Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 06.02.2003, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 06.02.2003, Blaðsíða 11
10 Fréttir Fimmtudagur 6. febrúar 2003 Fimmtudagur 6. febrúar 2003 Fréttir 11 Frábær árangur hjúkrunarnema í fjarnámi: Einstakur möguleiki -fyrir þá sem vilja afla sér menntunar á háskólastigi í heimabyggð Síðastliðið haust hófst farnám í hjúkrunarfræði, frá Háskólanum á Akureyri, í Vestmannaeyjum. Kennt er á Akureyri en nemendur hér eins og þar mæta í sína tíma og fylgjast með fyrirlestrum og umræðum í gegnum fjarfundabúnað sem staðsettur er í Framhaldsskólanum. Kennarinn miðlar því upplýsingum landshorna á milli, þ.e. til nemenda sem sitja tíma hjá honum á Akureyri og þeirra sem sitja í skólastofu í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Þar hafa nemendur ágæta aðstöðu enda þarf svo að vera þar sem námið er strangt og áætlaður námstími er fjögur ár. Þrettán nemendur hófu námið en ellefu luku prófum fyrir jól og halda námi áfram. Samantektgudbjorg@eyiafrettir.is HJÚKRUNARNF.MARNIR. Fremsta röð f.v. lðunn Disa Jóhannesardóttir, Margrét Þorsteinsdóttir, Hrund Gísladóttir og Elísabet Þórisdóttir. Mið röð Auður Asgeirsdóttir, Rósa Guunnarsdóttir, Auður Einarsdóttir og Vallý Ragnarsdóttir. Efsta röð Aðalasteinn Baldursson, Eygló Alda Sigurðardóttir, Ragnheiður Helgadóttir frá Akureyri og Ásta Gústafsdóttir. Þetta er skipulag -segir Auður Asgeirsdóttir, dúx, sem líka stundar söngnóm Auður Ásgeirsdóttir, nemandi í hjúkrunarfræði, fékk 10 í líffærafræði í samkeppnisprófi um jólin sem verður að teljast frábær árangur. Auk þess var hún með 9 í vefja- og frumulíffræði, hjúkrun og sálfræði. Hún segir námið bæði skemmtilegt og krefjandi en það tengist hennar áhuga- sviði. „Ég var alltaf með þetta nám á bak við eyrað en það stóð í mér að flytja upp á land með ijölskylduna enda vorum við í verslunarrekstri og ekki hæg heimatökin. Þegar þetta tækifæri bauðst þá var ekki spuming að drífa sig því mér finnst þetta spennandi og kannski spilar inn í að mamma, Sól- veig Guðnadóttir, er hjúkrunarfræð- ingur og hefur starfað við þetta í mörg ár.“ Auður útskrifaðist sem stúdent 1994 og segir það hafa verið viðbrigði að setjast aftur á skólabekk. „Ég skipu- lagði tímann vel, gerði mér stundaskrá fyrir daginn þar sem ég gaf mér tíma fyrir hvert fag í hlutfalli við vægi þess, þannig að ég átti frí á kvöldin. Helstu viðbrigðin voru að dóttir mín, sem verður þriggja ára í maí, var í pössun allan daginn. Fjölskyldan var þó sameinuð á kvöldin og um helgar en þá var sú litla alveg límd við mig og því reyndi ég að nýta virku dagana vel í námið. I upplestrinum fyrir prófin las ég til tíu á kvöldin og notaði helgamar líka.“ Hjúkmnarfræði er ekki eina námið AUÐUR segir námið í sjálf'u sér ekki hafa komið á óvart og hún hefði vitað að það yrði erfitt og mikil vinna. sem Auður stundar því hún er einnig í söngnámi. „Ég er að fara í fimmta stigið og sæki tíma í tónfræði, tón- heym og söngtíma, fjóra daga í viku. Ég lét tónfræðina sitja svolítið á hakanum í vetur en náði henni upp um jólin. Mér fannst söngtímamir dreifa huganum frá bóknáminu og gera mér gott. Ég vona að þetta fari jafnvel saman á vorönninni og prófrn rekist ekki saman," segir Auður og hlær þegar hún er spurð hvemig hún komi þessu saman. „Það er skipulag, hin í hópnum gera grín að mér fyrir það, en mér finnst ég ekki skipulögð að eðlis- fari.