Reglulegt sýningarhald í sal
Bókasafns Akraness er þar fyrirferða-
mest en safnið hefur einnig brugðið á
það ráð að koma sýningum að annars
staðar og sem dæmi má nefna að settur
var upp sýningarskápur í verslun Bónus
á Akranesi.
Héraðsskjalasafnið hefur lagt til
greinar og efni í Árbók Akurnesinga
og fleiri rit. Ljósmyndir safnsins og efni
úr skjalasafni hafa einnig verið tölu-
vert nýtt til sýningarhalds á Akranesi
og víðar. Þar bera hæst tvær sýningar:
Hernámið – á Akranesi, í Borgarnesi
og í Hvalfirði en hún stóð sumarið 2008
í Listasetrinu Kirkjuhvoli og sýningin
Börn – í hundrað ár sem opnaði í Safna-
húsi Borgarness árið 2008 og stendur
enn. Í sýningarhaldi hefur samstarf
við önnur söfn á svæðinu skipt höf-
uðmáli og ber þar að nefna samstarf
við Byggðasafnið í Görðum, Listasetrið
Kirkjuhvoll, Safnahúsið í Borgarnesi og
Snorrastofu í Reykholti. Skjalasafnið
hefur sóst eftir því að fá fólk til okkar
í átaksverkefni í skráningu skjala og
skönnun ljósmynda og filma. Í gegnum
árin hafa þau verkefni gengið vonum
framar og stofnunin hefur notið góðs
af því að til hennar hafa valist sérstak-
lega vandvirkir einstaklingar sem hafa
aukið verulega við þann sagnabrunn
sem skjalasafnið myndar. Í dag starfar
safnið með héraðsskjalavörð í 100%
starfi og hefur einnig starfsmann í
átaksverkefni.
Héraðsskjalasafn Akranes er að Dalbraut 1 á Akranesi. Þar er margt að finna
og sjá, bæði fyrir fræðimenn og almenning.
Grunnskólinn í Stykkishólmi. Stefnt er að samrekstri grunnskóla og tón-
listarskóla.