Harmoníkan - 31.05.1990, Qupperneq 8
Frá Harmoníkufélagi
Rangæinga
Spilað til styrktar dvalarheimilinu Lundi, Hellu. Frá vinstri: Sigrún Bjarnadóttir, Jóhann
Bjarnason, Tryggvi Sveinbjörnsson, Grétar Geirsson, Guðmundur Ágústsson,
Vigfús Sigurðsson og Óli E. Adolfsson.
Félagsstarf hjá Harmoníku-
félagi Rangæinga hefur verið
líflegt í vetur. Dansleikur var
haldinn í Gunnarshólma í haust.
Fengum við margt góðra gesta,
meðal annars frá Harmoníku-
unnendum Vesturlands.
Vorfagnaður var haldinn í
Gunnarshólma 18. apríl, í það
skiptið komu gestir frá Vík,
Hafnarfirði, Reykjavík og Ár-
nessýslu svo eitthvað sé nefnt.
Erfitt hefur verið vegna ófærðar
að halda skemmtifundi á vegum
félgsins í vetur. Einum slíkum
var aflýst fimm sinnum vegna
veðurs, áður en til framkvæmda
kom. Samæfingar hafa verið
annað hvert fimmtudagskvöld
og hafa félagar ekki látið
snjóalög aftra sér frá því að
mæta. Standa æfingar þá
gjaman langt fram á nótt, því
spilagleðin er svo mikil að
enginn lítur á klukkuna. Fjóra
Saumastofudansleiki hefur
félagið tekið að sér og fóru
æfingar fram fyrir þá
uppákomu utan hefðbundins
æfingatíma. Stefnan hefur nú
verið tekin á Landsmót og
undirbúningur löngu hafinn.
Farið hefur verið í heim-
sóknir til annara félaga. í sumar
fóru félagar í heimsókn til
Nikkólínu í Dölum, F.H.U.R.
hefur verið sótt heim, bæði á
skemmtifundi, sem félagar hafa
spilað á og á árshátíð, en
þangað var formanni ásamt
maka boðið.
Stjórn félagsins skipa nú:
Sigrún Bjarnadóttir formaður,
Oli E. Adolfsson ritari, Grétar
Geirsson gjaldkeri, Jón Ein-
arsson og Guðmundur Ágústs-
son meðstj.
Harmoníkufélag Rangæinga
sendir harmoníkukveðjur til fé-
laga um land allt.
Sigrún Bjarnadóttir
formaður
vílkomxn tíl HiMfmíms
uép. m nwtp/tN þúi
8