Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Page 11

Fréttir - Eyjafréttir - 14.04.2005, Page 11
Fréttir / Fimmtudagur 14. apríl 2005 11 Bæjarráð: Lýsir ánægju með viðbrögð ríkisins Bæjarráð lýsti ánægju með þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra sem kynnt var í Vestmannaeyjum í síðustu viku um opnun útibús Fiskistofu í Eyjum í ársbyrjun 2006. „Jafnframt fagnar bæjarráð þeirri stefnu sem felst í þessari ákvörðun að færa ákveðna starfsemi undirstofnana ráðuneytisins í auknum mæli út á land, ekki síst þangað þar sem sjávarútvegur er undirstaða byggðanna. Bæjarráð hvetur sjávarútvegsráð- herra og önnur stjómvöld til þess að halda áfram á þessi braut, en þetta getur orðið öðram hvaming til þess að auka íjölbreymi atvinnulífsins á þess- um stöðum.“ Það var einnig verið að fagna ákvörðunum stjómvalda í öðra máli á fundi bæjarráðs en nú var það vegna ákvörðunar samgönguráðherra um að gert verði ráð fyrir þrettán til fjórtán ferðurn á viku milli lands og Eyja með Herjólfi í nýju útboði og kemur að fullu til framkvæmda í ársbyriun 2006. „Þessi ákvörðun samgönguráðherra er í samræmi við kröfur og óskir bæjaryfirvalda sem kynntar vora í viðræðum við Vegagerðina í febrúar sl. Bæjarráð leggur áherslu á áfram- haldandi gott samstarf við Vegagerðina og rekstraraðila Heijólfs um þá þætti sem varða samskipti bæjaryfirvalda og þessara aðila.“ Allir verðlaunahafar úr Hamarskóla Kristinn Pálsson þótti lesa best Á mánudag voru úrslit í upp- lestrarkeppni grannskólanna. Þar kepptu tólf nemendur úr sjöundu bekkjum Bamaskóla og Hamarskóla. Sex úr hvoram skóla, jafnt skipt milli kynjanna. Nemendur höfðu undirbúið sig vel fyrir keppnina og hefur hann staðið síðan í haust. Æfingar hafa farið fram undir öraggri leiðsögn kennara þeirra. Þrjár umferðir voru í upplestrinum. Fyrst lásu krakkamir upp úr bók Guðrúnar Helgadóttur, Öðravísi dagar og í næstu umferð voru lesin ljóð eftir Jóhannes úr Kötlum. í þriðju umferð lásu þau svo ljóð að eigin vali og vora þau mjög fjölbreytt. Það fór svo að lokum að nemendur Hamarsskóla röðuðu sér í öll verð- launasætin. Kristinn Pálsson, nem- andi í 7. G.S. varð hlutskarpastur en í öðra sæti var bekkjarsystir hans, Sæ- dís Birta Barkardóttir. í þriðja sæti varð Brynja Þrastardóttir úr 7. Þ.G. og sérstök aukaverðlaun í fjórða sæti fékk Birgitta Ósk Valdimarsdóttir, einnig úr7. Þ.G. Kennarar krakkanna eru Guðrún Stefánsdóttir og Þóra Guðmunds- dóttir. Sparisjóðurinn veitti peninga- verðlaun, Kristinn fékk fimmtán þúsund krónur, Sædís tíu þúsund og Brynja ftmm þúsund krónur. Allir verðlaunahafar fengu bókina Við Ægisdyr eftir Harald Guðnason frá fræðslu- og menningarsviði bæjarins. Kristinn Pálsson var að vonum ánægður með sigurinn þegar rætt var við hann en undirbúningurinn hefur verið langur og strangur og meðal annars var efnt til undankeppni í skólanum. „Það kepptu sex úr hvoram bekk um það hvaða sex kæmust í leikhúsið. Eftir að það var komið í ljós hverjir það yrðu tóku við æfingar sem Halldóra skólastjóri stjómaði. Hún kenndi okkur hvemig við ættum að vera við púltið, hvar væri best að anda og að æfa okkur að líta upp úr bókunum annað slagið.“ Kristinn, sem var mjög skýrmæltur og ákveðinn þegar hann las, sagði þetta ekki hafa verið erfítt, þó að í salnum hafi verið fjöldinn allur af fólki. „Ég erekki sviðshræddur. Bæði spila ég á píanó og hef verið að búa til stutt leikrit fyrir bekkjarkvöld og svona. Eg myndi samt ekki segja að ég sé vanur en það var alla vega enginn sviðskrekkur í mér.