Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Page 17
Fréttir / Fimmtudagur 30. október 2003
17
Líkamsárás
og þriggja
bfla árekstur
Ein líkamsárás var kærð eftir skemmt-
anahald helgarinnar og átti hún sér
stað á veitingastaðnum Lundanum.
Þarna hafði orðið ósætti á milli
tveggja manna sem endaði með
handalögmálum. Ekki er um alvarleg
meiðsl að ræða.
Af umferðarmálum er það að frétta
að hrina umferðaróhappa varð í sl.
viku. A þriðjudag varð þriggja bíla
árekstur á gatnamótum Skólavegar og
Vestmannabrautar, eins og þegar
hefur komið fram í fjölmiðlum.
Tildrög óhappsins eru þau að bif-
reið sem ekið var austur Vestmanna-
braut lenti á bifreið sem ekið var
suður Skólaveg með þeim alleið-
ingum að hún lenti á bifreið sem ekið
var norður Skólaveg. Ökumaður
bifreiðarinnar sem ekið var norður
Skólaveg var lluttur á sjúkrahús og
sfðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Hins vegar munu meiðsl hans ekki
vera alvarleg. Aðrir sem lentu í
slysinu slösuðust minni háttar.
Bifreiðarnar eru mikið skemmdar
og vom óökufærar eftir óhappið.
Þarf ekki að
greiða bætur
Hæstiréttur hefur dæmt í máli sem
Tryggingamiðstöðin hf. höfðaði á
hendur Utgerðarfélagsins Bjarma ehf.
vegna ftskiskipsins Bjarma VE sem
fórst á sfðasta ári. Hæstiréttur sýknaði
Tryggingamiðstöðina en Héraðs-
dómur Reykjavíkur hafði dæmt
tryggingafélagið til að greiða út-
gerðarfélaginu 36,5 milljónir króna í
bætur. Hæstiréttur byggir dóm sinn á
því að tryggingar Útgerðarfélagsins
Bjarma ehf. hafi fallið úr gildi þegar
skipið var selt til Seglu ehf. 2002.
Nýstárleg aðferð til stefnumótunar:
Kom margt skemmtilegt út úr miðaflóðinu
-segir Andrés Sigurvinsson einn þriggja stjórnenda fundar þar sem kanna átti hug Eyjamanna í
menningarmálum sem svo verður höfð til hliðsjónar í samningum við ríkið
MIÐAFLÓÐIÐ var mikið og úr því verður unnið eftir vísindalegum aðferðum.
Á miðvikudagskvöldið í síðustu viku
var haldinn fundur í Safnahúsinu þar
sem kynntar voru tillögur samstarfs-
hóps að drögum að samstarfssamningi
í menningarmálum á Suðurlandi.
Annars vegar samningur milli ríkis og
sunnlenskra sveitarfélaga um framlög
til menningarmála og hins vegar sam-
starfssamningur sveitarfélaga um
menningarmál svæðisins og leitað var
álits fundarmanna um nánari stefnu-
mörkun varðandi okkar svæði.
Þrír stjórnuðu fundinum en hann
sóttu milli 40 og 50 manns sem flestir
tengdust menningar- og ferðamálum í
Vestmannaeyjum.
Alls urðu fundimir fjórir, I Vík, á
Hvolsvelli, Selfossi auk Vestmanna-
eyja og alls staðar var safnað saman
fólki sem tengist menningarmálum
með einhverjum hætti, s.s. nefndar-
fólkí í menningarnefndum, forsvars-
mönnum leikfélaga, kóra, myndlistar-
félaga og fleiri félaga og forsvars-
mönnum menningarstofnanna.
Farin var nýstárleg leið til að kanna
hug fundarmanna á hvað þeir vilja
leggja áherslu í menningarmálum f
bænum. Á vegg voru þrjár töflur, ein
fyrir styrk samfélagsins, önnur fyrir
veikleika og sú þriðja fyrir tækifæri.
Allir fengu í hendur límmiða og á þá
átti að skrifa það sem fólki fannst vera
helsti styrkur Vestmannaeyja í menn-
ingarmálum og á eftir fylgdu svo
Salur Barna-
skólans
lagfærður
Á vef Barnaskólans kemur fram
að vetrarfríið í skólanum var
notað til að laga aðbúnaðinn í
salnum. Hann hefur verið
málaður að innan og sett upp
öflug loftræsting þannig að
aðstaða til kennslu og
samkomuhalds hatnar til muna.
„Þá er búið að gera við sprungur á
skólahúsinu að utan þannig að
vonandi heldur húsið nú vatni og
vindum. Loftræsting á salernum í
anddyri hefur verið endurbætt
sem og loftræsting í
ræstingaherbergjum í
austurskólanum," segir á vefnum.
veikleikamir og tækifærin.
Miðamir voru síðan settir á við-
eigandi töflu og til að leggja enn frekar
áherslu á hlutina fékk hver maður
rauðan punkt sem hann gat sett á þann
miða sem hann vildi beina athyglinni
sérstaklega að. Einnig fékk hver
maður þrjá græna punkta sem hann
átti að setja á miða sem honum fannst
að ætti að vera númer tvö, þrjú og
fjögur. Var þetta gert á hverri töflu
fyrir sig.
Engar umræður fóm fram á
fúndinum í bytjun nema að útskýrt var
hvemig þetta er hugsað. Þetta er ný
tegund af því sem stundum hefur verið
kallað „brainstorming" sem er þegar
fólk leggur hugmyndir sínar í pott til
að ná sem bestri niðurstöðu. Að þessu
loknu var mönnum gefínn kostur á að
spyrja nánar út í væntanlega samninga
og annað sem þeim lá á hjarta tengt
framkvæmd þeirra.
