Vestfirðir - 06.11.2014, Blaðsíða 3
AT
HY
GL
I
Álagsprófanir vegna nýrrar varaaflsstöðvar
Mánudagur 10. nóvember
Prófanir fara fram að degi til. Öll
vélasamstæðan verður keyrð á fullu
afli í fjóra tíma til að prófa vélar, öll
hjálparkerfi og reyna að finna veikleika
í kerfinu.
Notendur eiga ekki að verða varir við
þessa prófun.
Þriðjudagur 11. nóvember
Prófanir fara fram aðfaranótt
þriðjudags. Þær felast í því að „leysa
út“ Breiðadalslínu og vera með
dísilvélar í varaaflsstöðinni í fullri
keyrslu til að kanna getu þeirra til að
reka einar „eyjuna“ sem þá myndast í
svæðiskerfinu.
Notendur eiga ekki að verða varir við
þessa prófun.
Miðvikudagur 12. nóvember
Prófanir halda áfram aðfaranótt
miðvikudags. Þá verður prófað að leysa
aftur út Breiðadalslínu, þannig að vélar
í varaaflsstöðinni þurfi að keyra upp og
spennusetja norðurhluta Vestfjarða
með aðstoð snjallnetsstýringa.
Þessar prófanir munu orsaka
straumleysi hjá notendum í Bolungarvík
og á Ísafirði en til að truflanir verði
sem minnstar eru þær framkvæmdar
að næturlagi.
Fimmtudagur 13. og föstudagur
14. nóvember
Aðfaranætur fimmtudags og föstudags
fara umfangsmestu áfangar prófananna
fram. Þá verður straumur tekinn af
Vesturlínu til að prófa nýjar stillingar
stjórnbúnaðar í Mjólkárvirkjun, virkni
snjallnetsstýringa og virkni nýju
varaaflstöðvarinnar í Bolungarvík fyrir
stýringu svæðiskerfisins á Vestfjörðum.
Jafnframt verða könnuð áhrif
mismunandi keyrslu véla í Mjólkárvirkjun
á frammistöðu svæðiskerfisins.
Straumlaust verður hjá öllum íbúum
Vestfjarða í þessum hluta prófananna
en reynt verður að lágmarka
straumleysið umræddar nætur.
Þriðjudagur 18. og
miðvikudagur 19. nóvember
Til öryggis hefur Landsnet einnig
sótt um leyfi fyrir prófanir aðfaranótt
þriðjudagsins 18. og miðvikudagsins
19. nóvember ef þörf verður á að
endurtaka prófanir vegna nýrra stillinga
stjórnbúnaðar í Mjólkárvirkjun, virkni
snjallnetsstýringa og virkni nýju
varaaflstöðvarinnar í Bolungarvík fyrir
stýringu svæðiskerfisins á Vestfjörðum.
Straumlaust verður hjá öllum íbúum
Vestfjarða umræddar nætur ef af
þessum prófunum verður. Er vissara
fyrir íbúa að vera viðbúnir straumleysi
en sem fyrr verður reynt að halda því
í lágmarki.
Nú styttist í að sameiginlegt markmið
Landsnets og Orkubús Vestfjarða, um
að draga úr straumleysi hjá notendum
á Vestfjörðum, verði að veruleika með
tilkomu nýrrar 10 MW varaaflsstöðvar
Landsnets í Bolungarvík.
Framkvæmdir hófust árið 2013 og
er nú verið að leggja lokahönd á
verkið með prófunum á vélbúnaði
og tæknibúnaði. Einhverjar truflanir
hafa þegar orðið hjá notendum
vegna þessara prófana og biðjumst
við velvirðingar á því en jafnframt vil
ég biðla til Vestfirðinga um að sýna
okkur þolinmæði enn um sinn því nú er
framundan síðasti áfangi prófananna,
sem eru álagsprófanir á svæðiskerfið
vestra. Það er fyrirséð að þær munu
valda truflunum hjá notendum á
öllum Vestfjörðum en að sjálfsögðu
reynum við að lágmarka áhrifin eins og
kostur er, m.a. með því að gera flestar
þessara prófana að næturlagi. Hér fyrir
neðan eru dagsetningar fyrirhugaðra
prófana og bið ég alla um að kynna
sér þær vel, svo draga megi sem mest
úr þeim óþægindum sem alltaf fylgja
straumleysi.
Landsnet hefur lengi leitað leiða til
að auka afhendingaröryggi raforku á
Vestfjörðum svo íbúar svæðisins megi
njóta svipaðra gæða í orkuafhendingu
og aðrir landsmenn. Nýtt tengivirki á
Ísafirði, endurnýjun og endurbætur
á rafmagnslínum í svæðiskerfinu
vestra, lagning jarðstrengs milli
Ísafjarðar og Bolungarvíkur
og bygging nýs tengivirkis og
varaaflsstöðvar í Bolungarvík eru allt
áfangar á þeirri leið. Mikilvægasti
þátturinn en sá minnst sýnilegi er
hins vegar uppsetning svokallaðra
snjallnetsstýringa í flutningskerfinu.
Ef bilun verður á Vesturlínu, sem flytur
rafmagn frá meginflutningskerfinu
til svæðiskerfisins vestra, eiga
snjallnetsstýringarnar að grípa
strax inn í að ákveðnum forsendum
uppfylltum og ræsa varavélar í
Bolungarvík þannig að straumleysi vari
mun skemur en áður.
Í trausti þess að við náum tilætluðum
árangri bið ég íbúa á Vestfjörðum enn
og aftur um að sýna okkur skilning
og þolinmæði meðan á umræddum
prófunum stendur.
Þórður Guðmundsson forstjóri
Landsnets
Yfirlit yfir prófanir dagana 10.-19. nóvember 2014
Ágætu Vestfirðingar!