“ Auður segir stundum erfitt að vera í kafi í námi með lítið barn. „Það er togstreita á milli þessara hlutverka, sérstaklega þegar ég finn að dóttir mín passar upp á mig og eltir mig hvert sem ég fer. Hún er á barnaheimili allan daginn og foreldrar mínir hafa hjálpað mér mjög mikið. Jónína, langamma hennar, hefur oft passað þegar ég hendist í söngtímana." Hún segir námið í sjálfu sér ekki hafa komið á óvart og hún hefði vitað að það yrði erfitt og mikil vinna. Við emm að læra um líkamann og þetta er latínu-enska sem er alþjóðalegt mál. Ég hlakka til að fara í verklega þáttinn til Akureyrar og síðan förum við í starfsþjálfun á sjúkrahúsi. Einhvern hluta getum við tekið hér en við tökum ákveðna hlula á stærri og sérhæfðari deildum í framtíðinni til að fá frekari reynslu." Auður vildi taka fram að nem- endahópurinn væri samhentur. „Við emm svo góð saman, þó svo það væri „klásus“ var enginn pirringur og enginn að fela glósumar sínar heldur hjálpuðust allir að,“ sagði Auður. Tækifæri sem ekki var hægt að sleppa -segir Iðunn Dísa Jóhannesdóttir IÐUNN er ánægð með Háskólann á Akureyri og hvernig staðið er að kennslunni. Iðunn Dísa Jóhannesdóttir er einn þeirra nemenda sem stunda nómið. Hún er ekki ókunnug hjúkrunar- og að- hlynningarstörfum þar sem hún lauk sjúkraliðaprófi 1996 og starfaði sem sjúkraliði við Heilbrigðisstofnun Vest- mannaeyja þartil í haust. Hún var fyrst spurð um hvað hafi orðið til þess að hún settist aftur á skólabekk en þó svo Iðunn sé á besta aldri, rétt liðlega fertug, þá er hún elsti nemandinn í hópnum. „Þegar það varð ljóst að boðið yrði upp á Ijamám í hjúkmnarfræði fannst mér þetta vera tækifæri sem ekki væri hægt að láta framhjá sér fara,“ segir Iðunn. „Ég starfaði sem sjúkraliði og hef áhuga á að mennta mig frekar í þessunt geira og því rökrétt framhald að fara í þetta. Fjamám í hjúkmnarfræði fór af stað á ísafirði og lleiri stöðum og hefur gengið vel og fyrstu nemendumir vom útskrifaðir 2002. Skilyrði fyrir því að námið hæfist var m.a. að tiltekinn lágmarks nemendafjöldi næðist. Við fómm því í það að hringja í fólk sem við töldum líklegt að hefði áhuga og kynntum þennan möguleika. Við þurftum að vera að minnsta kosti tíu og náðum þeim fjölda og rúmlega það. Það biðu 10 nemendur á Akra- nesi tilbúnir í slaginn ef við yrðum ekki nægilega mörg. I ársbyrjun 2001 var kominn skriður á málið og um haustið fengum við nokkra kennara Framhaldsskólans til að setja upp áfanga sem hcntuðu vel sem undanfari hjúkrunamámsins. Steinunn Jónatans- dóttir hafði umsjón með kennslunni sem reyndist vera ágætur undir- búningur fyrir sjálft hjúkrunarnámið." Tvær Eyjakonur fyrir norðan Iðunn er ánægð með Háskólann á Akureyri og hvemig staðið er að kennslunni. „Kennslustundir á Akur- eyri em sendar út beint til okkar en við sitjum tíma í Framhaldsskólanum og höfum góða skólastofu með fjarfúnda- búnaði. Samskipti við Framhaldsskól- ann em góð og það hefur allt verið gert til að létta okkur lífið og við höfum meðal annars aðstöðu til að hella upp á kaffi enda eyðum við drjúgum tíma dagsins í skólanum. Ég er ánægð með Háskólann á Akureyri og mér finnst skólinn svo mannlegur, ráðamenn þar taka tillit til aðstæðna einstaklinga hverju sinni. Við höfum tvær Eyjakonur fyrir norðan, Lára Garðarsdóttir er skrifstofustjóri heil- brigðisdeildar og Eygló Bjömsdóttir er yfir tölvumálum. Ef eitthvað kemur upp á hjá okkur, þá er okkur yfirleitt vísað á Lám og hún aðstoðar okkur en Eygló leysir úr tölvuvandamálum." Nemendur vom fjömtíu og sex í upp- hafi bæði á Akureyri og í Eyjum. Þeir