Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Síða 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 14. apríl 2005 Biskupinn í heimsókn Helgina 23. til 24. apríl kemur biskup Islands, hcrra Karl Sigurbjömsson, í heimsókn til Vestmannaeyja. Aðal- erindið verður að prédika við íjölskylduguðsþjónustu í Landakirkju sunnudaginn 24. apríl kl. 11.00 og að því loknu að blessa nýju viðbótina við Safnaðarheimilið. Um leið verður efnt til vorhátíðar fyrir bama- og æskulýðsstarfið, kirkjustarf fatlaðra og barnakórinn með leikjum og grilluðum pylsum eftir guðsþjónustuna. Eftir húsblessun biskups verður kirkjukaffi í Safnaðar- heimilinu í boði sóknamefndarinnar. Biskup mun einnig heimsækja heimilisfólkið á Hraunbúðum og fólkið á Sjúkrahúsinu og leiða þar helgistundir á laugardeginum. Þann dag mun hann einnig vera með almenna helgistund í Stafkirkjunni, en nánari tímasetningar verða auglýstar í staðarblöðunum í næstu viku. Við fjölskylduguðsþjónustuna munu allir kórar Landakirkju syngja, en það em Kór Landakirkju, Stúlknakór Landa- kirkju og Litlir lærisveinar. Vonast prestamir og sóknamefndin til þess að sem flestir komi til kirkju þennan dag og eigi saman góða stund. Baráttan gegn kanínunum hefur borið árangur en meira þarf til að eyða þeim: Einstök fuglabyggð í Ystakletti í hættu -að mati forstöðumanns Náttúrustofu í Ystakletti er niikið lundavarp auk þess sem þar verpa skrofa, stormsvala og sjósvala. Vestmannaeyjar eru mjög mikilvægar fyrir stofna þessara fugla. Talið er að um 95% íslensku sjósvölu- og stormsvölustofnanna haldi sig í Vestmannaeyjum yfir sumarmánuðina og eru það 75% til 90% af evrópska sjósvölustofninum og 15% til 30% af evrópska stormsvölustofninum. Eins og fram hefur komið í Fréttum hafa menn nú vaxandi áhyggur af ljölgun kanína á Heimaey. Sýnl hefur verið fram á að kanínur hafa áhrif á lundabyggð og gróðurfar og menn vilja því grípa til róttækra ráðstafana til að halda þeim í skefjum. Orðið hefur vart við kanínur í Heimakletti og nái þær bólfestu þar er hætta á að þær komist út í Miðklett og Ystaklett. Ingvar Atli Sigurðsson, forstöðu- maður Náttúrustofu Suðurlands, telur brýnt að grípa til aðgerða þar sem í Ystakletti sé mikið lundavarp auk þess sem þar verpa skrofa, stormsvala og sjósvala. Vestmannaeyjar eru mjög mikilvægar fyrir stofna þessara fugla. Talið er að um 95% íslensku sjósvölu- og stormsvölustofnanna haldi sig í Vestmannaeyjum yfir sumarmánuðina og eru það 75% til 90% af evrópska sjósvölustofninum og 15% til 30% af evrópska stormsvölustofninum. „Einnig er svo lil allur íslenski skrofustofninn við Vestmannaeyjar á sumrin. Við berum því mikla ábyrgð hvað alla þessa stofna varðar og samkvæmt Bemarsamningnum ber okkur að gera nauðsynlegar ráð- stafanir til að viðhalda þeim. Frosti Gíslason, framkvæmdastjóri umhverfis og framkvæmdasviðs, skrifaði bréf til Umhverfisstofnunar í síðustu viku þar sem hann óskaði eftir því að stofnunin kæmi að fram- kvæmd og fjármögnun veiðanna. „Við höfum vaxandi áhyggjur af þessu vandmáli