Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Qupperneq 15

Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Qupperneq 15
Fréttir / Fimmtudagur 30. október 2003 15 S Atröskun, tekin fyrir á for- varnaviku Framhaldsskólans: s Atröskunar- sjúkdómar dauðans cdvara Fulltrúar frá Speglinum, samtökum aðstandenda átröskunarsjúklinga, héldu fyrirlestur í Framhalds- skólanum fimmtudaginn 9. október en þá var forvarnavika í skólanum. Salurinn var þétt setinn og nemendur skólans fylgdust með af miklum áhuga og að fyrirlestri loknunr komu fram margar athyglisverðar fyrir- spumir. Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, for- maður samtakanna og Haipa Rós Gísladóttir hafa farið í skóla, félags- miðstöðvar og á vinnustaði með fræðslu- og foi-vamaerindi um átrösk- unarsjúkdómana Anorexiu (lystarstol) og Bulimiu (lotugræðgi) Spegilinn er áhugamannafélag en megintilgangur þess er að bæta þekkingu, úrræði og forvamir. Meðal annars með því að beita þrýstingi á heilbrigðiskeifið fyrir bættri aðstoð og þjónustu fyrir átröskunarsjúklinga. Jafnffamt eru samtökin hugsuð sem stuðningshópur fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Katrín og Harpa hvöttu alla þá sem þekkja einhvern með átröskunarvanda að taka á málinu og hvetja þann sem við slíkt glímir að leita sér hjálpar. Þrenns konar sjúkdómar í bæklingi sem Spegillinn gefur út um lystarstol og lotugræðgi segir m.a. „Atröskun skiptist í þrenns konar sjúk- dóma sem nefnast Anorexia nervosa - Lystarstol, Bulimia nervosa - Lotu- græðgi og Over eaters - Ofætur/Offita en samtökin eru einungis hagsmuna- samtök fyrir anorexiu og bulimiu. Atröskun er geðsjúkdómur (geð- röskun), þeir sem þjást af átröskun finnst þeir verða „óhreinir" af mat og óttast hann af ótta við að þyngjast og eða fitna. Atraskanir em meðal flóknustu og erfiðustu geðsjúkdóma. Sjúkdómamir eru langvinnir og algengir fylgikvillar eftir mislanga meðgöngu em ýrrúss konar rrúsnotkun á áfengi og eða lyfjum t.d. hægða- og þvagræsilyfjum, þráhyggja, þung- lyndi, sjálfseyðingarhvöt og sjálfsvígs- hugsanir. Heilinn er gjaman fyrsta líffærið sem verður fyrir skaða. Taugaboðefnaflutningar fara úr skorðum og sjálfsmatið brenglast." Þjóðfélagsdýrkun á SJÚKLEGA GRANNT HOLDAFAR Þær Katrín og Harpa gáfu sér tíma í spjall eftir fundinn og vom fyrst spurðar hvemig hægt sé að koma í veg fyrir sjúkdóminn. „Fólk þarí' að vera meðvitað um sjálft sig, hafa góða sjálfsmynd og kynna sér einkenni og áhættuþætti og vera vakandi fyrir þeim í umhverfinu. Foreldrar verða að vera meðvitaðir um í hvaða umhverfi börnin lifa, þ.á.m. þjóðfélagsdýrkun á sjúklega grönnu holdafari. Algengustu félagslegu áhættuhóparnir eru iðkendur í fim- leikum, sundi, frjálsum. ballett og dansíþróttum, “ segir Katrín og bendir á að langflestir sem glíma við átröskunarsjúkdóma séu konur á aldrinum 13 til 25 ára. „Hins vegar geta allir fengið þenn- an sjúkdóm og hann er hvorki tengdur aldri, hæð, útliti, kynferði eða kyn- hegðun. Það virðist mun viðkvæmara fyrir stráka sem fá þennan sjúkdóm að viðurkenna það og leita sér hjálpar því mikill misskilningur er í gangi um að þessi sjúkdónrur herji eingöngu á konur og homma." Talið er að þrjú þúsund þjáist af þessum sjúkdómi hér á landi og þar af er talið að um þrjú hundruð séu alvar- lega veikir," segir Harpa. „Það er lítið um meðferðarúrræði hér á landi og lítið svigrúm virðist vera fyrir fagfólk að afla sér þekkingar eða einhverrar sérhæfingar á þessu sviði. Það sem í boði er í dag má segja að sé hugsjónaverkefni fárra fagaðila, en þeir hafa ekki meira svigrúm en svo að aðeins er hægt að bjóða upp á sex pláss á ári - þrjú á Barna- og unglinga- geðdeild og þrjú á Geðdeild Land- spítalans, segir Katrín. Erfttt að átta sig á SJÚKDÓMNUM „Alls staðar á Norðurlöndum eru sér- hæfðar deildir þar sem sérfræðingar í átröskunarsjúkdómum starfa. Nú