þurftu að þreyta samkeppnispróf um jólin en fjöldi þeirra sem áttu að komast áfram var takmarkaður. Það var því ekki nægilegt að standast prófin og í fyrstu vom mörkin sett við þrjátíu og tvo nemendur en fjöldinn var rýmkaður og að lokum komust þrjátíu og sex í gegn um síuna. „Það skemmtilega er að einn nem- andi, sem ekki er í hjúkmnarfræði, situr með okkur einn kúrs og getur þar af leiðandi nýtt sér fjarkennsluna. Hún er að bæta við sitt framhaldsnám þannig að þetta kemur lleimm til góða en okkur. Við tökum sautján einingar fyrir áramót og sautján eftir áramót þannig að þetta er fullt nám og ekki ætlast til þess að við vinnum með því enda höfum við engin tök á því. Við sitjum tíma eftir stundaskrá sem er breytileg frá viku til viku.“ Hópurinn breiður Iðunn ítrekar að fjarnám skipti miklu máli fyrir fólk á landsbyggðinni og bjóði upp á mikla möguleika. „Ég var ekki á leiðinni frá Eyjum og það skiptir miklu máli að fólk þarf ekki að fara frá sinni heimabyggð og getur með þessu i náð sér í starfsréttindi. Mórallinn hjá nemendum er mjög góður og það skemmtilega er að hópurinn er breiður. Hluti nemenda hefur lokið sjúkraliðaprófi eins og ég og hafa starfað sem slíkir. Aðrir hafa lokið stúdentsprófi og hafa ákveðið að drífa sig á frekara nám. Samvinnan í hópnum er góð og við förum á hveiju ári til Akureyrar í starfsnám. Við vorum þar í eina viku síðasta haust og förum aftur í starfsnám á vorönn og í lok mars er ætlast til að við verðum í tveggja vikna starfsnámi á sjúkradeild annað hvort á elliheimili eða sjúkra- húsi.“ Iðunn segir ferðina norður í haust hafa verið skemmtilega og krafist töluverðs undirbúnings. „Við þurftum að útvega okkur húsnæði og fengum litlar íbúðir á leigu og vorunt nokkur saman í hverri fbúð. Við vorum auðvitað svolítið upprifin íyrsta skóla- daginn og lögðum mikið upp úr því að koma vel fyrir enda áttum við að hitta kennara og aðra nemendur í fyrsta skipti. Stimpluðu sig inn með stæl „Við sem vorum saman í íbúðinni minni, vöknuðum snemma. fórum í sturtu, snyrtum okkur og fórum í okkar fínasta púss. Síðan fórum við af stað gangandi á Sólborg eins og háskólinn heitir, eða húsið sem við áttum að mæta í. Við rötuðum ekki svo við spurðum konu sem við hittum til vegar. Hún spurði okkur hvort við værum ekki í góðum gönguskóm, við litum allar niður í einu, jú við vorum nú ágætlega skóaðar. Hún sagði að það væri mjög falleg gönguleið sem við mættum til með að fara. Við örkuðum af stað niður einhveija kletta, mjög falleg leið, það vantaði ekki. En þegar leið á göngutúrinn var okkur ekkert farið að lítast á blikuna, grasið náði mér að höku og fína nýja flís- peysan mín var öll orðin í litlum kom- um af grasinu. mig minnir íjólubláum komum. Við þurftum að hoppa yfir einhverja lækjarsprænu svo skórnir mínir nýpússuðu vom orðnir forugir, ég sem hafði snyrt mig áður en ég fór af stað, það var fyrir bí. Ég var orðin eldrauð í framan og ekki voru hinar betri, við vomm famar að tína af okkur spjarimar því svitinn var farinn að leka af okkur. Ég sagði við stelp- umar; ÞIÐ ÞEGIÐ, því við höfðum hrekkt Auði Ásgeirs. skólasystur okkar, deginum áður og ég vissi að henni og öllum hinum myndi finnast þetta ógeðslega gott á okkur. En þegar við komum að skólanum þá er byggingin bara gluggar, og það vom ALLIR að mæta í skólann, og ALLIR vom að horfa á okkur koma niður Glerárgilið en það er víst gönguleiðin sem við fómm. Svo við stimpluðum okkur inn í Háskóla Akureyrar með stæl, því við vomm umtalaðar urn