Harmoníkan - 31.05.1990, Qupperneq 21
Félag Harmoníkuleikara Reykjavík
Sjálfsagt muna einhverjir af
eldri kynslóðinni eftir því að árið
1936 var stofnað í Reykjavík
harmonikufélag „FÉLAG
HARMONÍKULEIKARA
REYKJAVIK.“ Margt er nú gleymt
og grafið en sjáum hvað setur. Eitt
aðalmarkmið félagsins var að
koma á kennslu í harmoníkuleik
með nótnalestri, einnig að vera
stéttarfélag er stuðlaði að bættum
launum harmoníkuleikara. Fyrir
all mörgum árum frétti ég af tilurð
félagsins, og upp úr því hófst eftir-
grennslan er leitt hefur til að allt
fram á þennan dag hafa ýmsir
menn verið að koma með upp-
lýsingar.
Eitt mesta afrekið var að finna
fundargerðarbók félagsins, menn
þóttust muna að hún hafi verið til,
enda reyndist það rétt vera. Bókin
hefur að geyma sitthvað athyglis-
vert, hún var í umsjá Kristjáns El-
íassonar 1988 og sennilega nú hjá
aðstandendum en Kristján er lát-
inn þegar þetta er skrifað.
Einhver leynd mun hvíla yfir
efni hennar, því fæst ekki meira
birt að sinni, mikil synd væri ef
fundargerðarbókin glataðist, hún
hlýtur að flokkast undir merka
safngripi íslenskrar harmoníku-
sögu, öll er bókin handskrifuð.
Ekki fékkst leyfi til að ljósrita
nema nokkrar síður. Þar kemur
fram það helsta frá stofnun félags-
ins og yfirlit um þá fyrstu og einu
keppni í harmoníkuleik sem vitað
er til að farið hafi fram hérlendis.
Myndir hafa einnig komið í leit-
irnar, frá 1936 og 1938, og með
góðra manna hjálp tókst að
þekkja nær alla á stóru myndinni
utan einstaka, þar koma viður-
nefni í stað föðurnafns, flestir eru
nú látnir.
Félagsmenn komu oft saman í
BÁRUNNI (þar er nú ráðhús
Reykjavíkur). Báran var aðal
dansstaður borgarinnar á þessum
tíma, ekki ósjaldan lék 15 manna
hljómsveit harmoníkuleikara fyrir
dansinum.
Harmoníkudansleikir í Bárunni
voru gífurlega vinsælir.
Eftir því sem næst verður kom-
ist lognaðist félagið útaf um
1940—41.
Hér á eftir rita ég það sem má af
síðum fundargerðarbókarinnar
orðrétt en birti með til sýnis úr-
klippur. Mér eru efst í huga þakkir
til eftirtalinna manna. Kristjáns
Elíassonar, Jóns Inga Júlíussonar,
Braga Hlíðberg, Stefáns Hlíðberg
og Ásgeirs Þorleifssonar.
H.H.
Úr fundargerðarbókinni
Fyrsti stofnfundur félagsins 22.
nóv. 1936.
Stofnfundur var haldinn á Hót-
el Heklu kl. 2 Vz og mættu þessir 9
menn.
Hafsteinn Ólafsson
Guðmundur Bjarnleifsson
Jón Ólafsson
Jóhannes Jóhannesson
Stefán Lyngdal
Magnús Helgason
Harald Jóhannsson
Óskar Benediktsson
Steingrímur Jónsson.
Fundur var settur og í stjórn
voru kosnir þessir menn.
Form. Hafsteinn Ólafsson
ritari Guðm. Bjarnleifsson
gjaldk. Magnús Helgason
varaform. Jón Ólafsson. Síð-
an voru rædd ýmis mál, en þó ekk-
ert samþykkt að sinni.
Fundi var slitið kl. 4 Vz. Haf-
steinn Ólafsson, Guðm. Bjarn-
leifsson.
Annar framhaldsstofnfundur
25. nóv. Fundur var settur kl. 9, og
byrjað með því að 7 nýjum með-
limum var veitt inn í félagið.
Fundargjörð:
1. Lög félagsins voru lesin upp af
ritara og voru þau samþykkt
með öllum greiddum at-
kvæðum.
2. Þá var rætt um kauptaxta fé-
lagsins og komu fram tillögur
um að hvíldartaxti yrði fyrir 1
mann kr. 15.00 eða 2 menn
krónur 20.00 og var það sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum. 2. taxti á laugardög-
um kr. 5.00 á klukkutímann
einnig samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum.
3. Þá komu tillögur um að 1 mað-
ur mætti eigi spila lengur en 2
tíma á skemmtun, en ef
tromma væri með þá 3 tíma.
Samþykkt sömuleiðis.
4. Samþykkt var að taxti fyrir
sveitadansleiki skyldi vera kr.
30.00 fyrir hvorn mann, og eigi
færri en 2 menn á dans-
leiknum.
5. Fundi var slitið kl. 11:15. Haf-
steinn Ólafsson, Guðm. Bjarn-
leifsson.
Þriðji stofnfundur 6. desember.
1. Fundur settur kl. 3. Fundar-
gjörð: Þrír nýir félagar voru
teknir í félagið.
2. Því næst var kosinn varamaður
í stjórn Jóhannes Jóhannesson
og endurskoðendur Ársæll
Kjartansson og Ólafur H. Ein-
arsson.
3. Þá var kosið í prófnefnd og
voru þessir menn kosnir. Jón
Ólafsson, Jóhannes Jóhannes-
son, Hafsteinn Ólafsson,
Guðni Sigurbjarnason, Stefán
Lyngdal.
4. Kosnir voru í skemmtinefnd
þessir. Hafsteinn Ólafsson, Ár-
sæll Kjartansson, Ólafur H.
Einarsson.
5. Síðan var rætt um að þeir sem
óskuðu eftir inngöngu í félagið
eftir næstu áramót skyldu
gangast undir próf prófnefnd-
ar félagsins og það var sam-
21