Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 20.02.2003, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 20.02.2003, Blaðsíða 12
12 Fréttir Fimmtudagur 20. febrúar 2003 Stór dagur í sögu Vinnslustöðvarinnar: Aukin afköst í fiskimjölsverk- smiðju og loðnuhrognavinnslu Hagnaður 2002 1.069 milljónir króna - Veltufé fró rekstri 1.093 milljónir - Orka fró nýjum rafskautakatli nýtt til að hita upp allt að helming íbúðarhúsa í Eyjum Á föstudaginn var mikið um dýrðir í Vinnslustöðinni þegar ný stjórn félagsins hélt sinn fyrsta fund. Þar lógu fyrir reikningar ársins 2002 sem sýna mjög góða afkomu. Þá var formlega tekinn í notkun nýr gufuketill og rafskauta- ketill í fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvar. Rafskauta- ketillinn þjónar um leið sem orkugjafi fyrir bæinn því með vatni frá honum er hægt að hita upp helming íbúðarhús- næðis í Vestmannaeyjum. Unnið er að því að reisa hreinsistöð fyrir frárennsli fiskimjölsverksmiðju og fisk- vinnslu. Þá tók Saltkaup í notkun saltskemmu sem reist var á lóð Vinnslustöðvar- innar og var hún vígð á föstudaginn. Síðdegis var svo veisla í Höllinni þar sem var móttaka fyri’r starfsfólk og gesti. Aukin afköst fískimjölsverksmiðju Á föstudaginn var formlega tekinn í notkun nýr og öflugur gufuþurrkari ásamt rafskautakatli í fískimjöls- verksmiðju Vinnslustöðvarinnar. Með tilkomu nýju tækjanna eykst afkasta- geta verksmiðjunnar úr 850 tonnum í allt að 1.200 tonn á sólarhring. Vinnslustöðin verður jafnframt orku- ver fyrir Vestmannaeyjar því nýi rafskautaketillinn hitar vatn fyrir dreiftkerfi fjarvarmaveitu Hitaveitu Suðumesja í Eyjum sem er svo notað til húsahitunar og nægir það til að kynda upp helming íbúðarhúsa í bæn- um. Fram kom að kostnaður við stækk- un og breytingar í fiskimjölsverk- smiðjunni er áætlaður um 250 milljónir króna. Á síðasta sumri gerði Vinnslustöðin samning við Hitaveitu Suðumesja um að kaupa ótryggt rafmagn fyrir rafskautaketilinn og nota með því innlendan orkugjafa, rafmagn, í stað svartolíu að hluta. Landsvirkjun útvegar raforkuna en framboðið er háð vatnsstöðu í miðlunarlónum fyrirtækisins hverju sinni. Flutnings- línur RARIK frá Búrfelli til Hvols- vallar anna hins vegar ekki saman- lagðri orkuþörf Hitaveitu Suðumesja og nýja rafskautaketilsins á meðan verksmiðjan er í gangi. Lausnin var að verksmiðjan sér Hitaveitu Suðumesja fyrir orku til upphitunar húsa í Eyjum á meðan bræðsla stendur yfir. Ætla má að Vinnslustöðin leggi Hitaveitunni til allt að helming orkuþarfar fjarvarma- veitunnar á meðan verksmiðjan er í gangi. Þannig er um leið dregið úr þörf fyrir orkullutninga úr landi til ljarvarmaveitunnar. Hér em því margar flugur slegnar í einu höggi: *Orka er beisluð í fiskimjölsfram- leiðslunni, orka sem ella rynni ónotuð til sjávar. *Innlend orka, rafmagn, kemur í stað innflutts orkugjafa (svartolíu). *Dregið verður úr losun gróðurhúsa- lofttegunda og þar með dregið úr mengun við mjölframleiðsluna. Hreinsistöð og breytingar á hrognavinnslu Fleira er á döfinni hjá Vinnslustöðinni og er unnið að því að reisa hreinsistöð fyrir frárennsli fiskimjölsverksmiðju og fiskvinnslu. Föst efni og fita verða hreinsuð úr frárennslinu með bestu tækni sem þekkist í veröldinni að því er kom fram. Úr efnunuin, sem falla til, verður unnið lýsi og mjöl. Fálkinn hf. hafði milligöngu um kaup tækja og sér um uppsetningu þeirra. Þá er unnið að