og höfum unnið að því að taka á því í nokkum tíma. Þessi aukna áhersla núna tengist að hluta til vinnu vegna náttúruvemdaráætlunar í samvinnu við Umhverfisstofnun, HÍ og Náttúmstofu Suðurlands. Mín skoðun er sú að það eigi að gera allt sem hægt er til að stöðva útbreiðslu og jafnvel útrýma kanínum af Heimaey. Eg vil benda á að samkvæmt bú- fjársamþykkt þarf sérstakt leyfi til að vera með kanínur og auðvitað er óheimilt að sleppa þeim út í villta náttúm enda fjölga þær sér hratt og geta valdið skaða á lífríki Eyjanna." Skógræktarfélag Vestmannaeyja ályktaði í nóvember 2001 og hvatti bæjaryfirvöld þá þegar til að skipu- leggja útrýmingu á kanínum enda höfðu félagsmenn orðið varir við miklar skemmdir á gróðri. Asmundur Pálsson, meindýraeyðir bæjarins, áætlaði að vorið 2001 hafi verið u.þ.b. 2000 kanínur á Heimaey Ásmundur sagði að sérstakt leyfi þyrfti til kanínuveiða og nú væru sex menn í Eyjum með slíkt leyfi. „Við byrjuðum veiðar árið 2002 en árið áður urðum við varir við miklar skemmdir á gróðri vegna kanínu- faraldursins. Við höfum unnið markvisst í því undanfarið ár að fækka kanínum og viljum klára þetta og þess vegna viljum við fá aðstoð frá Umhverfisstofnun. Ég reikna með að hér séu núna um það bil 400 til 600 dýr þannig að starf okkar hefur borið árangur." Freydís Vigfúsdóttir, líffræðingur. rannsakaði áhrif kanínu á lundabyggð sumarið 2003 í Sæfjalli í Vest- mannaeyjum og skilaði ritgerð um efnið við Háskóla íslands í febrúar 2004. í niðurstöðum hennar kentur fram að á þeim svæðum þar sem áhrifa kanína gætti, þ.e. í SæQalli, var hlutfall yfirgefinna eða óvirkra lundahola mun hærra en á kanínu- lausu svæði. Einnig segir í ritgerðinni að kanínur, eins og þær sem eru á Heimaey, hafi víða í heiminum orðið að ill- viðráðanlegu vandamáli, einkum á eyjum og ræktarsvæðum. „Sú stað- reynd að marktækur munur var á fjölda óvirkra og virkra hola milli kanínu- og kanínulausa svæðisins bendir sterklega til þess að viðvera kanína í lundabyggðinni hafi neikvæð áhrif á búsetu lundans á svæðinu," segir Freydís í skýrslu sinni. Einnig segir frá athugunum sem gerðar hafa verið á áhrif kanína á gróður og virðast benda til þess að grasbítar á borð við kanínur hafi slík áhrif á jarðveg að það leiði til minni festu hans sem geti haft afleiðingar á borð við landskrið og aurflóð. Þar segir ennfremur að það sé frekar spuming um hvenær en ekki hvort jarðvegur þar sem kanínur hafast við í lundabyggð geti runnið af stað með tilheyrandi umhverfisskemmdum. Átti ÍBV að tapa? Það vakti talsverða athygli þegar tveimur framlengingum var lokið í fyrsta leik IBV og Fram að gripið var til vítakastkeppni en til þessa hefur bráðabani ráðið úrslitum í leikjum sem þessum. Eyjamenn höfðu svo loksins betur eftir tvöfalda vítakastkeppni þar sem liðin tóku fimm vítaskot hvort í hvorri keppni fyrir sig. En nú hefur komið upp úr krafsinu að misræmi er í alþjóðareglum og reglum HSÍ. Þannig segir í alþjóða reglum um vítakastkeppni, regla 5.3.1.4 e-liður að í annarri umferð