hefur verið skipuð nefnd á vegum heilbrigðisráðuneytis til að taka út þörfina á úrræðum fyrir átröskunar- sjúklinga," segir Harpa. Þær segja erfitt að fá fólk með sjúkdóminn til að átta sig á að það er veikt. Oft byrjar þetta sem megrun sem fer úr böndunum. „Yllrleitt er jretta fólk mjög grannt en sjúklegt ferli getur verið farið í gang þó svo einstaklingur sé ekki orðinn sjúklega grannholda. Aðstandendur eru oft í miklum vanda og fyllast sjálfsásökun, það hafa allir heyrt um anorexiu en ef þú átt tíu til tólf ára bam sem þjáist af næringarskorti þá em viðbrögðin oft á þann veg að foreldrið eigi bara að láta barnið borða. En það er oftast ekki hægt að stjóma því að þau börn borði sem alls ekki vilja það. Ef fólk er orðið veikt er ekki nóg að beita slíkum „patent-lausnum," átröskunarsjúk- lingar verða fijótt sérfræðingar í því að blekkja aðstandendur," segir Katrín. Röng skilaboð Þær benda á að fólk fái mikið hrós þegar það grennist. „Við heyrum oft setningar eins og „mikið lítur þú vel út, þú hefur grennst." Væri ekki nær að hrósa fólki fyrir það hvað það er sportlegt og vel á sig komið, geisli af heilbrigði o.s. frv. Við leggjum of mikið upp úr holda- farsdýrkun og hver og einn verður að finna mörkin þ.e. finna sér heilbrigðan lífstíl, þ.e.a.s. ef þörf er á að missa nokkur kfió,“ segir Harpa. „Áröskunarsjúkdómar eru dauðans alvara og fólk verður að vera vakandi fyrir sjálfu sér. Það þarf að benda aðstandendum á leiðir og hvað er í boði en mörgum hættir til að hylma yfir með sjúklingnum. Sjálfssvelti og framkölluð uppköst eftir máltíð em aldrei lausn, ekki einu sinni í stuttan tíma," segja þær Katrín og Harpa sem vilja leggja sitt af mörkun til jress að koma í veg fyrir átröskunarsjúkdóma. Nánari upplýsingar er að finna á www. spegillinn.is og síma 661-0400. NEMENDUR fylgdust af athygli með fyrirlestri um átröskun. HARPA Rós og Katrín Sif fluttu krökkum sannleikann um átröskun. Einnig á að vera hægt að nálgast upp- lýsingabækling á næstu heilsu- gæslustöð. Vel heppnuð FORVARNAVIKA Lóa Skarphéðinsdóttir, skólahjúkr- unarfræðingur Framhaldsskólans, segir forvamaviku skólans hafa heppnast vel. „Ég finn að það er mikil ánægja með að skólinn bauð upp á súpu og brauð á föstudeginum og ég held að allir hafi skemmt sér ágætlega þennan dag, segir Lóa en útivistar- deginum Iauk með því að nemendur og kennarar komu saman í Höllinni og borðuðu saman hádegismat. Lóa er sérstaklega spurð út í fyrirlesturinn um átröskun og hvemig málum er háttað hér. „Það hefur komið upp í framhaldsskólum að ræst- ingarfólk verði vart við að nemendur em að kasta upp. „Glerungur í salem- um skemmist vegna saltsýmnnar sem kemur upp úr maganum við uppköst. Tannlæknar em oft þeir fyrstu sem sjá að um bulimiu er að ræða þar sem glemngur á tönnum eyðist," segir Lóa. „Ef maður lítur almennt á þetta þá finnst mér áberandi hvað maður sér mikið grannar stúlkur og svo feitar. Offita er líka átröskun og það má segja að það séu fieiri úrræði fyrir fullorðna sem þjást af offitu til dæmis á Reykjalundi og í Hveragerði en það vantar úrræði fyrir bömin. Veistu um einstaklinga sem þjást af átröskun í skólanum? „Ég hef haft gmn um anorexiu og ef krakkar eru ekki orðnir átján ára þá hefur maður þá leið að tala við foreldrana. Þetta er viðkvæmt, þetta geta verið stúlkur sem em grannar að eðlisfari en ég hef líka heyrt af stúlkum eftir að þær em famar úr skólanum. Það hafa margir opnað sig eftir fyrirlesturinn og fengið leiðbein- ingar fyrir þá sem þær þekkja.“ Fullkomnunaráráita Lóa segir að stelpur sem þjáist af anorexiu séu fullkomnunarsinnar. „Gegnumgangandi em þetta stelpur sem em hæstar í bekknum. Þær koma til kennarans og kvarta yfir nfu og spyrja; „af hverju fékk ég ekki tíu. Þetta snýst um að hafa stjórn á hlutunum og þær vilja vera bestar í öllu.