Harmoníkan - 01.10.1986, Page 9
Á hljóðfœraviðgerðarverkstceðinu hjá
Guðna S. Guðnasyni. Hann brást fljótt
og vel við þegar einhver ókind hljóp í
hljóðfœrið hjá Lars.
meir óðum við Ingimar yfir á undan
bílnum til að taka myndir,
Þegar til Hveravalla kom varð það
ljóst að Ingimar átti stórafmæli, hann
stóð á fimmtugu og var því skálað
honum til heiðurs en eitthvað var lítið
af öli til að blanda í mjöðinn og stakk
einhver upp á að nota vatn úr ein-
hverjum læknum sem rann frá hvera-
svæðinu. Þessi hugmynd var til allrar
lukku reifuð við Iandvörð á svæðinu
og svaraði hann þvi til að menn gætu
átt í erfiðleikum með þvaglát í nokkra
daga því vatnið væri mjög rikt af út-
fellingarefnum og væri því ráðlegast
að sleppa því.
Hverasvæðið var skoðað og höfðu
menn gaman af að sjá ferðamenn
sjóða egg í heitum bullaugum og
margt annað sem þarna er athyglis-
vert var vandlega athugað.
Áfram var haldið í norður og var
nú reynt að minna á útilegumenn sem
þarna bjuggu fyrrum og fleiri hættur
sem á öræfunum leyndust. Lars og
fjölskylda voru í einu orði sagt heilluð
af törfraheimi þessara víðáttumiklu
óbyggða.
Til Akureyrar komum við að áliðn-
um degi. Þar tóku á móti okkur
formaður F.H.U. við Eyjafjörð,
Jóhann Sigurðsson og ritari þess
félags, Jóhannes B. Jóhannsson og
vísuðu þar svöngum og dösuðum
ferðalöngum til borðs á hótelinu.
6. ágúst 198(T
Fyrri part dagsins buðu Akureyringar
upp á útsýnisferð um hinn fagra
höfuðstað norðurlands og nágrenni.
Seinna þann dag kom Þorsteinn gítar-
leikari eins og áætlað var og brátt var
tekið til við að koma hljómflutnings-
tækjunum fyrir, hressa síðan upp á
útlit sitt, því konsertinn átti að fara
fram um kvöldið i Sjallanum. Hann
hófst á tilsettum tíma með fjölda
eftirvæntingarfullra áheyrenda í saln-
um. Það stóð heldur ekki á viðbrögð-
um gesta, það, var mikið klappað og
vægt til orða tekið fengu strákarnir
afbragðs góðar viðtökur. Ég held líka
að þetta kvöld hafi þeir verið einstak-
lega vel upplagðir og í lokin bauð Lars
þeim sem vildu að taka i sitt sérstaka
hljóðfæri sem er Borsini Nostalgic,
Lars Ek spesial, handsmíðuð meira
og minna, gerð eftir hans eigin
hugmynd, einnig er hún gerð eins og Framl
harmoníkur voru eftir 1930. Er t.d. á bls.
um Kaldadal þar sem jaðraði við
sandbyl og létu forsprakkar ferðar-
innar í það skína að ekki mætti mikið
bæta í vind svo allt yrði ófært og að
minnsta kosti bíllinn yrði sandblásinn
eins og beinagrind í eyðimörk; en
ekkert slíkt gerðist nú og er við kom-
um niður undir Þingvöll var að færast
á ný roði í kinnar okkar erlendu gesta
og þegar nálgaðist Bolabás urðum við
þess áskynja að veður þarna um slóðir
var með fádæmum yndisfagurt,
glampandi sól, stafa logn og óvenju
mikið af fólki saman komið til að
njóta friðar og útiveru um verslunar-
mannahelgina. Reykur frá útigrillum
steig beint upp til himins og alls staðar
mátti sjá léttklætt og brosandi fólk.
Við fórum að sjálfsögðu með gesti
okkar á helstu sögustaði á Þingvöll-
um og m.a. gengum við niður Al-
mannagjá að hinum forna þingstað,
Drekkingarhyl og víðar. Það verður
að segjast satt og rétt að gestirnir
hrifust mjög af fegurð og sögu Þing-
valla og virtust vera afar opin fyrir því
sem fyrir augu og eyru bar.
Eftir kaffi og meðlæti að Valhöll
var ekið um Lyngdalsheiði og
Laugarvatnsvelli með viðkomu í hell-
inum sem búið var í til ársins 1922.
Upphaflega hugsuðum við okkur að
gista fyrstu nóttina á Hveravöllum,
þar var hvert rúm skipað löngu áður,
sama var upp á tengingnum á Laugar-
vatni, svo að Ingimar tók til sinna
ráða og útvegaði öllu liðnu gistingu
hjá skyldmennum sínum að Kjarn-
holtum í Biskupstungum, þar sem
rekið var sumardvalarheimili fyrir
börn og jafnframt var fæðingarstað-
ur hans. Þarna var vel tekið á móti
okkur, og var mjög góður agi á öllu,
það heyrðist varla í börnunum og ró
og friður ríkti er líða tók á kvöld.
Á kvöldvöku sem haldin var fyrir
börnin var Lars beðinn um að spila
fyrir þau, og mikil ósköp, allir sátu og
hlýddu á, stilltir og prúðir með opinn
munn, eyru og augu, og litla stofan
sem þéttsetin var glumdi af lófaklappi
milli laganna eins og í tónleikahöll.
Já, þetta var dálítið sérstök og eftir-
minnileg kvöldstund.
5. ágúst 198(T
Nú var lagt í ferðina um Kjalveg.
Daginn áður höfðum við skoðað
hverasvæðið við Geysi í Haukadal en
nú litum við á Gullfoss í öllu sínu veldi
áður en ferðin hóft inn á öræfin.
Veðrið var mjög gott, logn og sólskin
svo útsýni var frábært. Nokkrir lækir
og ár voru á leiðinni og þótti útlend-
ingunum mikið til koma þegar ekið
var yfir, og til að auka áhrifin enn
Fyrsta samæfingin — Þorsteinn, Lars og Þórður
9