Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Blaðsíða 1
Áætlun Herjólfs B rottfarartímar Vetur 1.12.-28.2. Frá Vestmannaeyjum Frá Þorlákshöfh Mán.-lau. 8.15 12.00 Fös. 8.15 / 16.00 12.00 / 19.30 Sun. 14.00 18.00 | Nánari upplýsingar eraó finna £% | ^ ■ pi i £% 8 á www.herjolfur.is og ásíóu 415 * * ** „ í Textavarpi RÚV, auk þess sem ImdfkJttmaar a upplýsingar eru veittar í síma 481 -2800. "Jtuiánóain 30. árg. / 44. tbl. / Vestmannaeyjum 30. óktóber 2003 / Verð kr. 180 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is Heildarlausn íflutningum E eimskip Œ&mx-n www.eimskip.is • www.flytjandi.is • simi 4813500 Stærri síld úr Antaresi Antares VE 18 landaði 400 tonn- um af síld, í gær miðvikudag, og Gullberg VE 292 landaði 600 tonnum á mánudag. Oskar Óskarsson, framleiðslustjóri Isfélagsins, segir þetta vera þokkalega síld og síldina sem kom úr Antaresi stærri en verið hefur. „Við erum búnir að taka á móti 3600 tonnum og meiri- hlutinn hefur verið flakaður og frystur. Það er flakað hjá okkur á vöktum allan sólarhringinn frá 16. október og pakkað á daginn. Þetta hefur því verið stöðug vinna, lítur vel út og gengur vel,“ segir Óskar. Sighvatur Bjarnason VE 81 var væntanlegur til löndunar í gærkvöldi með rúm 500 tonn af sfld. ísleifur VE 63 landaði 300 tonnum á mánudag og er á miðunum. Stefán Friðriksson, aðstoðarframkvæmdastjóri, segir þetta vera blandaða millisíld sem nýtist ekki nægilega vel í vinnslu en þó var unnið við flökun og frystingu síðasta laugardag. „Veiðarnar fara betur af stað en undanfarin ár, allt hefur verið veitt í nót sem er ódýrara og síldin betri,“ segir Stefán. Góður túr í tonnum talið -en Kínverjar hafa áhrif á verðið Vestmannaey VE-54 landaði á fimmtudag fyrir fimmtíu milljónir og er farin aftur á veiðar. Uppistaða aflans var aðallegar þorskur og ýsa. Magnús Kristinsson, útgerðar- maður, segir þetta hafa verið að mörgu leyti góðan túr í tonnum talið. „Erlend verð eru almennt lág núna enda mikið framboð af fiski í Evrópu og Ameríku frá Kína. Það er erfitt að segja til um hversu lengi það varir en verð hafa verið döpur allt þetta ár. Maður hefur áhyggjur af þessu eins öðru, það er einn þáttur í því að vera útgerðar- maður,“ sagði Magnús. UPPFÆRSLA Leikfélags Vestmannaeyja á Litlu Ijót er ein besta skemmtun í leikhúsi sem undirritaður hefur upplifað í nokkuð langan tíma. Kom þar margt til, góður texti, skemmtileg sviðsmynd, litskrúðugir búningar, oft ágætur leikur og síðast en ekki síst góður húmor og leikgleði sem skilaði sér til áhorfenda. Allt var þetta keyrt áfram af lifandi tón- list og slagverki sem var eins og hjartsláttur sýningarinnar, er meðal þess sem sagt er um leikritið á bls. 16. Eyjamenn fá 29 tonn í byggðarkvóta: Leggja 359 tonn í pottinn Þegar lilið er á hversu mikið útgerðir í Vestmannaeyjum leggja í þann pott sem sjávarútvegsráðherra síðar úthlutar sem byggðakvóta kemur í ljós að aðeins lítið brot af því sem tekið er frá Eyjum kemur aftur til baka. Ef litið er á hlutdeild útgerða í Eyjum á þeim fjórum tegundum sem tekið er af lil úthlutunar, kemur í Ijós að samanlagt fara 359 þorsk- ígildistonn í þennan 3000 tonna pott. Það skal tekið fram að tvær úthlutanir eru til styrktar byggðar- lögum sem hafa lent í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Annar potturinn er 1500 tonn og er úthlut- að frá sjávarútvegsráðuneytinu og er svonefndur byggðakvóti. Hin 1500 tonnin eru í umsjá Byggða- stofnunar og eyrnamerkt í lögum til stuðnings sveitarfélögum sem lent hafa í vanda vegna samdráttar. Ekki hefur enn verið úthlutað úr þeim potti. Ef við lítum á forsendur þessara útreikninga eru þær byggðar á því að ef enginn byggðakvóti væri til staðar og þessum 3000 tonnum yrði skipt niður samkvæmt aflahlutdeild fengju útgerðarmenn í Eyjum 359 tonn til viðbótar. I staðinn koma hingað 29 tonn og því Ijóst að „tapið“ vegna sértækra aðgerða stjórnvalda er 330 þorskígildi. Er það rúmlega helmingur af aflaheint- ildum venjulegs vertíðarbáts og til samanburðar má geta þess að kvóti Glófaxa VE er 621 þorskígildi. Lætur ekki deigan síga Hanna María, apótekari, hefur staðið í ströngu á árinu í slag við hina stóru. | BLS. 10 og 11 Elegans hjá r Armanni Armann Reynisson kynnti þriðju Vinjettubók sína með miklum glæsibrag. | BLS. 18 TM-Öryggi fyrir fjölskylduna Sameinaðu allar tryggingar á einfaldan og hagkvæman hátt. Bílaverkstæðið Bragginn s.f. Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð Sími 481 3235 Réttingar og sprautun Sími 481 1535 www.tmhf.is ÖRYGGI

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.