Harmoníkan - 31.05.1990, Síða 11
og grár köttur kringum ákveðna
hljómsveit þangað til hann fékk
eitt skipti að prófa hljóðfæri
harmoníkuleikarans. Hljómsveit-
arstjórinn uppgötvaði að fingur
Penttis voru óeðlilega stuttir „með
þeim væri aldrei hægt að spila“
sagði hann. Pentti svaraði um hæl,
að úr því hann væri ekki með
lengri fingur mætti nú að minnsta
kosti reyna, öllum væri nauðsyn-
legt að æfa sig þrátt fyrir allt.
Kunnáttan óx og upphófust þá
ferðalög á sumrin milli dansstaða
að syngja og spila.
Áheyrendur undruðust þraut-
seigjuna, margir hafa orðið undr-
andi og haft á orði hvers vegna
Pentti valdi harmoníkuna sem sitt
hljóðfæri, Pentti svarar að hann
hafi ekki valið heldur hafí þetta
allt komið af sjálfu sér. Fólkið
hlustar fyrst á tónlistina og spyr
síðan forviða? Hvernig getur mað-
ur með slíka'fingur náð svo mikl-
um árangri? Svarið er segir við-
mælandi minn, „með því að hreifa
hendina hittir maður alltaf á nýja
og nýja nótu“
Sirkusmaðurinn
og ferðalangurinn
Læknar hafa alltaf sagt að stutt-
ir fingur séu sneggri en þeir löngu,
því fljótari sem styttri væru. Ein-
staklega erfitt fyrir stutta fingur er
þegar kemur að því að handsama
bassana, yfirferðin um bassaborð-
ið krefst strangrar þjálfunar.
Pentti hefur leikið í sirkusum
ótal skipti sem hljómlistarmaður,
allt hans líf hefur verið endalaust
ferðalag frá einum stað til annars.
Fyrir utan allt þetta lærði Pentti
líka úrsmíðar, iðkaði ýmis konar
sport, lyfti lóðum og stundaði
skíðastökk.
í nokkur ár starfaði Pentti hjá
ríkisjárnbrautunum á vöruaf-
greiðslustöð og líkaði ekki sem
best, vinnan var með eindæmum
einhæf, eins og að snúa hverfi-
steini liðlangan daginn.
Hljómplötuverksmiðja var líka
prófuð, sú vinna var of erfið, þess-
vegna hélt Pentti áfram fyrri iðju,
hljómleikaferðum ásamt að leika
á dansleikjum.
Pentti hefur samið lög og texta
og útsett í fjölda eintaka, bæði
sína eigin og annarra og sungið
inná fjölmargar hljómplötur.
Áhugalistmálarínn
Eitt sinn sá Pentti mynd af mál-
verki eftir þekktan listmálara,
hann ákvað að gera sjálfur eitt-
hvað álíka „Bátur við sjávar-
strönd“. Það reyndist snúið fyrst,
málverkið reyndist mjög erfitt
hvorki var hægt að sjá bát eða
strönd, kannski notaði ég of sterka
liti formælti Pentti, sérstaklega er
svartur litur erfiður, með honum
er best að skyggja með.
Með eldra fólki á efri árum
Meðal eldra fólks í bænum Salo
í suður Finnlandi sameinast
áhugamálið undir sama merki.
Undir vissum kringumstæðum
leikur Pentti ennþá en fer ekki
lengur í langar ferðir, af þeim hef-
ur hann fengið nóg. Þýðing H.H.
11