allan skólann og fréttin barst líka um allan bæinn. Allir sem byrjuðu fyrirlestra þennan daginn minntust á það að Eyjamenn hefðu komið sprangandi niður Gilið. eða þá að það stæði til að teikna upp leiðina að skólanum. Ein sagði að það væm komnir nýir leikarar í nýja Cliff- hanger's bíómynd. og þar eftir götunum. Ég veit ekki hvað ég hefði gert ef ég hefði hitt konuna aftur sem vísaði okkur leiðina." Námið er fullt starf 2p -segir Rósa Gunnarsdóttir RÓSA og Margrét, áhugasamir og brosandi hjúkrunarnemar. Rósa Gunnarsdóttir er tuttugu og þriggja óra gömul en hún útskrifaðist sem stúdent fró Framhaldsskólanum í Vest- mannaeyjum af nóttúrufræði- braut um jólin 1998. Hún hóf nóm í hjúkrunarfræði í haust en segist ekki hafa tekið ókvörðun um það fyrr en í janúar 2002. „Þetta var búið að vera í umræðunni um nokkurt skeið og nokkrir nem- endur hófu undirbúning um haustið 2001 í fögum sem tengjast jxssu sviði. Ég var ekki að hugsa um þetta þá en svo vildi ég fara áfram í nám og hóf undirbúning eftir áramótin," segir Rósa. „Mér finnst frábært að nýta fjamámið og eiga þess kost að mennta mig hér heima. Vonandi verður framhald á þessu og fleiri geti nýtt þennan kost því við emm með góðan búnað til þess.“ Rósa segir að margir haldi að námið fari fram í gegnum tölvu og að nemendur vinni með náminu. „Fólk athugar ekki að þetta er fullt nám og við sitjum allar kennslustundir eins og nemendur fyrir norðan. Stundaskráin er breytileg en við emm í fimm fög- um, lífeðlisfræði, líffæra- og fóstur- fræði, hjúkmn, efnafræði og tölfræði. Námið tekur íjögur ár og við fömm norður á hverri önn, sitjum tíma þar og þurfum að taka verkleg próf. Nem- endur sem stunda kennaranám hér, taka það á íjómm ámm í stað þriggja og vinna með náminu. Það er auð- vitað hörkunám líka en er byggt upp á annan hátt. Við emm á fyrsta ári í tjamámi, Selfoss er á öðm, Keflavík á þriðja og Egilsstaðir á íjórða ári og þannig bætist einn staður við á hveiju ári ef nægur fjöldi næst. Við getum ekki reiknað með að þctta nám fari af stað aítur í bráð í Eyjum en ég vona að möguleikar opnist fyrir fjamám í fleiri starfsgreinum.“ Býður upp á marga möguleika Þegar Rósa er spurð hvort hún hafi unnið við heilsugæslustörf segir hún svo ekki vera. „Mér fannst þetta áhugavert nám þegar ég hafði kynnt mér það og ákvað að drífa mig. Starfið býður upp á mikla möguleika því hjúkrunarfræðingar eru að vinna við margvísleg störf og allir sem útskrifast sem hjúkmnarfræðingar ættu að fá vinnu við sitt hæfi. Þetta er mjög vítt svið og hægt að fara í sémám í fram- haldinu. Hópurinn hér er skemmti- legur og við verðum að standa saman og hjálpast að en verðum auðvitað að vinna sem einstaklingar líka. Ef einhver hefur náð í gott efni þá dreifir hann því til hinna og við vinnum hópverkefni saman." Nemendur tóku „klásuspróf um jólin og Rósa segir það hafa verið stressandi og haft í för með sér aukaálag. „Nú emm við afslappaðri þar sem við emm komin í gegn um síuna og það hefur tekið ákveðinn tíma að koma sér í gang aftur eftir jólafrí. Hópurinn er að undirbúa ferð norður en við eigum að mæta þangað í lok febrúar. Það er þó nokkuð mál að undirbúa slfka ferð, fömm með Heij- ólfi, tökum bílaleigubíla og leigjum íbúðir. Margt hefur gerst hjá okkur, ogt.d í haust þegar við vorum að fara norður geymdum við Auður Ásgeirs- dóttir töskumar á llugvellinum í Reykjavík, og á meðan við biðum eftir flugi til Akureyrar, skmppum við í Kringluna en þegar við komum til baka var taskan mín