Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Qupperneq 1

Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Qupperneq 1
i Á fundi um sjávarútvegsmál á fimmtudag komu fram hugmyndir um að fiskvinnslufyrirtækin í Vest- mannaeyjum tækju sölumál sjávar- afurða meira í sínar hendur en verið hefur. Utflutningur sjávarafurða á Islandi nemur um 100 til 120 milljörðum á ári og Binni í Vinnslustöðinni sagði að hlutur Vestmannaeyinga væri um 11 % þegar hann var spurður út i málið. „Við erum með 10 til 13 milljarða af afurðunt og ferskum fiski, útflutningstekjur Vinnslu- stöðvarinnar eru um 4 milljarðar og ætli það sé ekki svipað hjá ísfélag- inu. Mestum hluta af sölu á þessari vöru er sinnt frá Reykjavík en þarf það endilega að vera svoleiðis? Ekki þar fyrir að Haraldur Gíslason er með sölu og umsvif fyrir um einn milljarð á ári í mjöli og lýsi. Við höfum áhuga á að taka sölumálin meira í okkar hendur. Við teljum að það komi betur út fyrir okkur að taka sölumálin meira í okkar hendur en við komum aldrei til með að sjá um sölu á öllum okkar afurðum. Á fundinum kom einnig fram að framleiðslufyrirtækin í fiskiðnaði eru ekki nægilega upplýst um óskir kaupenda og neytenda. „Sölufyrir- tækin í Reykjavík vilja ekki að við vitum mikið um kaupendur enda er það er eðli sölufyrirtækja að vera milliliður og þar af leiðandi vitum við lítið um neytandann. Þessi mál eru að fara af stað og eftir því sem fyrirtækin stækka og þróast geta þau tekið sölumálin meira í sínar hendur. Það er hins vegar erfiðara fyrir smáfyrirtæki. Reyndar finnst mér Vinnslustöðin alls ekki stórfyrirtæki. Við erum bara smá- fyrirtæki í hugum kaupenda úti í heimi.“ Forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar áttu fund með forsvarsmönnum sjó- mannaforustunnar og forustu- mönnum LIU á mánudag. Binni sagði fundinn hafa verið málefna- með fundtnn og ég er ánægður með þær viðtökur sem hugmyndir okkar fengu. Menn fóru yfir stöðu mála hver frá sínum sjónarhóli og við kynntum okkar hugmyndir um mönnunarmál sem getur þýtt færri eða fleiri menn um borð í fiski- skipum ásamt ýmsum öðrum hugmyndum. Það er greinilegt að síðustu kjarasamningar hafa skilað miklu og þeir tóku vel í það sem við sögðum. En þar með er ég ekki að segja að þeir samþykki allt sem við lögðum fram. En viðræðumar voru málefnalegar og til góðs þó að enn- þá sé vissulega ekkert frágengið." Varnarliðsþyrla sótti slasaðan sjómann um borð í Snorra Sturluson: * Atta klukku- tímar þar til hann var kominn á sjúkrahús Klukkan eitt á aðfaranótt sunnudagsins sótti þyrla slasaðan mann um borð í frystitogarann Snorra Sturluson VE sem þá var staddur út af Kötlutanga. Maðurinn slasaðist alvarlega en er nú á batavegi og er kominn af gjörgæslu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var við björgunaræfingu á Austurlandi og því var leitað til varnarliðsins. Athygli vekur að það liðu rúmar átta klukkus- tundir frá því beiðni um aðstoð barst þangað til maðurinn var kominn á sjúkrahús í Reykjavík. Líka að lent var með hann í Keflavík og hann fluttur í sjúkrabíl til Reykjavíkur. Eyþór Harðarson, útgerðar- stjóri Isfélagsins sem gerir Snorra út, sagði í gærmorgun að maðurinn væri kominn af gjörgæslu og á batavegi. Meiðsli mannsins voru alvar- leg, hann var rifbeinsbrotinn, Iunga féll saman, miltað hafði skaddast og öxl brákaðist. Eyþór sagðist alls ekki vilja gera lítið úr hlut varnarliðs- manna, þeir hefðu sinnt kallinu og komið til bjargar. Enn hann sagði að björgunin hefði tekið nokkuð langan tíma og það hafi verið álit áhafnarinnar að flugmennirnir hafi virst óörug- gir. Magnús Guðmundsson, stýrimaður á Snorra, sagði að þeir hefðu verið í Skeiðarárdýpi þegar slysið varð. Maðurinn var við vinnu úti á dekki þegar stroffa slitn- aði og lenti á honum. Magnús sagði að þeir hefðu strax haft samband við lækni og siglt var á útopnu á móti þyrlunni. „Við vorum úti af Kötlutanga þegar þyrlan kom og höfðum þá siglt í um 40 mflur. Eg hef ekki lent í þessu áður en þeim sem til þekktu fannst þyrlumennirnir vera nokkuð lengi að koma manninum um borð. En þeir gerðu eins og þeir gátu, komu manninum á sjúkrahús og fyrir það erum við jjakklátir,“ sagði Magnús. Helgi vann með Daufdumban Keppnin um Lagið mitt fór fram í síðustu viku og þar kom Helgi Thorshamar, sá og sigraði. | BLS. 5 Hamarskóli hirti öll verðlaunin Kristinn Pálsson sigraði í Stóru upplestrarkeppninni á mánu- daginn. | BLS. 1 TM-Öryggi fyrir fjölskylduna www.tmhf.is Sameinaðu allar tryggingar á einfaldan og hagkvæman hátt. '7W ORYGGI Bílaverkstæðið Bragginn s.f. Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð Sími 481 3235 Réttingar og sprautun Sími 481 1535 Áætlun Landsflugs gildirfré 15.febrúar WRyjc WV£y mán-fös mið-sun fös lau sun-fim 07:30 08:15 12:00 12:45 18:45 19:30 16:45 17:30 17:30 18:15 Kynntu þér nettilboðin á www.flugfelag.is LANDSFLUG ' ) 481 3300 / 570 3030 32. árg. / 15. tbl. / Vestmannaeyjum 14. apríl 2005 / Verð kr. 200 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is Grallaramótið í sundi fór fram í sundhöllinni á laugardaginn og komu tvö félög ofan af landi með um 90 krakka. Mikil stemmning var á mótinu og þegar Fréttir litu við voru þessir krakkar að slaka á í pottunum eftir erfitt sund. Eyjamenn selji sjálfir sinn fisk -Er meðal hugmynda Binna í Vinnslustöðinni legan og góðan. „Ég er ánægður

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.