Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Page 2
2
Góð þátttaka
-og spennandi matseðill
á færeyskum dögum
Undirbúningur gengur vel og virðist
vera mikill áhugi fyrir færeyskum
dögum sem verða haldnir á Fjólunni
um aðra helgi. Verður fjörið bæði
Frcttir / Fimmtudagur 30. október 2003
föstudags og laugardagskvöld og eru
nú þegar fjörtíu manns búnir að boða
komu sína án þess að mikið hafí verið
auglýst. Boðið verður upp á
hausthlaðborð að hætti Færeyinga og
meðal þess sem verður á boðstólum er
Rastkjöt, fylltur lundi, Steikt
Iambsnýru, skinsakjöt, skerpikjöt og
margt fleira. Veislustjórar verða
Davíð Samúelsson og Marenza
Poulsen.
Fögnuður
Umhverfisnefnd fagnaði því á fundi
sínum 16. október sl. að Vestmanna-
eyjar væru hluti af Náttúru- vemd-
aráætlun og fól nefndin
framkvæmdarstjóra umhverfis- og
framkvæmdasviðs Vestmannaeyja-
bæjar að vinna að framgangi málsins
og undirbúningi verkefnisins í sam-
vinnu við hagsmunaaðila.
Mikið vantar á að mönnun Hraunbúða standist kröfur landlæknisembættisins:
Ekki stendur til að lækka þjónustustig
-segir Bergur Elías bæjarstjóri
Skýrsla IBM um Hraunbúðir hefur
vakið talsverða athygli og kannski
ekki síst þær tillögur er miða að
fækkun stöðugilda hjá stofnuninni en
fjölgun hjúkrunarrýma. Bæjarstjóri
leggur áherslu á að þetta séu aðeins
tillögur og að þjónustustig á Hraun-
búðum verður ekki lækkað.
Jón Gauti Jónsson, ráðgjafi og
höfundur skýrslunnar, vill til að
mynda að einn hjúkrunarfræðingur sé
á vakt yfir daginn, frá átta til fjögur en
enginn á kvöldin og yfir nóttina.
Stöðugildi hjúkrunarfræðinga eru í
dag 2,1 og eru hjúkrunarfræðingamir
fimm sem skipta þessum stöðugildum
á milli sín. Jón Gauti vill fækka þeim
niður í 1,7 stöðugildi. Aftur er lögð
áhersla á að hér er aðeins um tillögur
IBM að ræða en enn á eftir að fjalla
um málið í viðeigandi nefndum innan
bæjarkerfisins.
Allt of fáir starfsmenn?
Ekkert stendur í lögum um mönnun
vistheimila aldraðra og sjúkrastofnanir
en gæðaráð landlæknisembættisins
setti fram sínar ábendingar um hvemig
staðið skuli að henni, í riti sem gefið
var út fyrir tveimur árum.
Þar kemur fram að stöðugildi hjúkr-
unarfræðinga þar sem 24 aldraðir
dvelja skal vera 7,5. Á Hraunbúðum
em 30 vistmenn, þar af 25 í hjúkr-
unarrýmum. Þá eiga 13,6 sjúkraliðar
að vera til staðar. Samtals gera þetta
21,1 stöðugildi.
Miðað við þetta em Hraunbúðir
illilega undirmannaðar, aðeins 2,1
stöðugildi fyrir hjúkrunarfræðinga og
2,5 fyrir sjúkraliða, samtals 4,6
stöðugildi. Reyndar em í dag 8,8
stöðugildi í aðhlynningu á Hraun-
búðum og sinnir það fólk svipuðum
störfum og sjúkraliðar gera. Samtals
gerir þetta 12,6 stöðugildi í heildina
sem er tæplega níu stöðugildum of
lítið miðað við ráðleggingar land-
læknisembættisins.
í skýrslu gæðaeftirlitsins segir að
mikilvægt sé að starfsfólk sé hæfilega
margt, gengið sé út frá hjúkrunar-
þörfum einstaklinganna og stærð
deildar. Of fátt fólk hafi í för með sér
að hjúkrunarþörf vistmanna sé ekki
mætt sem skyldi og þar með minnki
oft lífsgæði heimilismanna. Einnig
geti lítil mönnun leitt til aukins
kostnaðar hjúkmnarvara og lyfja.
Næturvaktir
Annað sem vekur athygli er áhersla
gæðaeftirlitsins á næturvaktir. I dag er
enginn hjúkmnarfræðingur á nætur-
vakt á Hraunbúðum en gæðaeftirlitið
mælir með einum á næturvakt,
tveimur á kvöldvakt og tveimur og
hálfu stöðugildi yfir daginn. Jón Gauti
mælir með að á dagvakt, það er frá
átta til fjögur, sé einn hjúkmnar-
fræðingur á vakt íjóra daga vikunnar
sem jafnframt er hjúkmnarforstjóri
stofnunarinnar, hina þrjá dagana skuli
hjúkrunarfræðingarnir vera tveir yfir
daginn.
