Harmoníkan - 01.10.1986, Side 19
MOLAR
tók þar þátt í dansleik, ásamt heima-
mönnum. Er ekki að efa, að þar hefur
verið góð stemmning og vonandi get-
um við greint eitthvað frá þessari ferð
síðar. ^
Frændur okkar Svíar eru með
20-30 harmoníkumót ár hvert. Eitt
hið stærsta er sennilega hið árlega
mót sem haldið er í Ransáter, en
þangað koma gestir frá öðrum lönd-
um. Accordion Club Stockholm hélt
upp á 50 ára afmæli sitt eftir áramótin
í vetur. Voru í því samkvæmi, flestir
af frægustu spilurum Svía, Ebbe
Jularbo, Sölve Strand, Hasse Telle-
mar, Lars Ek, Nils Flácke og frá
USA, Walter Erikson.
•
Harmoníkuunnendur Vesturlandi
lögðu land undir fót í sumar og fóru
til Kirkjubæjarklausturs og héldu þar
dansleik. Má búast við því að einhver
þeirra félaga, sendi okkur ferðasög-
una. Þetta er skemmtilegt framtak
hjá þeim, og öllum öðrum sem þetta
gera, því það er næsta víst að svona
skemmtiferðir efla félagsstarfið.
í Noregi eru haldin um 20
harmoníkumót, frá því í byrjun júní
og fram til desember. Það stærsta er
,,Titanofestivalen“, en í fyrrasumar
voru mótsgestir um 90 þúsund. Þá eru
líka fjölmörg önnur mót sem tengjast
harmoníkunni, t.d. eru haldin lands-
hlutaheppni í harmoníkuleik. Vinir
okkar í Senja Trekkspillklubb stóðu í
ströngu í mars í vor, en þá sáu þeir um
eitt slíkt mót fyrir Troms-fylki. Þá var
dagana 22.-24. ágúst s.l. haldið í
Oslo, norðurlandakeppni í að spila
gömlu dansana. Við íslendingar erum
eina norðurlandaþjóðin, sem er ekki
þátttakandi í þessari keppni, en til
þess að það geti orðið, þurfum við
sjálfir að halda slíka keppni. Sigur-
vegarar færu svo í keppnina sem full-
trúar okkar.
•
Hvað skeður næst?
Laugardaginn 7. desember s.l. hélt
harmoníkufélagið í Frövi í Svíþjóð,
upp á 10 ára afmæli sitt, með sam-
komu í félagsheimili staðarins (Folk-
ets Hus). Voru þar saman komin har-
moníkufélög, nemendur úr tveimur
tónlistarskólum, kvennakór og heið-
ursgestur samkomunnar Hasse Telle-
mar.
Hátíðin byrjaði með (eins og vera
bar) samleik allra, og síðan var dag-
skráin sett.
Hasse Tellemar var snemma á skrá,
og þegar hann hafði spilað eitt lag,
ruddist formaður Frövi harmoníku-
félagsins upp á svið og bað alla við-
stadda að yfirgefa húsið hið snarasta.
Ástæðan var sú, að lögreglan i Linds-
berg hafði fengið simtal svohljóð-
andi: Þetta er Ný-nazistaflokkurinn,
við sprengjum samkomuhúsið í Frövi
eftir hálftíma.
Það var ekki annað fyrir fólk að
gera en hlýða, og varð fólk að fara út
í kuldann, sem var -22°C, og ganga út
að biðsal sænsku járnbrautanna.
Það tók lögregluna tvp tíma að
rannsaka húsið hátt og lágt, og sem
betur fór, þá fannst engin sprengja.
Hátíðin var svo hafin að nýju án
þess að neinum yrði meint af, nema
hvað sumir fengu slæmt kvef.
FRÁ ÍSAFIRÐI
Ásgeir Sigurðsson lék fyrir dansi —
eftir 46 ára hlé
Flestir hljóðfœraleikarqnna í Turnhúsinu. Pétur fræðslu-
stjóri, Siíli í Þór, Einar Hreinsson í Netagerðinni, Baldur
í Landsbankanum, Ásgeir S. Sigurðsson í Skipasmíða-
stöðinni (þeir ættu að stofna tríó) og Sæmi málari. Ásgeir
Sigurðsson í Pólnum er ekki á þessari mynd. A bakvið
glittir aðeins I Jón safnavörð og bassann, en Karl Geir-
mundsson lemur húðir í horninu og sést alls ekki.
Sveit harmonikkuleikara spilaði í Turnhúsinu á
sunnudagskvöld. Einn þeirra hafði ekki spilað á balli
síðan árið 1940 — í 46 ár!
Það var Ásgeir Sigurðsson (neinei, auðvitað ekki
Ásgeir bílstjóri, því hann hefur spilað á óteljandi
böllum eftir 1940). Það var Ásgeir Sigurðsson járn-
smiður.
Hann fór að fikta við nikkuna barn að aldri í Bæj-
um á Snæfjallaströnd. Síðan spilaði hann fyrir dansi
viða við Djúp um nokkurra ára skeið, t.d. á Arn-
gerðareyri, í Reykjanesi og í Ögri. Yngri bræður
hans gerðu það líka þegar þeir uxu úr grasi, þeir
Torfi og Halldór.
pn haustið 1940 spilaði Ásgeir fyrir dansi í Ögri í
siðasta sinn. Eftir það átti hann ekki harmonikku í
áratugi. Ekki fýrr en hann fékk nikku í afmælisgjöf
sextugur.
Hver veit nema dansinn verði aftur stiginn í Ögri
við undirleik Ásgeirs Sigurðssonar hálfri öld síðar?
Kannski þar verði slegið upp balli haustið 1990?
Bæjarins besta (birt með leyfi).
19