horfm. Ég var frekar fúl yfir þessu öllu en ákvað að drífa mig norður, með eina hliðartösku og bara í fötunum sem ég stóð í. Auður og fleiri skmppu út að versla eftir að við vomm búnar að koma okkur fyrir, fyrir norðan. Aðrar stelpur úr hópnum fóru þá inn í íbúðina sem Auður og Hmnd vom með á leigu og tæmdu töskuna hennar Auðar og settu kodda í staðinn en settu fötin inn í skáp. Þegar Auður og Hrund fóru að ganga frá dótinu, þá finnur Auður belti og bol inni í skáp og segir; „nei sko þetta er alveg eins og beltið mitt... og bolur eins og ég á, það er fínt þá getum við bara lánað Rósu.“ Svo ætlar hún að ná í sængurföt í töskuna sína og finnur kodda, tekur hann upp og horfir furðu lostin á koddann og segir; „ég tók ekki kodda með mér.“ Lítur betur ofan í töskuna og sér að það er ekkert annað. Hún verður sótill, rýkur í símann, hringir í mig og æpir í símann; „þetta hefur verið skipulagt, ég ætla að kæra þetta.“ I sama rnund koma hrekkjalómamir inn, byrja að hlæja og skemmtu sér konunglega yfir því hversu reið hún var og hún fattaði ekki strax hvað var um að vera, en... hún varð ennþá reiðari þegar hún loksins sá hvemig í málum lá. Hrekkjalómamir fengu svo að finna fyrir því seinna og allir höfðu gaman af.“ Rósa er yngsti nemandinn í hópnum en segist alls ekki finna fyrir því enda nokkrir ekki mikið eldri. „Það er gaman að hafa breiðan hóp, þau sem eru eldri hafa reynslu og hafa unnið við heilbrigðisstörf og miðla því til okkar. Sumir em með ung böm og það þarf heilmikið púsl til að koma þessu saman. Við spjöllum heilmikið og það er alltaf eitthvað grín í gangi og voða gaman hjá okkur, okkur finnst við náttúrulega voða fyndin," segir Rósa að endingu. Þessar vísur eru um Akureyrarferðina þar sem gúðlátlegt grin er gert að „gönguferðinni" og þeim raunum sem nemendur lentu i. lag: Ég kátur stunda kvennafar... Á fyrsta deg'i háskóla viö ultum niður kletta. Og allir aðrir nemendur þeir horið'á okkur detta. En licilar samt þó komumst við i okkar fyrsta tima, en kennararnir tóluð'um hve hörð var okkar glíma. Einn, tveir, við fómm út að ganga, I klettunum á Akureyri fórum við að spranga. Við reyndum nýjan góngustig en ranga leið við fórum. Og enduðum i ógðngum i grasaskógi stórum. Er upp ór töskum taka fór þó lundust ekki fötin. En samt i bolni töskunnar þar engin voru götin. Bálreið hún i sírnann rauk og byrjaði að kvarta, þvi bara sæng og kodda innihélt nú taskan svarta. Einn, tveir, þærtýndu sínum töskum. Með fullt af fötum, snyrtidóti og kannski nokkrum flöskum. En seinna meir þá kom i Ijós að aðeins önnur týndist. Hjá annarri var gamanið því belra en það sýndist. i efnalræði vantaði kvöld eitt fleiri en Ijórar. Þær Sigga vild'ei hlusta á og þóttust nokkuð stórar. Þær ef nafræ ðifo rm ólurnar drukk'og gerðusl glaðar. En daginn eftir heilsan var alls ekki til staðar. Einn, tveir, þær mættu ekki í tima. í heimanámi voru þær við formúlur að glima. Á skemmtikvöldið mættu þær og fóru beint á barinn. Og eftir nokkra kokteila var feimni þeirra farin. En öll við komumst aftur heim og orðin klár í slaginn. Hress og kát við mættum siðan fyrsta kennsludaginn. i Eyjum ætlum við að takast á við námið okkar. Því öll við erum sammál'um að hjúkrunin hún lokkar. Einn, tveir, við áfram skulum fara. Nú norðanmenn og konur mega sig sko far'að vara. Þvi næstu fjögur árin oft, við norður munum mæta. Og þá er vist við munum öll, Akureyri bæta. HölmiliirAi/ðiir [inarsilóttir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.