Vestfirðir - 06.11.2014, Blaðsíða 14

Vestfirðir - 06.11.2014, Blaðsíða 14
MIKIÐ ÚRVAL DEKKJA Á BETRA VERÐI - DEKKJAHOLLIN.IS iG50 V902AiG35 PF-3D PF-5 Vetrardekkin færðu á dekkjahollin.is 1. Leitar eftir stærð 2. Setur dekkin í körfu 3. Velur flutningsmáta 4. Gengur frá greiðslu 14 6. Nóvember 2014 Orkukostnaður: Hækkun virðisaukaskatts eykur ójöfnuðinn Fyrirhuguð hækkun neðra þreps virðisaukaskatts úr 7% í 12% eykur ójöfnuðinn sem þegar er við lýði í kyndingarkostnaði íbúðarhúsnæðis. Orkustofnun hefur reiknað út að hækkunin muni hækka orkureikning Ísfirðinga um 8.228 kr. á ári en hækkunin verður mun minni þar sem kyndingarkostnaðurinn er lægstur svo sem á Akureyri og í Reykjavík. Á Akureyri verður hækk- unin 3.318 kr og 3.554 kr. í Reykjavík eða tæplega 5.000 kr. minni hækkun en á Ísafirði. Það vekur athygli að raforkuverðið er svipað í þéttbýli óháð staðsetningu 60.000 - 69.000 kr. á ári með þem frá- vikum að á Akureyri er kostnaður- inn um 60.000 kr og aftur verulega hærri í dreifbýlinu, 86.000 kr. Hins vegar liggur munurinn milli staða fyrst og fremst í hitunarkostnaði. Hann er 84 þúsund kr. á Akureyri yfir árið og 91.000 kr í Reykjavík fyrir virðisaukaskatt en 185.000 kr til 200.000 annars staðar skv. töflu Orkustofnunar. Á hitann er reiknaður 7% virðisaukaskattur sem mun svo hækka í 12% ef áform ríkisstjórnar- innar ná fram að ganga. Á móti mun virðisaukaskattur af raforkunotkun lækka úr 25,5% í 24% e samanlögð áhrif af báðum breytingunum verður eins og fyrr segir að hækkunin verður um 5.000 kr. meiri á köldu svæðum landsins en þeim sem njóta jarðhitans. Heildarraforku- og húshitunar- reikningurinn yfir árið er fyrir við- skiptavini Orkubús Vestfjarða í þétt- býli um 100 - 120 þúsund kr. hærri en í Reykjavík eða á Akureyri og fyrir dreifbýlisnotendur á Vestfjörðum er munurinn 130 - 150 þúsund kr. Segja má að orkureikningurinn sé um 70% hærri á Ísafirði en á Akureyri. Í þessum efnum er landsjöfnun á raf- orkuverðinu en hins vegar er jarðhit- inn nokkurs konar einkahlunnindi jarðeigenda sem íbúar köldu svæð- anna virðast ekkert tilkall eiga til. Því hefur ekki verið hreyft á Alþingi að breyta þessu. Kvíar í Jökulfjörðum Endurbætur standa yfir á hinu reisulega íbúðarhúsi sem stendur í Kvíum í Jökulfjörðum. Skútusiglingar ehf hafa gert samkomu- lag við eigendur jarðarinnar um endur- bætur hússins og var farið nú í haust þangað og unnið við viðgerðir. Rúnar Óli Karlsson var einn ferðalanga og tók þessar myndir af starfinu. Húsið reisti Jón Jakobsson árið 1923 og er því svo lýst Því er svo lýst í matsgjörð sem finna má í Grunnvíkingabók: „Húsið er úr steinsteypu 13x11 álnir að utanmáli, kjallir 3½ álnir undir loft í 4 herbergjum; milliveggir steyptir og allur af sléttaður, þar eldavél, vatns- leiðsla, frárennsli. Fyrstu hæð 3½ álnir undir loft í 4 herbergjum auk forstofu, öll panelklædd, sum betrekkt, sum olíuborin, brandplötur allar steyptar, 2 ofnar og kamína. Efri hæð einnig í 4 herbergjum auk gangs, allt innréttað með panel, gólfin bæði úr 5/4 tommu gaflborðum, þak úr áunnum borðum, pappalagt, bikað og sandborið og þar yfir járnþak.“ Síðustu ábúendur í Kvíum voru Jakob Falsson úr Barðsvík, sem fluttits að Kvíum 1906 og Guðbjörg Jónsdóttir frá Kvíum. Þau bjuggu þar frá 1925 til 1948. Eins og myndirnar bera með sér er myndarlega staðið að endurbótum. Áhrif virðisaukaskattsbreytinga á rafmagns- og hitaverð Reykjavík Grundar- fjörður Ísafjörður Akureyri Höfn Dreifbýli Rafmagn 66.999 68.898 67.053 60.046 68.898 86.364 Hiti 91.177 188.955 184.684 84.371 185.644 197.790 VSK 24% 16.080 16.356 17.099 14.411 16.536 20.727 VSK 12% 10.941 22.675 22.162 10.125 22.277 23.735 Samtals 185.197 296.884 290.998 168.953 293.355 328.616 Hækkun 1,96% 2,92% 2,92% 2,00% 2,89% 2,69% Hækkun 3.554 8.414 8.228 3.318 8.249 8.594 Forsendur: Raðhús 140 m² og 420 m³ kWst/ári Almenn raforkunotkun 5.000 kWst/ári Rafhitun 28.500 KWst/ári Hitaveita 1,5 m3/m3 húss 630 m3/ári Heimild: Orkustofnun, sept. 2014. Auglýsingasíminn er 578 1190

x

Vestfirðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.