umfangsmiklum breytingum á búnaði til loðnuhrogna- vinnslu fyrirtækisins sem nú verður öll á einum stað. Framleiðslugeta eykst verulega, framleiðslutíminn styttist og kostnaður minnkar en Vinnslustöðin hefur framleitt 900 til 1.400 tonn af loðnuhrognum á hverri vertíð undanfarin þrjú ár. Saltkaup hf., dótturlélag SÍF, hefur reisl saltskemmu á lóð Vinnslu- stöðvarinnar og er það í samræmi við samkomulag frá því vorið 2002. Þetta er stálgrindahús sem Saltkaup mun nota til að geyma í salt í Eyjum en Vinnslustöðin er stór kaupandi salts og umsvifamikill framleiðandi salt- fiskafurða og hefur árum saman átt mikið og gott samstarf við Saltkaup og SÍF. SIGURGEIR Brynjar Kristgeirsson, Haraldur Gíslason, Jakob Bjarnason stjórnarformaður VSV og Jón Halldórsson framkvæmdastjóri Saltkaupa. Tæknileg lýsing og upplýsingar um búnað -og þeir sem komu að verkinu *Þurrkarinn er framleiddur af Haarslev a/s í Danmörku. Hita- llöturinn er 600 rúmmmetrar og drilbúnaður 200 kW. í þurrkaranunt gufa upp allt að 6.000 kg á klukku- stund sem samsvarar tæpum 4 MW í varmaafli. Þurrkarinn vegur alls um 110 tonn. Hann er þyngsti hluturinn sem Samskip hf. hafa flutt til Islands og næstþyngsti hluturinn sem fluttur hefur verið í einu lagi til landsins. *Rafskautakctillinn er smíðaður af Peter Halvorsen í Björgvin í Noregi. I katlinum er framleidd gufa með raforku fyrir þurrkarann. Hámarksafl er 12 MW og er 11.000 volta raf- straumur leiddur gegnum vatn. Vegna viðnáms í vatninu myndast varmi sem nýtist til uppgufunar. *Hrcinsihúnaðurinn er frá Huber í Þýskalandi. Ohreint vatn er fyrst grófsíað og fer síðan inn á skilju þar sem loftbólur lyfta smáum ögnum upp á yfirborðið. Ögnunum er fleytt ofan af vatninu ásamt fitu. Búnað- urinn afkastar unt 120 rúmmetrum á klukkustund. *Meðalrafaflsnotkun í Vestmanna- eyjum er um 5 MW, þegar ekki er talið með rafafl sem notað er til upphitunar í kyndistöð Hitaveitu Suðumesja. Það verður því vemleg aukning á raforkusölu hjá Hitaveitu Suðumesja í Vestmannaeyjum en á móti minnkar olíunotkunin. Fram kemur í frétt frá VSV ap forráðamenn em ntjög ánægðir með hvemig til hefur tekist og segja að menn hafi skilað góðu verki. Þeir em: *Páll Sigurðsson verkfræðingur, sem starfað hefur fyrir VSV sem ráðgjafi vegna mjölverksmiðjunnar undanfarin ár, hefur haft með umsjón með tæknivinnu og innkaupum á búnaði vegna þeirra breytinga sem ráðist var í. *Sigurjón Pálsson tæknifræðingur hjá Teiknistofu PZ í Vestmanna- eyjum hefur haft yfirumsjón með hönnun og byggingarframkvæmd- um. *Edmund Bellesen. rafmagnstækni- fræðingur hjá Tera sf., sá um rafmagnshönnun og samræmingu framkvæmda milli HS og VSV. *Stefán Högnason sá um forritun á stjómtölvum og tengingu við skjámyndakerfi verksmiðjunnar. *Onnur fyrirtæki sem komið hafa að framkvæmdunum voru bygg- ingafyrirtækið Steini og Olli hf., Toppstál ehf., Vélaþjónusta Þórðar ehf., Vélsmiðjan Þór ehf.. Skipalyftan ehf., Miðstöðin ehf., Vélsmiðjan Völundur ehf., Eyja- blikk ehf., Fálkinn hf.. ískraft hf.. Héðinn hf.. Samskip hf., Eimskip hf.. Gunnar Guðmundsson hf. GP kranar ehf.. MM flutningar og kranar ehf.. Viðar Einarsson málarameistari, Guðjón Jónsson rafvirki. Hjálmar Brynjúlfsson rafvirki og rafverktakafyrirtækin Orkuvirki og Ral'múli. Síðast en ekki síst þá þakkar SVS starfsmönnum sem tóku þátt í fram- kvæmdum af fullum krafti.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.