Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 20.02.2003, Side 16

Fréttir - Eyjafréttir - 20.02.2003, Side 16
LKHTERHS VEITINGAHÚS BÁRUSTÍG 11 T A ^ SÍMI 481 3393 \Vjyy IGóður matur. Góð þjónusta. Kostar minna en þú heldur. Vilhjálmur Bergsteinsson sewaifenðAitiu. » 481-2943 n 897-1178 ÞESSAR ungu stúlkur keppa í dansi um helgina. Bls. 10. Dagsform, heppni og hugarfar skipta mestu máli -segir Unnur Sigmarsdóttir þjálfari ÍBV-stelpnanna sem mæta Haukum í bikarúrslitum á laugardaginn Unnar Sigmarsdóttir, þjálfari ÍBV kvennahandbolta, segir mikla stemmningu og góða um- gjörð utan um bikarúrslitaleiki þannig að mikil tilhlökkun ríki hjá liðinu. „Það er gaman að komast svona langt en það er dagsform, heppni og hugarfar sem skipta mestu máli þegar í leikinn er komið. Þetta leggst vel í mig, við eigum harma að hefna frá því við lékum við þær síðast og vonandi skila þau úrslit rétta hugarfarinu hjá okkar. Ég vona að ég fái að sitja á bekknum en ekki uppi í stúku eins og í síðast. Við verðum að spila okkar besta leik til að vinna og ég hvet alla okkar stuðningsmenn til að koma. líka þá sem búa í Reykjavík en þeir hafa ekki brugðist hingað til. Ég vona að við siglum með bikarinn heim eftir leik,“ segir Unnur. Lúðvík í frí í bæjarráði fram yfir kosningar Á fundi bæjarráðs á mánudag kom fram erindi frá Vest- mannaeyjalistanum um breyt- ingar á setu í bæjarráði. I Ijósi breyttra aðstæðna óska bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans eftir því að tilnefna nýjan aðal- og varamann í bæjarráð fram til júnímánaðar 2003, þegar tilnefnt verður á ný í bæjarráð. Verði þessi ósk samþykkt munu breytingarnar verða þær að Guðrún Erlingsdóttir verður aðalmaður í stað Lúðvíks Bergvinssonar og Stefán Óskar Jónasson varamaður í stað Guð- rúnar Erlingsdóttur. Bæjarráð samþykkti erindið fyrir sitt leyti. Þetta er kannski rökrétt framhald af mætingum í bæjarráð en frá því ný bæjarstjórn og þá nýtt bæjarráð tók til starfa hafa verið haldnir 34 fundir í bæjarráði og hefur Lúðvík mætt á tólf þeirra. Varamaður hans, Guðrún Erlings- dóttir hefur mætt á nítján. Á sama tíma hefur Andrés Sigmundsson (B) formaður bæjarráðs aðeins misst af tveimur fundum og Guðjón Hjör- leifsson (D) af fjórum. Lúðvík sagði í samtali við Fréttir að þær breyttu aðstæður sem talað er um í tillögu V-listans séu fyrst og fremst tímabundin veikindi Mar- grétar Frímannsdóttur sem er í efsta sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir komandi kosningar. „Veikindi hennar gera það að verkum að ég þarf að bera þyngri byrðar vegna þeirrar baráttu sem framundan er. Við erunt bara að tala um fram yfir kosningar." Það kemur þá til greina að þú setjist aftur í bæjarráð í sumar? „Ásetningur stendur til þess, við vitum ekki hvernig staðan verður þá en ég á frekar von á því.“ Nú hefur Guðrún Erlingsdóttir setið mun fleiri fundi en þú í bæjarráði, hefði ekki verið eðlilegra að hún sæti í bæjarráði? „Eins og menn þekkja þá gegni ég tveimur störfum og það hafa komið upp önnur verkefni sem ég hef þurft að sinna og Guðrún hefur sýnt það að hún stendur sig vel í þessu. Við vinnum þetta í sameiningu eins og samstarllð er í V-listanum,“ sagði Lúðvík sem vildi nota þetta tæk- ifæri til að kom á framfæri skoðun sinni á Fréttum. Ekki skjóta sendiboðann „Mig langar til að bæta við vegna þeirrar umræðu sem verið hefur um vikublaðið Fréttir. Nú er langt frá því að ég hafi ætíð verið ánægður með það hvemig blaðið hefur tekið á málum og á stundum látið þá skoðun í Ijósi; jafnvel skrifast á við ritstjóra blaðsins um það. Það breytir ekki því að Fréttir eru eitt besta landsmálablað landsins og menn myndu fyrst átta sig á því ef það væri ekki til staðar. Vitaskuld geta menn haft skoðun á því hvemig það matreiðir sínar fréttir en blaðið má eiga það að það er ekki að segja fréttir af bullandi loðnuveiði meðan allur flotinn er í landi eins og vinur minn Stefán Jónasson orðaði það. M.ö.o. Það greinir nokkuð vel frá því ástandi sem ríkir hverju sinni. Það er því ekki sanngjarnt að halda því fram að þar megi aðeins finna neikvæð tíðindi. Samfélagið hefur átt undir högg að sækja og blaðið hefur greint frá því. Það er ekki sanngjamt að kenna sendiboðanum um. Ég er sannfærður að um leið og það breytist, sem mun gerast, mun blaðið greina frá þvf líka. Ef blaðið þrammaði ekki að mestu leyti í takt við tíðarandann hverju sinni hefði það ekki þá stöðu sem það hefur,“ sagði Lúðvík að lokum. VIKUTILBOÐ 20. feb. - 26* feb. Hrísbitor Mjólkurkex Stjörnusnakk skrúfur 190 gr Stjörnu party mix salt og pipar Neutral þvottaefni 2 kg Celebrations 280 gr Pims Orange Verð Nú 339,- %, K 698,- v, Verð Nú Ááur 199,- 249 175,%98i 195,- 249,- 195,- 249-- 4i?jémfi 538,- 688, 109,- 199,-

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.