Harmoníkan - 01.10.1986, Blaðsíða 12
Á Hveravöllum, skálað í tilefnifimmtugsafmœlis IngimarsEinarssonar með sól-
skinsbros á vör.
Kveðjustund á Húsavík að Laugabrekku 20. Frá vinstri — Hólmgeir Árnason,
Sigríður Sigurbjörnsdóttir, ungur dóttursonur Ingvars ogBoggu, Ingvar Hólm-
geirsson, Björg Gunnarsdóttir, Hilmar Hjartarson, Sigríður Sigurðardóttir,
Ann Mary, Mikael, Lars Ek og Ingimar Einarsson.
Kveðjuhófstertan skorin. Sigurbjörg Pálsdóttir, Aðalsteinn Símonarson, Anna
Kristinsdóttir, og Ingimar Einarsson. Fyrrverandi og núverandi formenn ásamt
konum sínum.
aðeins 9 kg á þyngd, með slíku hljóð-
færi segist Lars aðeins geta túlkað
verk eldri meistaranna.
Einn maður notfærði sér þetta boð,
það var hinn kunni harmoníkuleikari,
Jón Hrólfsson, sem einnig leikur á
sænskt hnappaborð og var annað
ekki að heyra en færi vel á með Jóni
og hinni útskornu og perlum prýddu
harmoníku.
Lars og fjölskylda hrukku upp um
miðja nótt á hótelinu, sem þau sváfu
á Akureyri, maður nokkur, nokkuð
við skál, braut rúðu á hæðinni fyrir
neðan með miklum tilþrifum en lög-
regla kom fljótlega og skrúfaði niður
í honum eftir þras og stimpingar.
7. ágúst 1985
Allir voru samt hressir og kátir að
morgni og var nú haldið af stað áleiðis
til Húsavíkur. Þegar komið var í
Þingeyjarsýslu tók á móti okkur for-
maður Harmoníkufélags Þingeyinga,
Stefán Þórisson og kona hans Gunn-
hildur Guðmundsdóttir. Menn heils-
uðust að fornum sið með kossi og
þótti útlendingunum mikið til koma.
Fannst þeir skynja hve íslendingar
væru eins og ein fjölskylda.
Allir rómuðu veðurblíðuna og
sagði Stefán slíkt veður ævinlega
fylgja harmoníkuunnendum. Ekið
var í átt til Mývatns og hvílík fegurð
þessa landssvæðis, það er erfitt fyrir
okkur íslendinga að lýsa því, en það
gerir útlendinga hreint orðlausa.
Þegar setið var til borðs í Reykja-
hlíð tilkynnti Stefán rausnarlegt boð
frá eiganda flugfélagsins Mýflug en
það var að fljúga með gestina yfir
Mývatnssvæðið sem þeir þáðu með
þökkum. Stefán fór líka með í þessa
ferð og var eftir hana mikið flóð af
fögrum lýsingarorðum um svæðið.
Húsavík var næsti viðkomustaður
en þar voru næstu tónleikar fyrir-
hugaðir í Félagsheimilinu. Ingvar
Hólmgeirsson formaður Lands-
sambands harmoníkuunnenda og
kona hans Björg Gunnarsdóttir tóku
þar á móti okkur og buðu öllum inn á
heimili sitt, að Laugarbrekku 20, og
upp á hressingu. Þegar menn fóru að
minnast á þreytu var bent á að úti í
garði væri heitur pottur sem auðveld-
lega myndi sjá við því og viti menn
það var satt, þetta reyndist hin besta
heilsulind og voru hérlendir sem er-
lendir ekki að flýta sér úr þeirri sælu.
Lars vildi gjarnan hafa þann hátt-
inn á að innlendir léku 1 eða 2 lög fyrir
hvern konsert. Á Húsavík lék hljóm-
sveit H.F.Þ. fyrir hann og eftir hlé
12