Harmoníkan - 01.10.1986, Blaðsíða 18
MINMNG
Ágúst M. Pétursson
Fæddur 29. júní 1921
Dáinn 28. júlí 19^6
Ágúst Pétursson var einn traustasti
félagi F.H.U. í Reykjavík. Hann var
einn af þessum hæglátu mönnum sem
lét alltaf gott af sér leiða, alltaf tilbú-
inn að greiða úr þeim vandamálum
sem skutu upp kollinum í félagsstarf-
inu. Hann var endurkjörinn á síðasta
aðalfundi, bæði í stjórn og hópstarf-
semi F.H.U. og var alltaf mjög virkur
félagsmaður. Þá samdi Ágúst mörg
góð lög, og var eitt þeirra Harmon-
íkumarsinn, sem hann tileinkaði
F.H.U. í Reykjavík. Við fráfall hans
hefur myndast stórt skarð í raðir
F.H.U. sem erfitt kann að reynast að
fylla í.
Við viljum senda fjölskyldu hans
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Harmoníkuunnendur eru ekki
bara á íslandi. í Bandaríkjunum
hefur verið stofnað félag sem heitir
„Friends Of The Accordion“,
skammstafað F.O.T.A.. Aðalhvata-
maður að þessu félagi er Frank
Marocco og með honum í þessu félagi
eru margir frægir kappar, svo sem
Art Van Damme, Antony Galla-Rini,
Dick Contino og margir, margir
fleiri. Félagið var stofnað í Oktober
’85, og finnst okkur nafnið skemmti-
legt og snúum því yfir á íslensku og
köllum það þá Harmoníkuunnendur.
•
Harmoníkufélag Reykjavíkur var
stofnað 14 júní s.l. Það hefur farið vel
af stað og m.a. spilað á útihátíðar-
höldum 17. júní í sumar og í tilefni
200 ára afmælis Reykjavíkurborgar,
undir stjórn formannsins, Karls
Jónatanssonar. Þeir hafa gert merki
fyrir félagið sitt, og má segja að það
sé skemmtilega líkt merki þessa blaðs,
en merki blaðsins var sent í dreifibréfi
í Maí í vor. 9
Harmoníkufélag Þingeyinga ferð-
aðist til austurlands 30. ágúst s.l. og
Tökum að okkur að útvega
harmónikkur af
öllum stærðum
Afgreiðslutími 6-8 vikur.
Hljóðfæraverslun _
PALMhRS ARri&hf J>
ÁRMÚLA 38-105 REYKJAVÍK - SÍMI 32845 *
trá Wnu ^
\
18