Fréttir - Eyjafréttir - 19.06.2003, Blaðsíða 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 19. júní 2003
Allt er falt, líka aðgangur
að líkömum kvenna
-Viðtal við Dís Sigurgeirsdóttur, lögfræðing hjá Dómsmálaráðuneytinu en hún er
annar tveggja fulltrúa sem stýrt hefur átaki gegn verslun með konur
DÍS segir megintilgang sameiginlega átaksins halá verið upplýsingaátak. í því fólst að vekja almenning til vitundar um hvað verslun með konur snýst.
Eftirspurn á Noðurlöndum
Dís hélt fyrirlestur um átakið gegn
verslun með konur á vegum Aglow í
Safnaðarheimili Landakirkju, fyrir
skemmstu. Fundurinn var vel sóttur
en konur voru í miklum meirihluta
fundargesta. Dís veitti fúslega viðtal
um átak Norðurlandanna og Eystra-
saltsríkjanna gegn verslun með konur.
„Ákveðið var að upplýsingaherferðin
samanstæði af sameiginlegu átaki allra
landanna og einnig að hvert land efndi
til átaks í sínu landi, sem væri sér-
staklega sniðið að þörfum þess.
Eystrasaltsríkin eru talin upprunalönd
í þessu sambandi, þar er efnahags-
ástandið lélegt, fólk býr við bág kjör
og leitar eftir leiðum til að komast
burt, þangað sem lífsskilyrði eru betri.
f þessum löndum var sérstaklega
einblínt á að koma vamaðarorðum til
þeirra kvenna sem ætluðu að leggja
land undir fót og taka vafasömum
atvinnutilboðum á Vesturlöndum.
Norðurlöridin eru hins vegar lönd þar
sem lífsskilyrði eru betri og taka því
við fólki frá upprunalöndunum.
Norðurlöndin eru því markaður fyrir
verslun með konur.“
Vinnuhópur var stofnaður til að
skipuleggja sameiginlega herferð sem
í áttu sæti tveir fulltrúar frá dómsmála-
og jafnréttisráðuneytum hvers ríkis og
er Dís fulltrúi dómsmálaráðuneytisins.
Til undirbúnings íslenska átakinu
gegn verslun með konur var sérstakur
undirbúningshópur stofnaður. „f hon-
um sátu fulltrúar frá 13 mismunandi
samtökum og stofnunum sem allir
tengjast þessu vandamáli á einn eða
annan hátt. Þar má nefna Vinnu-
málastofnun, ASÍ, Rauða kross
Islands, Stígamót, Kvennaathvarf,
Sýslumanninn á Keflavíkurflugvelli.
Utlendingaeftirlitið, Kvennaráðgjöf-
ina, Neyðarmóttökuna, Jafnréttisstofu
og utanríkisráðuneytið. Ákveðið var
að tveir verkefhisstjórar stýrðu átakinu
á íslandi, annar frá dómsmála-
ráðuneytinu og hinn frá félagsmála-
ráðuneytinu, sem fer með jafnréttis-
mál hér á landi.
Á fyrsta fundi undirbúningshópsins
voru helstu áhættuþættir varðandi
verslun með konur ræddir. „Ákveðið
var að beina sjónum að konum sem
koma hingað til lands til að dansa
nektardans á næturklúbbum og einnig
var vakin athygli á að konur koma
hingað til lands til að starfa við
heimilishjálp og þeim þætti mætti ekki
gleyma. Einnig kom í ljós að auka
þyrfti upplýsingaflæði milli þeirra sem
starfa að þessum málum og stuðla að
betra eftirliti með því að konur yrðu
ekki fómarlömb mansals og þá þegar
væri búið að stíga fyrsta skrefið í
baráttunni."