Megintilgangurinn var að átta sig á
því hvað fundarmenn vildu leggja
áherslu á í flokkunum þremur. Andrés
Sigurvinsson, framkvæmdastjóri
menningarsviðs bæjarins sem kom inn
fyrir Lúðvík Bergvinsson, sem var á
yfirreið með þingmönnum um kjör-
dæmisins, kvaðst vera ánægður með
hvemig til tókst bæði hér og á
fastalandinu. Andrés sótti alla fundina
fjóra og sagði hann að hvergi hefðu
fleiri mætt en hér. „Það kom margt
mjög áhugavert út þessu miðaflóði á
öllum stöðum,“ sagði Andrés. „Meðal
þess var veðrið, úteyjar, bjargsig og
eggjataka, lundaveiði og fleiri sér-
kenni sem gætu m.a. nýst í menn-
ingartengdri ferðaþjónustu. Héma
heima horfir fólk til lifandi listar og
meira samstarfs við aðila á Suður-
landi. Það kom fram á öllum
stöðunum að fólk sér styrk í að styðja
hvert annað, hætta að kúldrast í sínum
hornum.“
Andrés sagði að komið hefðu l'ram
ákveðnar spumingar og ótti um að
með nýjum samningi við ríkið yrði
skrúfað fyrir framlög sem hið opin-
bera veitir nú þegar til ýmissa þátta.
„Það breytist ekki, söfn og aðrar þær
menningarstofnanir sem ríkið hefur
stutt í kjördæminu til þessa munu
áfram fá sín framlög.“
Módelið er sótt austur á fírði og
hefur virkað hvetjandi á menningarlíf
og starfsemi eftir að það komst á.
Síðastliðið ár veitti hið opinbera milli
30 og 40 milljónum króna í ýmis
verkefni á Austurlandi á þessu ári.
„Það sóttu um 130 aðilar um styrki
og fengu 70 aðilar, bæði félög og ein-
staklingar úthlutað. Operusmiðjan
fékk hæsta styrkinn 2 milljónir en sá
lægsti var 30 þús. til einstaklings
vegna bókaútgáfu. Austfirðingar láta
sum sé vel af samstarfinu við ríkið og
ég fagna því að nú erum við að fara
sömu leiðina, löngu tímabært."
Andrés sagði að nú tæki við úr-
vinnsla úr þeim gögnum sem fyrir
liggja eftir fundina fjóra. „Nú þarf að
koma þeim í tölvutækt form og unnið
verður faglega úr þeim,“ og verða
niðurstöður sendar sem fylgiskjöl í
væntanlegri samningsgerð," sagði
Andrés en með honum voru Sigurður
Bjamason ráðgjafi Atvinnuþróun-
arsjóðs Suðurlands og Jóna Sigur-
bjartsdóttir formaður nefndarinnar.
Þorvarður Hjaltason frstjóri SASS er
einnig í nefndinni en átti ekki
heimangengt vegna þingmannafund-
anna.
í salnum hefur Barnaskólinn haldið bráðfjörugar árshátíðir.
Stútur Og
mannlaus
bifreið á ferð
Aðfaranótt föstudags varð umferðar-
óhapp á Brimhólabraut þar sem
bifreið sem ekið var suður Brim-
hólabraut lenti utan vegar á gatna-
mótum Bessastígs og Brimhólabraut-
ar eftir að ökumaður hennar missti
stjóm á bifreiðinni. Ökumaðurinn,
sem er grunaður um ölvun við akstur.
hljóp í burtu frá vettvangi en gaf sig
fram stuttu síðar. Tveir farþegar, af
fjómm sem vom í bifreiðinni, þurftu
að leita læknisaðstoðar en meiðsl
þeirra vom minni háttar.
Sama dag varð umferðaróhapp á
Vestmannabraut þegar mannlaus bif-
reið rann af stað, lenti á glugga í
Magnúsarbakaríi og braut rúðu í
glugganum. Einnig urðu einhverjar
skemmdir gluggakarmi.
Tíu kæmr liggja fyrir vegna brota á
umferðarlögum og má nefna kæmr
vegna gmns um ölvun við akstur,
vanrækslu á að færa ökutæki til
skoðunar, notkun farsíma án
handfrjáls búnaðar við akstur, brot á
stöðvunarskyldu, brot á sérreglum
fyrir torfæmtæki o.fl.
Setjið bjöllur
á kettina!
Á þriðjudaginn litu við á Fréttum þrír
fuglaskoðarar sem hafa heimsótt
Vestmannaeyjar nokkmm sinnum í
haust. Þeir em mjög ánægðir með
árangurinn sem sagt var frá í síðustu
Fréttum. M.a. fundu þeir bláskríkju,
amerískan fugl sem aðeins tvisvar
hefur fundist í Evrópu. Bæði skiptin
fannst bláskríkjan í Eyjum.
Eitt hefur vakið athygli þeirra, en
það er mikill fjöldi katta sem hlýða
veiðieðlinu með því að eltast við
smáfugla. Fuglaskoðararnir segja að
kettimir séu m.a. ástæða þess að ekki
er mikið um smáfugla í Eyjum.
Þess vegna hvetja þeir kattaeig-
endur til að setja bjöllur á kettina, það
sé besta vömin.