Ekki er gert ráð fyrir hjúkrun-
arfræðingi á kvöld- eða næturvaktir.
Gæðaeftirlitið leggur aftur á móti á
það áherslu að minnst séu tveir á
næturvakt og þá einn hjúkmnarfræð-
ingur og einn sjúkraliði. Skiptir þá
engu hvort um er að ræða stóra eða
litla hjúkmnardeild eða hjúkrunar-
heimili. Svo segir: „Gæðaráð vill
leggja áherslu á mikilvægi einstak-
lingsbundins mats á heilsufarslegum
þörl'um hins aldraða. Engir tveir
einstaklingar hafa söntu þarfir og
sömu vandamál og eins getur ástand
og líðan breyst frá einni stundu til
annarrar. í þessu tilliti þarl'hjúkmnar-
fræðingur ávallt að vera til taks til að
meta slíkar breytingar og taka afstöðu
til þess hvemig best sé að bregðast við
þeim.“
Hal't var samband við önnur svipuð
Taflfélagið í mikilli sókn
í fyrsta skipti í fyrstu deild
Um síðustu helgi tók Taflfélag Vest-
mannaeyja þátt í Islandsmótinu í skák
sem fram fór í Menntaskólanum í
Hamrahlíð. Til keppni vom send tvö
lið, eitt lið sem leikur í fyrstu deild og
síðan eitt lið sem lék f þeirri fjórðu.
Átta lið em í hverri deild, nema þeirri
íjórðu en þar em þau 23. í fyrstu deild
em átta skákmenn í liði en sex í þeirri
fjórðu.
Islandsmótið fer fram með þeim
hætti að tefldar em fjórar umferðir í
fyrri hlutanum og þrjár í þeim seinni,
sem fer fram fyrstu helgina í mars á
næsta ári. TV lenti í öðm sæti í
annarri deild í fyrra, en færðist upp um
deild þar sem hið alræmda félag Skák-
félagið Hrókurinn dró b-lið sitt úr
keppni, en þeir höfðu unnið aðra
deildina í fyrra. Þetta er í fyrsta skipti
sem TV teflir í fyrstu deild og var því
ljóst að takmarkið yrði fyrst og fremst
að halda sætinu í deildinni.
Eins og lesendum er væntanlega
fullkunnugt tefia sterku Reykjavíkur-
sveitimar fram sterkum stórmeistumm
í sínum sveitum, bæði íslenskum og
erlendum. TV er eina utanbæjar-
félagið ásamt Taflfélagi Akureyrar
sem teflir í fyrstu deild. TV leggur ríka
áherslu á að halda liðinu í fyrstu deild
og var því liðið styrkt með þremur
erlendum meistumm, sem reyndar
tefidu einnig fyrir félagið í annari
deild í fyrra, að auki teflir síðan Sævar
Bjamason fyrir félagið á ljórða borði.
Aðrir í sveitum TV eru flestir
Vestmannaeyingar, búsettir hér eða
brottfluttir. Eftir þennan fyrri hluta
Islandsmótsins er fyrstu deildar liðið
okkar í 6. sæti, en á eftir mun léttara
prógramm í þeim seinni. Fjórðu
deildar liðið er í áttunda sæti, en á enn
ágætis möguleika á að tryggja sér sæti
í þriðju deild í seinni hlutanum þar
sem efstu lið em mjög jöfn að vinn-
ingum.
Lúðrablástur
á laugardag
Lúðrasveit Vestmannaeyja heldur
sínu árlegu Hausttónleika í Höllinni á
laugardaginn nk. kl 15.00.
Áð venju er efnisskrá tónleikanna
mjög fjölbreytt og má þar nefna syrpu
laga sem fræg hafa verið í kvik-
myndum eins og Brúin yfir Kwai
fljótið, Titillög Raiders of the Lost
Ark og Star Trek. Einnig mun sveitin
flytja nýjar útsetningar af íslensku
dægurlögunum Játning og Ó, þú að
ógleymdum tveimur lögum Oddgeirs
Kristánssonar, stofnanda sveitarinnar.
Ósvaldur Freyr Guðjónsson bæjar-
listamaður hefur útsett þjóðhátíð-
arlagið í ár fyrir lúðrasveitina og einn
frægasti mars allra tíma, Washington
Post eftir Sousa er líka á dagskránni.
Stjórnandi Lúðrasveitarinnar er
Stefán Sigurjónsson skósmiður en
með sveitinni munu spila 27 hljóð-
færaleikarar.
