Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 12

Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 12
Frá Færeyjum Nokkuð er liðið síðan þú fréttir frá okkur síðast, en satt að segja er það ekki neitt sem við getum greint frá að þessu sinni. Við spilum eins og venjulega fyrir dansi hér og þar um eyjarnar. Af og til er það allt "Harmonikuliðið" sem spilar, en einnig kemur það oft fyrir, að við leikum í minni hópum, þrír og fjórir saman. Ahuginn fyrir harmoníkutónlist er alltaf jafnmikill og gleðilegt er, að margir af yngri kynslóðinni sýna tónlist okkar áhuga. Ebbe Jularbo, sonur hins fræga harmoníkuleikara Karl Jularbo, hefur vitjað Færeyja og var það velheppnuð ferð. Harmonikuliðið er ekki með utanlandsferð á prjónunum í ár. Ekki geta allir tekið frí á sama tíma og margir spilarar hafa hug á að eyða sumrinu í Færeyjum í ár - ef það þá kemur eitthvað sumar. Við heimsóttum Bindslev s.l. sumar og hittum þar frændur okkar frá íslandi, sem voru þar í fyrsta sinn. Ferð okkar heppnaðist eindæma vel og samdi einn okkar félaga, Hjalti Skaalun, lag og ljóð sem var mikið sungið og spilað á mótinu. Lag þetta og Ijóð varð það vinsælt, að danska sjónvarpsstöðin "TV-Nord" notaði það sem einkennislag með fréttum frá Bindslev. Ég sendi þér afrit af lagi og Ijóði. Sem sagt, þá höfum við ekki í hyggju að fara utan í sumar, en ég hef frétt að það verði harmoníkumót á 12 198$ íslandi í sumar. Hver veit nema að einhver félaga okkar hafi hug á að fara á eigin vegum. Vonandi gengur allt vel hjá ykkur, sem starfið að Harmoníkunni. Bestu harmoníkukveðjur Kristin Gœrdbo (lauslega þýtt Þ.Þ.) Til Bindslev En dagjeg gik og keded' mig det var vist nok i maj og sommeren den mœrmed' sig hva' sku' dog g0re jeg da m0dte jeg en ven som sa' nu ska'jeg sige dig i BINDSLEV nu i juli mðned er musik pð vej viðlag: For i Bindslev ja i BINDSLEV blir der rigtig gang i den de kommer lig' fra Norge, Sverige, Fær0 ja sðmen, sð hvis din humor er lidt trist, da h0r nu hvad jeg sir' jo du skal ta' til BINDSLEV op for det er nog't der gir'. Harmonikaen spiller l0s, ja flere dag' i trœk, og det er nog't der gir' humor din kedsomhed er vœk og nðr du kommer hjem igen og tœnker dig lidt om, sð vil du huske BINDSLEV som et sted du syntes om viðlag:

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.