Fréttir - Eyjafréttir - 09.01.2003, Page 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 9. janúar 2003
Fréttir og Fjölsýn afhenda viðurkenningar fyrir árið 2002:
Gunnlaugur og Haraldur
menn ársins 2002
Hlynur Stefánsson fékk viðurkenningu fyrir framlag til íþrótta, áhöfn
björgunarbátsins Þórs og Þórarinn Sigurðsson fengu viðurkenningu
fyrir björgun og Bergur-Huginn ehf. er fyrirtæki ársins 2002
BARÁTTAN um hlut í Vinnslustöðinni er í rauninni mikil viðurkenning fyrir stjórnendur félagsins og annað starfsfólk því tekist hefur að
snúa vörn í sókn hjá félaginu. Þessi árangur hefur vakið athvgli og var strax Ijóst að áhugi á bréfum í Vinnslustöðinni var þó nokkur en
spurningin var, hver hreppti hnossið og hvað það þýddi fyrir félagið og Vestmannaeyjar?
Eyjamenn ársins 2002:
Með hagsmuni Eyjanna að leiðarljósi
Á mánudaginn fór fram
árleg afhending Frétta
á viðurkenningum til
þeirra sem að mati
blaðsins hafa skarað
fram úr á sínu sviði í
Vestmannaeyjum á
síðasta ári. Að þessu
sinni fengu fimm aðilar
viðurkenningar.
Þeir eru Gunnlaugur
Olafsson og Haraldur
Gíslason sem voru
tilnefndir Eyjamenn
ársins 2002 fyrir
framgöngu þeirra í að
koma ráðandi
meirihluta í Vinnslu-
stöðinni í hendur Vest-
mannaeyingum.
Björgunarfélagið,
áhöfnin á björgunar-
bátnum Þór og
Þórarinn Sigurðsson
fengu viðurkenningu
fyrir björgun á tveimur
mönnum sem voru hætt
komnir eftir að þeir
lentu í sjónum við
Elliðaey síðasta sumar.
Fyrirtæki ársins 2002 er
Bergur-Huginn ehf. sem
gerir út frystitogarann
Vestmannaey VE og
Smáey VE. Stendur
félagið á þrítugu um
þessar mundir. Þá fékk
Hlynur Stefánsson,
knattspyrnumaður,
viðurkenningu fyrir
framlag hans til íþrótta
á 20 ára farsælum ferli.
Athöfnin fór fram í
Höllinni og var hún
sýnd beint á Fjölsýn og
endursýnd klukkan átta
um kvöldið.
„Þcgar litið er yfir árið 2002 í
Vestmannaeyjum kemur í Ijós að
þar hafa skipst á skin og skúrir.
Ymislegt hefur líka verið að gerast
sem enn sér ekki fyrir endann á en
það sem kannski er efst í hugum
okkar er þegar þeir mágarnir
Gunnlaugur Olafsson og Haraldur
Gíslason sneru bökum saman og
ákváðu að ekki væri verjandi fyrir
Vestmannaeyinga að missa algjör-
lega yfirráðin yfir Vinnslustöðinni,“
sagði Ómar Garðarsson, ritstjóri
Frétta, þegar hann gerði grein fyrir
forsendum á vali á mönnum ársins
2002 í Vestmannaeyjum.
„Lengst af undanfarin ár hefur
meirihluti hlutabréfa í Vinnslustöðinni
verið í eigu Olíufélagsins Esso og
félaga sem tengdust því félagi á ein-
hvem hátt. Þessir aðilar hafa reynst
Vinnslustöðinni vel og sýndu þolin-
mæði þegar hún var hvað verst sett.
Ekki ætla ég að rekja þessa sögu nánar
hér en allt í einu var Vinnslustöðin
orðin skiptimynt á taflborði viðskipta-
lífsins.
Þetta var í rauninni mikil viður-
kenning fyrir stjómendur félagsins og
annað starfsfólk því tekist hafði að
snúa vöm í sókn hjá félaginu. Þessi
árangur hefur vakið athygli og var
strax ljóst að áhugi á bréfum í
Vinnslustöðinni var þó nokkur en
spurningin var, hver hreppti hnossið
og hvað það þýddi fyrir félagið og
Vestmannaeyjar?
Gulli og Halli voru ekkert á þeim
buxunum að bíða eftir svari við
þessari spumingu og ákváðu að taka
þátt í atburðarásinni. Sjálfir vilja þeir
ekki gera mikið úr sínum hlut og segja
að mikil vinna sé framundan en í
fyrsta kafla náðu þeir settu marki.
Ekki skal gert lítið úr þeirri full-
yrðingu þeirra um það sem framundan
er því rekstur fyrirtækja á íslandi í dag
er stöðug barátta. Þegar tekist er á um
milljarða eins og í þessu dæmi verða
margir þættir að ganga upp eigi að
nást farsæll endir.
í slag við þá stóru
Sé þetta mál skoðað í víðara samhengi
þá hefur það held ég ekki gerst áður að
heimamenn í sjávarplássi taki sig til
og fari í slag við þá stóru í fjármála-
heiminum. Gæfa okkar í Vest-
mannaeyjum er að bæði stóm fyrir-
tækin, ísfélag og Vinnslustöð eru að
meirihluta í eigu heimamanna. Þeir
Gulli og Halli lögðu sitt af mörkum til
að svo gæti orðið með Vinnslustöðina.
Fyrir það em þeir, að mati Frétta og
Fjölsýnar, Eyjamenn ársins 2002.
Megi gæfan fylgja þeim og fyrir-
tækinu og mun ekki af veita því þeir
hafa lagt allt sitt undir og ríflega það.
Gulla og Halla finnst við hæft að
framkvæmdastjórinn, Sigurgeir Brynj-
ar Kristgeirsson, eða Binni í Vinnslu-
stöðinni taki við viðurkenningunni. Er
það vel því Binni hefur verið farsæll í
starfi og hefur farið fyrir starfsfólki
Vinnslustöðvarinnar sem hefur tekist
að koma Vinnslustöðinni í fremstu röð
sjávarútvegsfyrirtækja á landinu,“
sagði Ómar.