Sem fyrr segir verða tónleikamir í
Höllinni á laugardaginn og er fólk
hvatt til að mæta og kynna sér hvað
Lúðrasveitin hefur upp á að bjóða að
þessu sinni.
eða sambærileg dvalarheimili á lands-
byggðinni og eitt áttu þau öll sam-
eiginlegt; hvergi var hjúkrunar-
fræðingur á næturvakt, heldur er látið
nægja að hafa einn á bakvakt.
A Ljósheimum á Selfossi, sem er
einvörðungu hjúkrunarheimili með
tuttugu og fjögur hjúkrunarrými, eru
4,5 stöðugildi hjúkrunarfræðinga og
níu stöðugildi sjúkraliða. Á Garðvangi
í Garði eru sex hjúkrunarfræðingar
með forstjóra í sex stöðugildum og
tólf sjúkraliðar. Þar eru þrjátíu og sjö
hjúkrunarrými. Á dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi fengust þær upp-
lýsingar að fjömtíu og eitt hjúkr- unar-
rými er þar en sjötíu og átta
dvalarmenn allt í allt. 3,7 stöðugildi
eru þar af hjúkrunarfræðingum og
ellefu stöðugildi fyrir sjúkraliða. A
Lundi, dvalarheimili á Hellu, eru 3,5
stöðugildi hjúkrunarfræðinga en að
sögn hjúkrunarforstjóra þar hefur
oftast verið einn hjúkmnarfræðingur
umfram en ekki í dag. Þá eru 3,1
stöðugildi sjúkraliða.
Allt veltur þetta á svokallaðri hjúkr-
unarþyngd en árlega skal það reiknað
út. Ráðleggingar gæðaráðs em mið-
aðar við að hjúkmnarþyngdin sé einn
en meðalhjúkrunarþyngd á íslandi er
0,98. Ekkert hjúkrunarheimili sem
haft var samband við, en þau voru öll
á landsbyggðinni, var með þann fjölda
fagfólks f vinnu sem gæðaráðið mælti
með. Hlýtur það að vekja spurningar
um hvort mikið ósamræmi sé á milli
Landlæknisembættisins og Heilbrigð-
isráðuneytisins þar sem peninga-
skortur veldur því að ekki séu fleiri
starfsmenn.
Þjónustustig ekkilækkað
Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri,
segir það alveg skýrt og leggur áherslu
á það að ekki stendur til að lækka
þjónustustigið á Hraunbúðum. „Það
liggur alveg ljóst fyrir. Við skulum
líka gera okkur grein fyrir því að í
skýrslu Jóns Gauta em tillögur sem
bæjarráð vísaði til félagsmálaráðs. í
raun á bæjarkerfið alveg eftir að Ijalla
um málið. Ég vil leggja á það áherslu
enn og aftur að þjónustustigið verður
ekki lækkað. Hvað framhaldið varðar
er best að við bíðum eftir niðurstöðum
þeirra sem um málið eiga að fjalla,“
sagði Bergur Elías.
Eldgos í garðinum
-Ný bók Axels Gunnlaugssonar
Um þessar mundir kemur út
skáldsagan Eldgos í garðinum eftir
Axel Gunnlaugsson fyrir börn og
unglinga. Sagan segir frá strák sem
vaknar við eldgosið og næstu tvö ár
í lífi hans. Bókin er tvö hundmð
síður og er myndskreytt með
myndum eftir Sigurgeir Jónasson
ljósmyndara frá Skuld.
Axel er Vestmanneyingur í húð
og hár, sonur Gunnlaugs Axelssonar
í Skipalyftunni og Fríðu Dóm
Jóhannsdóttur. Hann þekkir því af
eigin raun söguna á bak við umrótið
sem varð við eldgosið og hvemig
var að flytjast aftur heim við breyttar
aðstæður. Axel er tölvufræðingur að
mennt og starfar sem tjamámsstjóri
hjá Verslunarskólanum.
Fundarboð
Kvenfélagið Líkn verður með fund í Líkn v/Faxastíg á mánudaginn 3.
nóvember n.k. kl. 20.00. Kristín Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur
verður með fyrirlestur um sorg eða einlægni í sorginni.
Mætum vel. Nýjar félagskonur velkomnar.
Stjórnin.
AXEL, þekkir gosið af eigin
raun.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar
Garðarsson. Blaðamenn: Sigursveinn Þórðarson, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir:
Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi
47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur:
frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
í" alla ^mtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti,
kiakannm RÁn^ ^ranni,' Voruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni,
nn afnroWcP H 'u60-’11 '11 ’ Skýlinu í Friðarhöfnog í JollaíHafnarfirði
°9 |Sðs'n Heir°lfs 1Þorlakshöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
að.llar aö Samtokum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun,
hljoðritun, notkun Ijosmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.