Harmoníkan - 01.10.1986, Qupperneq 3

Harmoníkan - 01.10.1986, Qupperneq 3
stökum vinsældum meðal almenn- ings, vegna þess hve hve haganlega hún var gerð, og svo hafði hún þessa undurfögru tóna sem féllu almenn- ingi sérlega vel í geð. Nú spruttu upp harmoníkuverk- stæði víða, en þó aðallega í Suður- Evrópu. Einn frægastur þessara harmoníkusmiða var Mattias Hohner. Hann átti heima í litlum bæ sem heitir Trossingen í suður Þýska- landi. Árið 1857 stofnaði hann harmoníkuverksmiðju sem er heims- frægt fyrirtæki í dag, og elsta fyrir- tækið í iðninni sem framleiðir um 400.000 harmoníkur á ári. Harmoníka Daimans var auðvitað mjög frumstæð að okkar mati í dag, en stöðugar endurbætur voru gerðar á þessu hljóðfæri. Sérstaklega urðu vinsælar svokallaðar Magdeburg- spil, sem voru smíðaðar í Magdeburg af Fredrich Gesner hljóðfærasmið. Þessi harmoníka komst brátt í tísku og varð mjög vinsælt hljóðfæri meðal almennings. Á árinu 1865 smíðaði austurríkismaðurinn Philipp de Ponts fyrstu píanoharmoníkuna og hélt hún velli í nokkra tugi ára. Um aldamótin tók heldur betur að syrta í álinn fyrir gömlu harmoníkuverk- smiðjunum þegar ný verksmiðja tók til starfa í Duisburg og smíðaði hún stórar harmoníkur sem voru með klukku og blásturshorni. Þær voru málaðar í æpandi litum og þóttu stór- kostlegar. En gömlu verksmiðjurnar stóðust samkeppnina og litlu síðar fór verksmiðjan í Duisburg á hausinn. Allar harmoníkurnar, sem smíð- aðar voru til 1890 vour svokallaðar dúr harmoníkur sem við þekkjum sem tvöfaldar nikkur í dag, sem þýddi að takmarkað var hægt að spila á þær, þess vegna voru þær í litlum metum hjá músiklærðu fólki. En það birti upp. Árið 1892 smíð- aði belgíumaðurinn Armand Locieaux fyrstu krómatísku harmoníkuna og varð það til þess að gera harmoníkuna að alvöruhljóð- færi, sem snillingar leika á í dag. Pietro Frosini og Pietro Deiro urðu átrúnaðargoð harmoníkuunnenda um víða veröld. Þeir sýndu svo ekki varð um villst, hvernig hægt væri að spila á kromatíska harmoníku. Frá aldamótum hefur harmoníkan náð vaxandi vinsældum meðal fólks í öllum löndum heims, og er nú eitt vinsælasta hljóðfærið í heiminum í aa®' Lauslega þýtt HARMONÍKAN Útgefendur og áb.menn: Hilmar Hjartarson Ásbúð 17, Garðabæ, sími 91-656385 Þorsteinn Þorsteinsson Torfu- felli 17,111 R.vík, sími 91-71673 Blaðið kemur út þrisvar á ári. í oktober, endaðan febrúar og í endaðan maí. co u_ LL p z * t= z Auglýsingaverð: g 1/1 síða kr. 6000 1/2 síða kr. 4000 1/4 síða kr. 2.500 1/8 síða kr. 1.500 Smáauglýsingar (1,5 dálksenti- metri) kr. 500 + kr. 100 fyrir hvern auka dálksentimetra. Styrktarlína kr. 500 Ágæti lesandi Þar kom að því. Þú heldur á fyrsta harmoníkublaði, sem hef- ur verið gefið út á íslandi. Þegar við í upphafi ræddum saman um að hefja útgáfu á þessu blaði, þá datt okkur sennilega ekki í hug hvað það kostaði að gefa út svona blað, og jafnvel ennþá síður hversu mikinn tíma það tæki að koma þessu heim og saman. En við fengum uppörvun úr öllum áttum og aðstoð margra góðra manna, og þetta er árang- urinn. Hvað er þá framhaldið? Það getur oltið á ýmsu. Blaðið verður ekki langlíft nema því aðeins að sem flestir, sem á annað borð hafa áhuga fyrir harmon- íkunni, kaupi það og lesi. Til- gangurinn með þessu blaði er sá, að tengja saman það fólk sem hefur áhuga fyrir harmoníkunni, með því að segja frá starfi ein- staklinga og félaga af öllu land- inu. Og nú er komið að þér. Hvernig væri nú að taka sér penna í hönd og skrifa í blaðið. Er ekki eitthvað að gerast í sambandi við harmoníkuna í þínu byggðar- lagi? Hittist þið aldrei, farið þið ekkert saman, spilið þið bara inni á heimilum ykkar? Ef þér liggur eitthvað á hjarta sem þú telur að geti átt erindi i blaðið, þá vertu ekki að hika við að senda okkur línu. Gott væri að fá frá ykkur efni vélritað, en auðvitað er það ekki skilyrði. Og munið að góð mynd gerir góða grein ennþá betri. Þá viljum við benda þér á, að ef þú vilt selja eða kaupa hljóðfæri, þá er upplagt að auglýsa í blað- inu. En auðvitað eru allar auglýs- ingar sem birtast í blaðinu vel þegnar, því þær styrkja fjárhags- lega afkomu blaðsins. Til þess að auðvelda samstarf á milli félag- anna, höfum við sent öllum for- mönnum harmoníkufélaga á landinu bréf, þar sem við biðjum um merki (mynd af fána eða álíka) hvers félags. Við birtum svo í blaðinu nöfn formanna allra félaganna á landinu og félags- merki hvers félags. Þá viljum við þakka öllum þeim sem rétt hafa okkur hjálpar- hönd, eða greitt götu okkar á einn eða annan hátt. Sérstakar þakkir til Einars Torfasonar. Með harmoníkukveðjum 3

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.