Vestfirðir - 06.11.2014, Side 12
6. Nóvember 201412
Sviðaveisla
í Sævangi
Það var mikið um dýrðir í Sævangi fyrsta vetrardag, laugardaginn 25. október, en
þá var haldin vegleg sviðaveisla á
Sauðfjársetrinu. Fullt hús var eða rétt
um 100 manns eins og verið hefur
síðustu tvö ár á slíkum veislum hjá
Sauðfjársetrinu. Á boðstólum voru
ný heit svið, einnig köld svið reykt
og söltuð, sviðasulta og sviðalappir
með tilheyrandi meðlæti. Í eftirmat
var blóðgrautur, ábrystir og rabar-
baragrautur, þannig að eitthvað var
fyrir alla. Skemmtiatriði voru á meðan
á borðhaldi stóð, meðal annars var
leikritið Smal heimsfrumsýnt, en það
var kynnt sem einskonar námskeið í
árangursríkri smalamennsku í túlkun
Leikfélags Hólmavíkur. Ræðumaður
kvöldsins var sveitarstjóri Stranda-
byggðar, Andrea Kristín Jónsdóttir.
Veislustjóri á sviðaveislunni
var Viðar Guðmundsson, bóndi á
Miðhúsum og sýndi góða takta í þessu
hlutverki . Þá var boðið upp á bingó
undir borðum, og veislugestir kunnu
greinilega vel að meta það. Sauðfjár-
setrið á Ströndum stóð fyrir sviða-
veislunni. Ester Sigfúsdóttir er fram-
kvæmdastjóri Sauðfjársetursins og
henni brá fyrir í mörgum hlutverkum
um kvöldið, meðal annars lék hún í
leikritinu. Segja má að skemmtunin
hafi borið þess vitni að Strandamenn
kunna vel að eiga saman góða kvöld-
stund.
ræðumaður kvöldsins Andrea K. Jón-
asdóttir, sveitarstjóri.
reykhólamenn fjölmenntu á sviðaveisluna.
Dransnesingar létu sig ekki vanta.
matthías Lýðsson, bóndi í Húsavík og Jóhannes Ingi Kol-
beinsson.
Leikendur í leikverkinu Smal.
Fulltrúar gamla og nýja tímans í leikritinu.
Þessar vösku konur höfðu veg og vanda af veitingunum.
Jóna Þórðardóttir frá Litla-Fjarðarhorni og ólafía Jóns-
dóttir frá Skriðnesenni.