Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 3

Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 3
Útgefendur og áb.menn: Hilmar Hjartarson Ásbúð 17, Garðabæ, sími 91-656385 Þorsteinn Þorsteinsson Torfu- felli 17,111 R.vík,sími91-71673 Forsíðumynd Mynd á forsíðu er af Jóhannesi Jóhannessyni og Toralf Tollefsen. Að sögn Svavars Gests, sem sá um ferð Tollefsens hingað, er myndin frá 1952. Harmoníka Tollefsens bilaði en Jóhannes gerði við hana og er verið að meta árangurinn. Tollefsen sendi Jóhannesi myndina með áletrun sem er nær horfin en þar stendur „77/ Johannes med hjertelig hilsen Toralf Tollefsen" Blaðið kemur út þrisvar á ári. í október, endaðan febrúar og í end- aðan maí. Gíróreikn. nr. 61090-9. Auglýsingaverð: 1/1 síða kr. 9.300 1/2 síða kr. 6.200 1/4 síða kr. 3.900 1/8 síða kr. 2.300 Smáauglýsingar (1,5 dálksentimetri) kr. 650 + kr. 120 fyrir hvern auka dálksentimetra. p™mi«,kni Hilmar Hjartarson. Þorsteinn Þorsteinsson. Gleðilegt sumar Nú þegar sumarið er gengið í garð gerast menn gáskafullir að erfiður vetur er að baki í byggðum þessa lands. Með fiðringi bíða harmoníkuunnendur þess að sól rísi hæst á himni, en um Jóns- messuleytið verður landsmót S.Í.H.U. haldið að Laugum i Reykjadal eins og kemur fram annarsstaðar í blaði þessu. Nú verður í fyrsta skipti á landsmóti erlendur einleikari (Nils Flácke), án nokkurs efa verður uppörfandi að heyra í honum. Eins verður gaman að hitta vini og kunningja það er ekki minnsta atriðið á þess- um mannfagnaði. Tæpum mánuði síðar er annað harmoníkumót sem orðinn er fastur liður, mót blaðs- ins „HARMONIKAN“ sem við köllum Galtalækjarmótið af þeim sökum að við höldum það í Galta- lækjarskógi. Ekki verður um villst að full þörf er á árlegu móti, það hafa margir lýst því yufir, að mót sem þetta sé bráðnauðsynlegt, þar sem ungir sem aldnir eru velkomn- ir og geta leikið sér frjálst og óþvingað. Út í aðra sálma, við rembumst eins og rjúpan við staurinn að gefa út harmoníkublað, sitjum yfir því hundruði klukkustunda á ári hverju, sök sér væri ef aurapungur blaðsins fengi eitthvað í sig, en nú er svo komið að horfir í geldingu ef nokkrir áskrifendur sem látið hafa undir höfuð leggjast að greiða sinn gíróseðil gera ekki upp skuld sína. Ekki bætti úr þegar virðisaukaskattur bættist við prentsmiðjureikninginn. Oft höf- um við talað um að hætta því aldr- ei höfum við getað borgað okkur kaup, höfum svona rétt skrimt en nær ekkert má útaf bregða til þess að geldingatöngin verði notuð í al- vöru og það án deyfingar, einhver þrjóska heldur okkur uppi og fög- ur orð frá lesendum. Það er drep- leiðinlegt þetta jarm en fyrir okk- ur er þetta hið mesta alvörumál. Erfitt er að hætta, ekki síst fyrir að við munum þá tapa nauðsynlegum tengiliðum hérlendis og í útlönd- um, við höfum pottþétta fréttarit- ara á öllum norðurlöndunum að Færeyjum meðtöldum, í USA og víðar, því getum við komið ýmsu er ekki liggur á lausu fyrir alla til skila í okkar tímariti. Eini tekju- liður blaðsins eru áskriftargjöldin, auglýsingatekjur nær engar m.a. fyrir að enginn tími gefst til að afla þeirra. Sjálfir erum við í engum vafa um að harmoníkublað sé bráðnauðsynlegt málgagn til stuðnings harmoníkufélögum landsins. Lesendur góðir ykkar er að dæma en gott væri að fá opin- bert álit frá lesendum, og ekki hvað síst harmoníkufélögunum í landinu. Útspilið við þetta blað var að hanna blaðið meira sjálfir til að spara nokkra vinnutíma í prentsmiðjunni. Að lokum þetta, um fá hljóð- færi skapast meiri stemmning en harmoníkuna, hún er sannkallað- ur gleðigjafi ef rétt er á haldið, að mínum dómi mættu fleiri hljóð- færi koma með í spilið það er al- gengt erlendis. Hlökkum til að sjá ykkur í sumar. H.H. 3

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.