Fréttir - Eyjafréttir - 06.02.2003, Blaðsíða 20
Birgitta Ösk Islandsmeistari
Á íslandsmeistaramóti í almennum fimleikum átti Fim-
leikafélagið Rán 18 fulltrúa. Þrjár komust áfram í meist-
aramótið og Birgitta Ósk Valdimarsdóttir gerði sér lítið
fyrir og varð íslandsmeistari í 1. þrepi.
Enn G L_ L_ lsrterr?! VEITINGAHÚS BÁRUSTÍG 11 hT éi V) SÍMI 481 3393
há rs ny r-tl stofa SÍMI -481 3€>€>& Góður matur. Góð þjónusta. Kostar minna en þú heldur.
Vilhjálmur Bergsteinsson
SeWO»PEBðA»»U.
» 481-2943
» 897-1178
Samgönguáætlun Alþingis til næstu tólf ára:
Jarðgöng og ný ferja
ekki inni í myndinni
-Horft til ferjulægis í Bakkafjöru
Síðastliðinn þriðjudag hófst á al-
þingi fyrsta umræða um sam-
gönguáætlun til næstu tólf ára.
Athygli vöktu svör samgöngu-
ráðherra við fyrirspurn Hjálmars
Árnasonar um fjárveitingar til
samgangna við Vestmannaeyjar,
Ekki voru svör ráðherra skilin
öðruvísi en svo að ný ferja og
jarðgöng væru ekkert inni í
myndinni. Eyjafréttir höfðu
samband við Hjálmar vegna
þessa en hann er varaformaður
samgöngunefndar Alþingis.
„I ræðu minni vakti ég athygli á
því m.a. að í samgönguáætlun
virðist ekki gert ráð fyrir sérstökum
fjárveitingum til nýrra verkefna í
samgöngum við Vestmannaeyjar.
Ekki síst er það athyglisvert í ljósi
þess að hinn margnefndi sam-
gönguhópur er sagður enn að störf-
um og hlýtur að skila einhverjum
tillögum. Ég varð satt að segja
nokkuð hissa þegar ráðherra svaraði
því til að ekkert vit væri í nýrri ferju
og jarðgöng væru ekki skynsamleg.
Stefna ætti að ferjuaðstöðu á
Bakkafjöru," sagði Hjálmar.
Hann segir að í sjálfu sér sé
hafnaraðstaða á Bakkafjöru besti
kostur og hann eigi að skoða. „Ég
bendi hins vegar á að það tekur
mörg ár og mun kosta einhverja
milljarða. í mínum huga er útilokað
að salta málið með þeim hætti.
Ferjuaðstaða eða jarðgöng kunna að
vera langtímaverkefni en þau leysa
ekki vanda dagsins í dag. Spum-
ingin snýst um það hvort vilji er til
þess að leysa samgöngur við
Eyjamar strax eða ekki.“
Þegar Hjálmar var spurður um
hraðferjuna Shannon Alexis, sagði
hann það staðreynd að í boði sé að
fá strax heppilegt og glæsilegt skip.
„Eigendur eru opnir fyrir öllu.
Leigja skipið og láta leiguverð
ganga upp í kaupverð ef selst. skoða
uppítöku á Herjólfí o.s.frv. I raun
hefur alveg furðulegur draugagang-
ur verið vakinn upp síðan Shannon
komst í umræðuna. Mig skortir í
raun ímyndunarafl til að klína á
skipið því sem andstæðingar þess
hafa skáldað upp. Lítill áhugi
virðist hafa verið á að draga stað-
reyndir fram. í raun er það fárán-
legt að við Andrés Sigmundsson
skulum hafa þurft að fara á eigin
kostnað til að fá hið rétta fram í
málinu. Og einmitt þess vegna buð-
um hinum frábæra Simma með
okkur til að fá réttar upplýsingar.
Við eigum engra annarra hagsmuna
að gæta en þeirra að draga hrað-
skreiða ferju á góðu verði til Eyja.
Þess vegna skil ég ekki þessa undar-
legu þögn sem ráðherra líklega rauf
á miðvikudaginn."
Hjálmar segir að ábyrgðin liggi að
hans mati fyrst og fremst hjá
heimamönnum. „Kjaftagangurinn í
kringum nýja ferju og hins vegar
aðgerðaleysi samgönguhópsins eru
skilaboð til samgönguyfirvalda um
að áhuginn sé takmarkaður. I harðri
samkeppni um fjárveitingar til sam-
göngumála þurfa skilaboðin frá
hverjum stað að vera afdráttarlaus.
Mér finnst samgönguhópurinn hafa
fært undarleg boð með langri þögn
sinni og hlýt að spyrja mig hvort
menn hafi ekki trú eða áhuga á
nýrri og hraðskreiðari ferju. Halda
menn að það yrði ekki góð
lyftistöng fyrir atvinnulifið í Eyjum
að geta „skroppið" á rúmum
klukkutíma? Spyrjið bara fólk í
ferðabransanum. Ætla menn að láta
sér þriggja tíma siglingu duga nú í
upphafi 21. aldar? Á maður að trúa
því að þetta séu tillögur hópsins
eftir heils árs starf?
Vinnubrögðin í kringum þetta mál
allt eru með því undarlegra sem ég
hef kynnst. Ef Vestmannaeyjabær
hefur verið rekinn með slíkum
aðferðum síðustu árin fer margt að
skýrast í mínum huga um vanda
Vestmannaeyja,'1 sagði Hjálmar að
endingu.
VIKUTILBOÐ
6. feb. -12. feb.
Verð Nú
Mr Proper ontibac klútar sampak
Mr Proper citrus klútar sampak
Bold þvottaefni 1100 gr
- Bounty eldhúsrúllur fylgja með
Pampers bleiur
Pampers klútar sampakk
Hersheys súkkulaði sýróp
Hersheys caramel sýróp
Áður