“ Anorexia er geðröskunarsjúkdómur og Lóa segir að þegar ákveðnu svelti er náð þá kvikni geðtmflun. „Þetta er auðvitað misjafnt eftir einstaklingum, rétt eins og með geðklofa sem getur orðið til við mikið álag. Anorexiu- sjúklingar hafa brenglaða sjálfsmynd, sjá sig feita og ýmsar breytingar verða á Iíkamsstarfseminni. Stúlkur hætta að hafa blæðingar og sjúklingarnir komast í það ástand að hætta að finna fyrir hungri." Lóa hcfur unnið með foreldrum og anorexiusjúklingi sem var í grunn- skóla. „Það tókst að snúa ferlinu við en anorexia læknast ekki, hún getur alltaf blossað upp aftur. Það getur komið upp að vinkonur leiðist út í þelta saman þ.e. bulimiu, sumar hætta en aðrar geta það ekki og þá skiptast á anorexiu og bulimiu tímabil. Þess má geta að þetta á ekki eingöngu við stelpur, strákar em að glíma við þetta í vaxandi mæli. Læra heilbrigðan lífsstíl I Framhaldsskólanum fara allir nem- endur í gegn um fræðslu þar sem m.a. er fjallað um átröskunarsjúkdóma. „Við emm að vinna gegn þessu og allir nýnemar fara í lífsleikni sem skiptist í nokkrar lotur. Fyrsta vikan byggist á hópefli, önnur fjallar um heilbrigðan lífsstfi og sjálfsmynd. Þar er fjallað um átröskun, sýndar brellurnar í tískuljósmyndun, förðun, sílikon o.s.frv. Ræðunrennska er kennd í þriðju lotunni í lífsleikni, í þeirri fjórðu er kennd námstækni og fimmta er f tjármálafræði. Ekki orðið vör VIÐ ALVARLEG TILFELLI í gmnnskólunum er lagt upp úr því að nemendur temji sér heilbrigðan lífsstfl og lögð áhersla á fræðslu og for- vamastarf. Vera Björk Einarsdóttir, skólahjúkr- unarfræðingur Hamarsskóla, segist einstaka sinnum hafa frétt af stúlkum sem eru að framkalla uppköst. „Mér er kunnugt um að þetta getur komið upp í vinkonuhópum. Senr betur fer hefur tekist að koma í veg fyrir, í samvinnu við foreldra, að þetta þróist í að verða sjúkdómur. Ég hef verið með stúlkur í vigtun og viðtölum en það hafa ekki komið upp, það sem kalla má, mjög alvarleg tilfelli. Við erum með spumingalista um hvað nemendum finnst urn eigið heilbrigði í tengslum við læknis- skoðun í 9. bekk. Það koma allir nenrendur 10. bekkjar í viðtöl og þá gefst tækifæri til fræða þau urn, reykingar, áfengi, fíkniefni, átröskun o.fl.. Viðemmmeð vaxtarkúrfuna hjá þessuin krökkum þannig að við sjáum ef einhver fer að beygja mikið út af. Ég vil benda á í tengslum við átröskun að ofát og offita er algengara vandmál og virðist fara vaxandi. Krakkar sem eru of feitir þjást oft af vanlíðan og em með lágt sjálfsmat. Talað er um að stúlkur á aldrinum 15 til 24 ára séu í áhættuhóp vegna anorexiu og þar af leiðandi getur sjúkdómurinn byrjað í efri bekkjum grunnskóla. Við þurfum að vera vakandi fyrir hvers kyns átröskun," segir Vera Björk. Þurfa hrós og UPPÖRVUN Kristín Bjamadóttir, skólahjúkmnar- fræðingur Bamaskólans, segir skipta miklu máli að byggja upp sjálfsmynd krakkanna og finna það jákvæða í fari þeirra. „Ég verð vör við það hjá stúlkum og strákum að þau hafa ekki nógu sterka sjálfsmynd. Krakkarnir þurfa hrós og uppörvun og vissu um að þau séu ágæt eins og þeir eru. Á hverju heimili þyrfti að ræða þær fyrirmyndir barna og unglinga í sjónvarpi, blöðum og allar blekkingar sem eru í gangi. Þá má ekki setja of miklar kröfur á bömin um að þau standi sig á öllum sviðum. Ég veit til þess að ungar stúlkur em að kasta upp og þær eru í miklum áhættuhópi. Það skiptir miklu máli að spyrja börnin hvort þeim líði vel og séu sátt við sjálfan sig. Ég legg sjálfsmatspróf fyrir nemendur 9. bekkjar á hverju ári og þar kemur oft fram hjá þeim að þau ekki eiga auðvelt með að ræða málin við foreldra sína. Oft þarf að skapa næði á heimilum svo að grundvöllur verði fyrir góðum samskiptum. Átröskun er lúmskur sjúkdómur og það þurfa allir að vera vakandi. Ég held að skert sjálfsmynd geti leitt fólk í átröskun eins og ffkniefni," segir Kristín. guclbjorg @ eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.