“ Kristni fannst upplesturinn heppnast vel hjá öllum krökkunum en aðspurður hvort eitthvað framhald verði á vissi hann ekkert um það. „Það kom nú fram þama að þau sem hafa unnið á höfuðborgarsvæðinu voru fengin til að lesa Passíusálmana á páskunum en ég veit ekkert hvort það verður eitthvað hér.“ Fundnir voru allir sigurvegarar síðustu ára á höfuðborgarsvæðinu og þeir fengnir til verksins sem tók rúmar sex klukkustundir í flutningi. „Ég veit nú ekki hvort ég er mjög spenntur fyrir því en það væri örugglega skemnitilegt að prafa,“ sagði Kristinn að lokum. Islandsbanki gefur út tölvukennslubók fyrir byrjendur Palli Helga fékk tölvu með kveðju frá Jóhönnu Edwald PÁLL í hópi starfsfólks íslandsbanka í Eyjum sem hugsar vel um sína. Islandsbanki hefur gefíð út nýtt kennslurit á tölvur og hefur þannig komið til móts við þá viðskiptavini sem hafa litla sem enga fæmi á tölvu. Sérstaklega er kennt á Netbanka íslandsbanka, isb.is. Utgáfufyrirtækið Hemra stendur að útgáfunni ásamt bankanum. Ingi Sigurðsson, útibússtjóri íslandsbanka í Eyjum, sagði að þessi útgáfa væri liður í því átaki bankans að gera fjármálaþjónustu aðgengilega sem flestum á vefnum. í því felist mikið hagræði að íjármálaþjónusta sé aðgengileg sem flestum, enda eigi fólk oft erfitt um vik að komast í útibúin. Einnig era námskeið á vegum bankans fyrir viðskiptavini sína. Að þessu tilefni var Páli Helgasyni afhent tölva og kennslubók í útibúi bankans á þriðjudag. Gjöfin á tölv- unni var í samstarfi við Tölvun. Ástæðan var að á vormánuðum 2004 barst íslandsbanka bréf frá Páli, stílað á Jóhönnu Edwald þjónustufulltrúa sem flestir ættu að muna eftir úr auglýsingaherferð bankans. Þar óskaði hann eftir nauðsynlegum upplýsingum til þess að hann fengi að njóta þess í kjöram að vera í bankaþjónustu hjá íslandsbanka og með tryggingar hjá Sjóvá. I bréfi Páls segir meðal annars: „Alla mína ævi hefi ég notið þjónustu, fýrst Utvegsbanka Islands útibús í Vestmannaeyjum og síðan íslandsbanka útibús í Vestmanna- eyjum. Aldrei þurft að leita annað. Alltaf fengið þá þjónustu sem ég hefi beðið um. Notið leiðsagnar frábærs starfsfólks í gegnum árin.“ Hann hrósar frábæra starfsfólki í útibúinu og segir síðan: „Þið erað oft að benda á netbanka ykkar, ISB.IS. Ég á ekki tölvu og hefi aldrei átt. Þess vegna get ég ekki notað mér þá þjónustu. Því ekki að senda mér sem gjöf góða tölvu! Hér er austan átt, þoka og rigning, +10 stig. Vonandi fáum við engan snjó í vetur.“ Páll þurfti aðeins að bíða eftir svari frá Jóhönnu enda öragglega mikið að gera hjá ofurþjónustufulltrúanum. Hún þakkar Páli kærlega fyrir bréfið og biðst afsökunar á því hversu seint hún svarar en segir mikið að gera hjá sér að samþætta bankaþjónustu og tryggingar. Hún segir bankann virkilega kunna að meta hversu góður viðskiptavinur hann hefur verið. „Hjá mér er bjartviðri, tún farin að grænka og sléttur sjór. Krókus- arnir hafa lifað af síðustu snjókomu, flestir. Sumir hafa drepist. Ég get varla beðið eftir að trén laufgist og sumarið gangi í garð. Ég vona að þú náir tökum á þeirri þjónustu sem í boði er í netbankanum, en hættir nú ekki alveg að koma í útibúið. Þú veist að það sem ég legg alltaf mest upp úr er persónuleg þjónusta og mannieg samskipti. Með kærri kveðju. Jóhanna Edwald, starfsmaður mánaðarins í mars og öragglega í apríl líka.“ Spurt er: Hvað kemst ÍBV langt? Jóhann Benóný.sson: Bæði lið lenda í öðru sæti. Enginn titill í ár, því miður. Svala Dogg Þorlaksdottir: Þau komast alla leið, bæði karla og kvennaliðið. Maður verður bara að hafa trú á okkar nrönnum og ég hef fulla trú á að Alla Gokorian, fyrrverandi samstarfsmaður okkar

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.