Fréttir - Eyjafréttir - 20.02.2003, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 20. febrúar 2003
Fréttir
13
BÆJARFULLTRÚARNIR, Stefán Jónasson og Guðrún Erlingsdóttir, ívar Atlason hjá Hitaveitu Suðurnesja, Binni framkvæmdastjóri, Þór Vilhjálmsson starfsmannastjóri,
Heiða Ásgeirsdóttir, eiginkona lagerstjóra Saltkaupa og Guðni Guðnason útgerðarstjóri skoða myndir frá 1980 þegar allt var fullt af fiski í Vinnsíustöðinni. Þær eru teknar á
vetrarvertíð og þá voru uni 400 tonn af óslægðum fiski komin inn á gólf.
Reikningar VSV 2002:
Hagnaður rúmur milljarður
Á föstudaginn lá fyrir uppgjör
Vinnslustöðvarinnar hf. fyrir árið
2002. Á árinu sameinuðust Jón
Erlingsson ehf. og Undína ehf.
Vinnslustöðinni og var uppgjörið
sameiginglegt. Samkvæmt því voru
heildartekjur hinna sameinuðu
félaga 3.786 milljónir króna, fram-
legð var 1.243 milljónir króna eða
32,8%, hagnaður var 1.069 millj-
ónir króna og veltufé frá rekstri
1.093 milljónir króna.
Á árinu 2002 keypti Vinnslustöðin
50% hlut í Úndínu ehf. og 60%
hlutabréfa í Jóni Erlingssyni ehf. og
vom þessi þrjú félög sameinuð þann
I. júlí 2002.
Rekstrarhorfur á yfirstandandi ári
gera ráð fyrir að tekjur félagsins verði
3.600 milljónir króna og framlegð
þess verði 1.000 milljónir króna og
dregst því saman um 20% ef miðað er
við sameiginlega framlegð Vinnslu-
stöðvarinnar hf„ Jóns Erlingssonar
ehf. og Úndínu ehf. á árinu 2002. Þá
er gert ráð fyrir að afskriftir nemi 530
milljónum króna og fjármagns-
kostnaður verði 200 milljónir króna.
Hagnaður félagsins er því áætlaður
270 milljónir króna.
Áætlunin byggir á eftirfarandi
meginforsendum:
*Gengisvísitala íslensku krónunnar
verði sú sama að meðaltali á árinu öllu
og hún var í lok janúar sl. eða 124 stig.
*Afurðaverð haldist svipað í erlendri
mynt og í upphafi árs.
*Fiskverð til útgerðar lækki í takt við
styrkingu krónunnar að undanfömu.
*Úthlutun loðnu á yfirstandandi ári
verði 850 þúsund tonn.
*Að öðru leyti er gert ráð fyrir
svipaðri úthlutun úr mikilvægustu
fiskistofnunum.
í frétt frá Vinnslustöðinni segir að
forsvarsmenn hennar geri sér grein
fyrir mikilvægi félagsins í Vestmanna-
eyjum. „Félagið vinnur langmestan
hluta afla síns í Eyjum og er stærsti
einstaki vinnuveitandinn þar með
mikla samfélagslega ábyrgð. Þá á-
byrgð getur félagið því aðeins axlað
að það sé rekið með viðunandi af-
komu. í þessu Ijósi benda stjómendur
félagsins á að bolfiskverð til útgerðar
félagsins er nú orðið allt of hátt og
afkoma landvinnsludeilda þess er
óviðunandi. Forsvarsmenn Vinnslu-
stöðvarinnar hf. skora því á sjó-
mannaforystuna að sýna sanngimi í
kröfum sínum um fiskverð og tefla
ekki í tvísýnu atvinnu og afkomu þess
fólks sem enn starfar við fiskvinnslu í
Eyjurn," segir í fréttinni.
Rekstrarreikningur 2002
Að því er kemur fram í frétt frá
Vinnslustöðinni var afkoma félagsins
á árinu með ágætum. „Ánægjulegt er
að benda á hátt hlutfall veltuíjár frá
rekstri af rekstrartekjum eða 28%.
