Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 16

Harmoníkan - 31.05.1990, Blaðsíða 16
F.H.U.E Frá áramótum hefur starf félagsins verið með hefð- bundnum hætti. Félagið hefur staðið fyrir fjórum dansleikjum, þar af einum í samvinnu við Harmoníkufélag Þingeyinga, sem tókst mjög vel í alla staði. Hljómsveit félagsins kom fram og kvintett undir stjórn Atla Guðlaugssonar og léku nokkur lög við góðar undirtektir. Svanhildur Leósdóttir flutti frumsamdar gamanvísur er fjölluðu um Noregsför s.l. sumar. Þá var söngur, glens og gaman og að lokum dansinn stiginn til kl. 3. Þess má geta að árshátíðin var tekin upp á myndband. Tvisvar hafa verið haldnar sunnudagsskemmtanir með til- heyrandi hlaðborði. Fyrirhugað er að halda dansleik í Þing- eyjarsýslu í samvinnu við H.F.Þ. og endurgjalda heimsóknina frá því í vetur. Fleira er einnig á döfinni, en ekkert verið ákveðið ennþá. Kvintett F.H.U.E. leiknr á árshátið. Frá vinstri: Hörður Kristinsson, Einar Gnðnmndsson, Flosi Sigurðsson, Sigurður Indriðason og Hannes Arason. í vetur gekkst félagið fyrir lagasamkeppni í tilefni 10 ára afmælis félagsins sem verður 5. október í haust. Fimm lög bárust, ekki hefur verið valið lag ennþá, en öll voru góð. Æfingar hafa verið stundaðar af kappi hjá kvintett og hljóm- sveit félagsins undir stjórn Atla Guðlaugssonar. Þetta er það helsta í fréttum hjá okkur frá áramótum. Sjáumst sem flest á Laugum í sumar - með harmo- níkukveðju. Jóhannes B. Jóhannsson Skemmtinefnd árshátíðar F.H.U.E. Frá vinstri: Filippía Sigurjónsdóttir, Hannoníkutónlist er ekki bara polkar rælar og valsar - segir Lena Teigen í viðtali við norska vikuritið Allers. Lena er 22 ára frá Oslo og titluð noregsmeistari í harmoníkuleik 1986 í blaðinu. Tilefni við- talsins er að hún er að gefa út sína fyrstu hljómplötu með Lögum eins og «Hello» «A11 by myself» og «Nikita» en blaðið kallar hana svar harmonfkunar við píanóleikaranum Richard Clayderman. Ekki spillir það að stúlkan er hugguleg, en harmo- níkuleikurinn er áhugamál því hún starfar sem sýningarstúlka 'I Pétur Stefánsson, Ágúst Einarsson og Jóhannes BJóhannsson. 16

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.