Konan SEM SÖLUVARA
Dís segir megintilgang sameiginlega
átaksins hafa verið upplýsingaátak. í
því fólst að vekja almenning til
vitundar um hvað verslun með konur
snýst. „Þar sem hverju ríki var frjálst
að leggja mismunandi áherslur í
átakinu var ákveðið í íslenska átakinu
að einblína einnig á fyrirbærið, konan
sem söluvara. Kynlífsvæðingin og
hnattvæðingin hafa haft þau áhrif að
allt er falt hvort sem það em veraldleg
gæði eða aðgangur að líkömum
kvenna. Starfshópurinn taldi að mikil-
vægt væri að ná fram viðhorfs-
breytingu."
Til að ná þessum markmiðum var
ákveðið í fyrsta lagi að gefa út blað
með ítarlegri umfjöllun um verslun
með konur og í öðru lagi að halda
ráðstefnu þar sem ýmsir sérfræðingar
lýstu margvíslegum flötum vanda-
málsins. Þá var einnig miðað að því að
ná athygli íjölmiðla og vekja upp
mikla umræðu um efnið. Blaðið kom
út um miðjan febrúar og var því dreift
með laugardagsblaði Morgunblaðsins
á 58.000 heimili vítt og breitt um
landið. Ráðstefnan var haldin 28.
febrúar á Grand Hótel þar sem ýmsir
erlendir og íslenskir sérfræðingar
fluttu erindi. Það er skemmst frá því
að segja að ráðstefnan var mjög vel
sótt og heppnaðist mjög vel í alla
staði.
„I tengslum við ráðstefnuna sýnd-
um við einnig myndina Lilya 4-ever,
en myndin, sem er eftir hinn þekkta
sænska leikstjóra Lukas Moodysson,
fjallar um skelfilegan veruleika ung-
lingsstúlku frá fyrrum Sovétríkjunum,
Jafnréttisráðherrar Norður-
landa og Eystrasaltsland-
anna ákváðu á fundi sem
þeir sátu í tengslum við
ráðstefnuna „Women and
Democracy" eða Konur og
lýðræði, sem var haldin í
Vilnius, Litháen, í júní-
mánuði 2001, að efna til
upplýsingaherferðar gegn
verslun með konur í þeim
tilgangi að stemma stigu við
þessu stigvaxandi vanda-
máli. A fundinum var rætt
um alvarleika málsins og
að viðfangsefnið hefði í
raun tvo fleti, þ.e. þann sem
sneri að jafnrétti kynjanna
og hinn sem sneri að laga-
umhverfinu. Af þeim sökum
var talið heillavænlegt að fá
dómsmálaráðherra þess-
ara sömu ríkja til liðs við
átakið og á fundi þeirra í
ágúst sama ár ákváðu þeir
að taka þátt í átakinu. I
framhaldinu var stofnaður
vinnuhópur sem í áttu sæti
tveir fulltrúar frá dómsmála-
og jafnréttismálaráðuneyt-
um hvers lands. Dís Sigur-
geirsdóttir, lögfræðingur hjá
dómsmálaráðuneytinu, og
Asta Sigrún Helgadóttir,
lögfræðingur hjá félags-
málaráðuneytinu, eru verk-
efnisstjórar átaksins á
Islandi en fjórtán manna
hópur sá um hugmynda-
vinnu fyrir átakið hér á
landi. Ahersla var lögð á
að upplýsa almenning um
þær hörmulegu afleiðingar
og mannréttindabrot sem
fylgja verslun með konur.
Dís er Vestmannaeyingur
í húð og hár, dóttir Sigur-
geirs Jónssonar og Katrínar
Magnúsdóttur í Gvendar-
húsi. Eftir stúdentspróf frá
Menntaskólanum í Hamra-
hlíð lærði hún lögfræði við
Háskóla Islands og hefur
starfað sem lögfræðingur
hjá dómsmálaráðuneytinu
frá því í mars 2000. Dís er
gift Jónasi Jóhannssyni
héraðsdómara í Hafnar-
firði, þau eiga soninn Jó-
hann Lárus en fyrir átti Dís
dótturina Gabríelu og
Jónas á þrjár dætur, Elínu
Onnu, Onnu Margréti og
Guðlaugu Hrefnu.