Afkoma útgerðar félagsins er með
miklum ágætum en framlegðarhlutfall
hennar, án þess að tekið sé tillit til
stjórnunarkostnaðar, var 35% árið
2002 en var 28,5% árið 2001. Fram-
legðarhlutfall landvinnslu félagsins
dróst hins vegar mikið saman eða úr
28% árið á undan í 19%, reiknað á
sama hátt og áður.
í rekstrarreikningi kemur meðal
annars fram eftirfarandi:
*Hagnaður rekstrarársins var 902
milljónir króna og jókst um 866
milljónir frá fyrra ári. Hagnaður
síðustu þriggja mánaða ársins nam 7
milljónum króna.
*Heildartekjur félagsins voru 3.609
milljónir króna og jukust um 129
milljónir króna frá fyrra ári.
*Framlegð félagsins (hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði) nam 1.119
milljónum króna og dróst hún saman
um 63 milljónir króna frá fyrra ári.
Framlegðarhlutfal! félagsins var 31%
á móti 33,9% árið áður. Framlegð
síðustu þriggja mánaða ársins nam
hins vegar aðeins 30 milljónum króna
og framlegðarhlutfall var 6,2%.
*Veltufé frá rekstri nam 1.015
milljónum króna á árinu og var 28%
af rekstrartekjum. Veltufé frá rekstri
á síðasta ársljórðungi ársins var
neikvætt um 6 milljónir króna.
*Afskriftir jukust um 67 milljónir
króna frá fyrra ári og námu 495
milljónum króna. Aukningin á sér
fyrst og fremst skýringu í aukinni
eignfærslu aflaheimilda en aflaheim-
ildir jukust verulega við-sameiningu
Vinnslustöðvarinnar hf„ Úndínu ehf.,
og Jóns Erlingssonar ehf. 1. júlí síðast-
liðinn. Afskriftir á síðasta ársfjórð-
ungi ársins námu 153 milljónum
króna.
*Önnur gjöld félagsins upp á 157
milljónir króna skýrast fyrst og fremst
af sölutapi á línubátnum Gandí og
aflögðu frystihúsi félagsins.
*Fjármagnsgjöld voru 1.118 millj-
ónum króna lægri en árið áður og
skýrast fyrst og fremst af 475 milljón
króna gengishagnaði síðastliðið ár en
árið á undan nam gengistap félagsins
565 milljónum króna. Viðsnúningur
íjármagnsliða er hærri en sem nemur
þeirri hagnaðaraukningu sem varð á
niilli áranna 2001 og 2002.
Þá segir að afkoma 4. ársfjórðungs
hafi verið slök sem ekki sé óvenjulegt
og ástæða hins mikla munar sem er á
tekjum og framlegð er að síldveiðar
gengu verr árið 2002 en á sama tíma
árið 2001 og síldin nýttist verr til
manneldisvinnslu. Gengishagnaður
ársfjórðungsins skýrir að öllu leyti
hagnað tímabilsins.
Heildarskuldir félagsins hækkuðu
um 533 milljónir króna á milli áranna
2001 og 2002 og voru í lok árs 2002
um 4.876 milljónir króna. Nettó-
skuldir félagsins voru aftur á móti
3.219 milljónir króna og lækkuðu um
290 milljónir króna frá árinu áður.
Þess er að geta að efnahagur Jóns
Erlingssonar ehf. og Úndínu ehf. er
meðtalinn í tölum um efnahag
félagsins.
Beitt er verðbólgureikningsskilum í
uppgjörinu líkt og fyrri ár. Án þeirra
væri hagnaður félagsins 57 milljónum
króna lægri og eigið fé væri 90
milljónum króna lægra en nú er kynnt.
Stjóm félagsins leggur til að
greiddur verði 20% arður og að réttur
til arðs miðist við hluthafaskrá í lok
aðalfundardags. Greiðsla arðs verði
þann 20. júní. Ákveðið hefur verið að
halda aðalfund félagsins 2. maí nk.
HARALDUR Gíslason og Gunnlaugur Ólafsson, stjórnarmenn í
Vinnslustöðinni, á spjalli við einn af gestunum á föstudaginn.
Anna Sigríður Gísladóttir starfsmaður VSV og Guðný Óskarsdóttir
varaformaður Drífanda verkalýðsfélags voru meðal þeirra sem
mættu í móttökuna í Höllinni.