vítakastkeppni, fáist úrslit þegar markamunur verður á liðunum eftir að liðin hafi tekið eitt víti hvort. í seinni vítakeppninni byrjuðu Framarar á því að skora en fyrsta vítaskot ÍBV var varið. Þar með hefðu Framarar átt að vinna leikinn ef farið væri eftir alþjóða reglum handboltans. Hins vegar segir í íslensku reglugerðinni um vítakeppni m.a: úrslit eru fengin ef markamunur er eftir að bæði lið hafa lokið annarri umferðinni. Samkvæmt heimildum Frétta er þama um lélega þýðingu á alþjóðareglunum að ræða og því geta Eyjamenn þakkað lélegri enskukunnáttu fyrir sæti sitt í undanúrslitum. Ekki allt fengið með öðru apóteki Umræðan um nýtt apótek og verð á lyijum í Apóteki Vestmannaeyja hefur verið mikil undanfarið. Enn hefur ekki verið tekin afstaða til umsóknar Lyíja og heilsu ehf. í heilbrigðisráðuneytinu en að öllu óbreyttu mun lyfsölukeðjan opna útibú í Vestmannaeyjum á næstu mánuðum. Það eru þó ekki allir sem hafa þá sögu að segja að lyf hér séu á hærra verði en hjá keðjuapótek- unum. Magnús Kristinsson, útgerðar- maður, þurfti að kaupa sér lyf fyrir skömmu og fékk fjölnota lyfseðil. Hann keypti íyrsta skammtinn í apóteki Lyfju í Reykjavík og kostaði skammturinn 4.905 krónur. Næsta skammt keypti hann í Apóteki Vestmannaeyja og var skammturinn 405 krónum ódýrari þar. Magnús sagði í samtali við Fréttir að honum leiddist sú umræða sem verið hefúr um þessi mál í Eyjum. „Ég sé ekki þjónustuna batna með nýju apóteki. Það verður einfaldlega til þess að annar aðilinn hættir að nenna að standa í þjónustu og ég sé ekki betur en að þetta eina apótek hafi þjónað Eyjamönnum vel í gegnum árin.“ Ársbing ÍBV Ársþing íþróttabandalags Vestmannaeyja, verður haldið í Týsheimilinu fimmtudaginn 12. maí kl. 20.00. Nánar auglýst síðar. íþróttabandalag Vestmannaeyja Sigríður Inga Sigurðardóttir frá Skuld, Áðurgistiheimilinu Hvíld Dynsölum 6, Kópavogi er áttræð í dag Hún verður að heiman, en heldur upp á afmæli sitt, ásamt fjölskyldu sinni, 3. maí í Danmörku. FRÉTTIR rtgpfniiíli: Qyjnsýn öhf 480378-054!) - Vpstmiuiiiiicyjuin. Hitstjóri: ðmiir (iimlnrsson. Blaðiunenn: Sigui-s\oinn Ix’mlni'soii, (iiiðbjörg Sigurfieirsdóttir. íjii'óttiit .lólins Ingoson. Ábyrgðiiriiienii: Ómiir(iiuðiusson & (íisli VnHýsson. I’rcntviiiiin: Eyjiusýn/ Eyjaprent. Vostniiuiiiiieyjiiiii. Aðsetar ritstjórimr: Strandvegi 47. Simait 481 1:400 & 481 »410. Myndriti: 481-1393. Netfiuig/rafixistiii'. fiettir@eyjafivttir.is. Veffáng: http/Anvw.eyjafivttir.is FHÉTTIlí koma út nlla fimmhiilagiL Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasiilu á Kletti, Tvistinuin, To|i|inum, Vönival, Herjólfi, Fliigliafnarverslaiiinni, Krónuiiiii, Isjakanum, Bónusvídeó, veislnn 11-11, Skýlinu í Friðarliöfn og i Jolla i Ilafnarfirði og afgiviitsln Ilejrólfs i Ixirláksliöfn. FIÍÉITJ lí eni prentaðar i 3000 eintökiini. FRÉTI’I li eni aðilar að Samtökum lnrjar- og liéraðsfréttablacliu Eftirpreiitnn, hljóðritim, notknn ljósmynda og annaðerólieimilt nenm heiinildaségetið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.